Skinfaxi - 01.05.2024, Síða 27
S K I N FA X I 27
Nóg verður um að vera þegar Landsmót UMFÍ
50+ fer fram í fyrsta sinn í Vogum á Vatnsleysu-
strönd í byrjun júní. Eins og á fyrri mótum er
gert ráð fyrir miklum fjölda í ringó og boccia.
Vegna þess hversu mjög boccia hefur sprung-
ið út var ákveðið að bæta aukadegi við mótið.
Íþróttahúsið í Vogum rúmar einfaldlega ekki
allan fjöldann sem væntanlegur er í boccia
og þarf keppni því að fara fram á tveimur dög-
um.
„Við fáum mikið af fyrirspurnum um boccia.
Eldri borgarar hér hafa stundað boccia yfir vet-
urinn auk þess sem aukaæfingar hafa verið hjá
félaginu til að kynna greinina og undirbúa fólk
fyrir landsmótið. Eitt lið fór á Landsmót UMFÍ
50+ í Stykkishólmi í fyrra og lærði mikið af
því,“ segir Petra Ruth Rúnarsdóttir, formaður
Þróttar Vogum, sem heldur mótið í ár. Á meðal
þess sem hópurinn lærði í Stykkishólmi er að
hver keppnishópur kemur með sitt eigið
boccia-sett og tekur þátt í dómgæslu.
Petra segir boccia-liðin þurfa að vera snögg
að skrá sig vegna þess að aðeins verður hægt
að skrá 32 boccia-lið til leiks. Íþróttahúsið í
Vogum einfaldlega rúmi aðeins fjóra velli og
því þurfi að skipta keppninni upp.
Mikil ásókn í boccia
Petra Ruth, formaður Þróttar Vogum, segir mikla stemningu fyrir Landsmóti UMFÍ 50+.
Mikil ásókn er í boccia. Íþróttahúsið rúmar aðeins 32 lið og þurfti að fjölga mótsdögum.
Götubitar og heimatónleikar
Petra býst við mikilli stemningu á mótinu í júní.
Opið verði í fjölda greina og meira að segja
verði greinar í boði sem börn geta spreytt sig
á. Fólk geti komið og prófað greinar sem það
hafi dreymt um í gegnum árin. Matarvagnar
verða líka á svæðinu og skellt verður í heima-
tónleika víða um bæinn. Matar- og skemmti-
kvöldið verður á sínum stað og gulltryggt að
gaman verði á mótinu.
Brennibolti og pönnukökur
Til að koma öllum í mótsgírinn í Vogum var
haldinn íbúafundur í bænum í byrjun sumars.
Þar sat Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmda-
stjóri móta UMFÍ, fyrir svörum og skýrði jafn-
framt eitt og annað varðandi mótahaldið. Það
leiddi til þess að fólk bauð sig fram sem sjálf-
boðaliðar á mótinu.
Þróttarar hafa vandað vel til verka og bjóða
upp á úrval greina, bæði til að keppa í og sem
fólk getur prófað. Yfir tuttugu greinar eru í
boði. Þar á meðal eru brennibolti, petanque,
sem sló í gegn á mótinu í Stykkishólmi í fyrra,
og kasína, sem er vinsæl á meðal Grindvíkin-
ga. Þetta verður sérstaklega spennandi grein
því sérgreinastjórinn hefur stýrt heimsmeis-
taramóti í kasínu.
Gamlar byggingar og annað
forvitnilegt
Petra segir Þróttara og UMFÍ hafa kappkostað
að mótsgestir njóti helgarinnar. Auk matar-
vagna og götuveislustemningar geti gestir
skoðað ýmislegt í bænum, svo sem gamla
safnaðarheimilið Kirkjuhvol, sem Ungmenna-
félagið byggði ásamt Kvenfélaginu í Vogum.
Þar voru haldin dansiböll í gamla daga og
komu þangað gestir fótgangandi frá Grinda-
vík. Verið er að endurbyggja húsið og verður
hægt að fylgjast með framkvæmdum. Sömu-
leiðis verður hægt að skoða fleira gamalt og
gott sem búið er að gera upp, þar á meðal
gamla hlöðu og skólahús. Þeir gestir sem
vilja bregða undir sig betri fætinum geta
skellt sér í góðan göngutúr frá Vogum að
útivistarsvæðinu Háabjalla.
„Við erum að gera göngukort af leiðinni
og það verður – eins og fleira – tilbúið fyrir
mótið,“ segir Petra.
Petra Ruth Rúnarsdóttir, formaður Ung-
mennafélagsins Þróttar í Vogum.
Frá keppni í boccia á Landsmóti UMFÍ 50+.
Skráning á
Landsmót UMFÍ 50+ er á:
www.umfi.is