Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.05.2024, Page 37

Skinfaxi - 01.05.2024, Page 37
 S K I N FA X I 37 Ekki missa af viðburði UMFÍ í sumar! Forsetahlaupið er 9. maí í samstarfi við Embætti forseta Íslands, Ungmennafélag Álftaness og Skokkhóp Álftaness. Landsmót UMFÍ 50+ er í Vogum á Vatnsleysuströnd 6. – 9. júní í samstarfi við Ungmennafélagið Þrótt Vogum og Sveitarfélagið Voga. Unglingalandsmót UMFÍ er um verslunarmannahelgina, dagana 1.– 4. ágúst. Mótið verður í Borgarnesi og er það haldið í samstarfi við Ungmennasamband Borgarfjarðar og sveitarfélagið Borgarbyggð. Drulluhlaup Krónunnar er brakandi hresst fjölskylduhlaup sem verður 17. ágúst í Mosfellsbæ. Hlaupið er haldið með Krónunni og Ungmennafélaginu Aftureldingu. Hlaupið var fyrst haldið fyrir þremur árum og hefur það slegið í gegn. Búist er við metþátttöku nú í ágúst. Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðræði fer fram í húsnæði Skólabúða UMFÍ að Reykjum í Hrútafirði dagana 20. – 22. september. Þetta er ráðstefna fyrir ungt fólk á aldrinum 15–30 ára. Allt fólk á þessum aldri er velkomið á ráðstefnuna. Þú getur kynnt þér alla viðburðina á umfi.is! Sprækir þátttakendur sem skemmtu sér á viðburðum UMFÍ í fyrra geta endurtekið leikinn þetta sumarið. Bæði er hægt að sækja íþróttaviðburði og ungmennaráðstefnuna Ungt fólk og lýðræði.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.