Skinfaxi - 01.05.2024, Page 36
36 S K I N FA X I
„Það fylgja því mörg frábær tækifæri að vera í stjórn NordUng, meðal
annars að ferðast um Norðurlöndin og kynnast frábærum ungmenn-
um alls staðar að,“ segir Halla Margrét Jónsdóttir. Hún er nýtekin
við sem formaður Ungmennaráðs UMFÍ af Emblu Líf Hallsdóttur, sem
hefur skilað af sér frábæru starfi síðastliðin tvö ár sem formaður og
setið enn fleiri ár í ráðinu. Sjálf hefur Halla Margrét setið í ungmenna-
ráði UMFÍ frá árinu 2019.
Vinnur með ungu fólki á Norðurlöndunum
Halla Margrét hefur síðastliðin tvö ár setið í stjórn Nordung, samtaka
æskulýðsfélaga á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Samtökin
standa að fjölmörgum verkefnum sem tengja Norðurlöndin og Eystra-
saltsríkin saman. Verkefnin eru fjölbreytt, meðal annars ungmenna-
vikur, ungmennaskipti, markmiðaráðstefnur og fleira. UMFÍ hefur lengi
verið samstarfsaðili samtakanna. Mörg tækifæri geta skapast með því
að taka þátt í verkefnum NordUng.
„Ég byrjaði í stjórn NordUng í apríl árið 2022 og var í ár endurkjörin
í tvö ár í viðbót,“ segir Halla Margrét. Aðalfundur NordUng var hald-
inn í Gautaborg 16. mars síðastliðinn. Fundurinn var samtengdur við
vinnustofu sem samtökin voru með dagana fyrir fundinn, þ.e. frá
13.–16. mars. Vinnustofan tók mið af þátttöku ungmenna í samfélag-
inu. „Þetta var gert þannig að hluti af dagskránni á vinnustofunni var
að koma og sjá hvernig aðalfundur NordUng er
haldinn,“ segir Halla Margrét.
Vinna saman yfir landamæri
„NordUng heldur fjóra viðburði á ári hverju. Við-
burðirnir samanstanda af þremur vinnustofum
og einni ungmennaviku, sem er alltaf haldin á
sumrin. Í ár fer ungmennavikan fram á Álands-
eyjum. Ég hvet öll ungmenni til að sækja um
og fara á svona viðburði. Þar öðlast maður dýr-
mæta reynslu og eignast frábæra vini frá öðrum
löndum,“ segir Halla Margrét. Yfirlit yfir kom-
andi viðburði er hægt að finna á heimasíðu
NordUng. Þar má einnig finna nánari upplýs-
Tala saman á blandinavísku
ingar um ungmennavikuna sem er á dagskrá í júlí á
þessu ári á Álandseyjum. Ungmennavikan er með
það að markmiði að kanna virka þátttöku ungmenna
og aktívisma, skapa þátttöku í samfélaginu, fagna fjöl-
breytileika samfélagsins og fleira. Þetta er allt gert með
skapandi, skemmtilegum og óformlegum aðferðum.
„Það er ótrúlega gaman að sjá hvernig ungmenni
annars staðar af Norðurlöndunum vinna og tala saman
„blandinavísku“ og kenna þeim smá íslensku. En þetta
gagnast mér líka mjög vel, því ég hef aukið mikið reynslu
mína af stjórnunarstörfum og öðlast ný tól í verkfærakist-
una mína,“ segir Halla Margrét.
NordUng er stytting á heitinu Nordisk Ungdomsorganisation.
Heitið var áður stytt sem NSU. Nordung og UMFÍ hafa lengi verið
samstarfsaðilar og unnið mikið af sameiginlegum verkefnum sem
tengja Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin saman. Á meðal verkefn-
anna eru ungmennaskipti, ungmennavikur, markmiðsráðstefnur
og ungbændaráðstefnur. Eitt af verkefnum NordUng á næstunni
er skipulagning ungmennaviku á Álandseyjum.
Formaður NordUng er Ylva Sóley Jóhanna Þórsdóttir Planman.
Ylva Sóley á foreldra frá Svíþjóð og Íslandi, bjó ytra í æsku en hefur
síðustu ár verið búsett í Mosfellsbæ. Ylva er fyrsta konan til að setjast
í formannsstól NordUng síðan Anna Ragnheiður Möller var for-
maður þeirra árin 2002 til 2012. Ylva situr í stjórn ungmennasam-
takanna fyrir hönd sænska félagsins FNUF – Föreningarna Nordens
Ungdomsförbund.
Halla Margrét Jónsdóttir tók á dögunum við sem formaður Ungmennaráðs UMFÍ. Hún hefur síðustu ár
verið virk í samtökum æskulýðsfélaga á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum. Hún segir þátttökuna
og stjórnarstörfin stækka mjög reynslubanka sinn.
Íslendingar öflugir í norrænum samtökum
Halla Margrét ásamt Ylvu Þórsdóttur Planman, formanni Nordung,
sem stendur henni á vinstri hönd, og þeim Maie Marie Nina Johannsen
og Johanne Osterholm, sem standa hvor á sínum enda.