Vesturbæjarblaðið - dec 2023, Qupperneq 5
bætir hún við." Talið berst að
breskum sjónvarpsþáttum um
fæðingar sem sýndir hafa verið hér
á landi og fjalla um fæðingar frá
því um miðbik liðinnar aldar þegar
takmarkaðri þekking og önnur
viðhorf voru ríkjandi. Þær Emma
og Embla hafa greinilega fylgst með
þeim. „Þetta eru frábærir þættir og
sýna vel hvaða hlutverki nunnur og
ljósmæður gegndu við fæðingar.
Sumt sem er sýnt þar minnir á það
sem við erum að gera. Fókusinn í
okkar vinnu er að vera allt um kring
ef má orða það. Ekki aðeins að mæla
blóðþrýsting og aðrar mælingar
sem vissulega eru hluti af eftirliti
með heilsu kvenna á meðgöngu.
Mannlegi þátturinn skiptir að okkar
mati svo miklu máli. Að styðja sem
best við fólk á þessum tímamótum,“
segir Emma.
Vesturbærinn og
Seltjarnarnes
Talið snýst að Vesturbænum. Þær
Emma og Embla eru Vesturbæingar
en Embla færði sig um set fyrir
nokkru. Flutti sig af Ásvallagötunni
og býr nú á Seltjarnarnesi. Fór ekki
lengra en á næsta bæ. „Ég er fædd
og uppalin í Vesturbænum. Búin
að búa hér og þar. Næstum á öllum
Melunum og bý nú á Víðimel. Afi
og amma bjuggu við Melhaga. Ólu
börnin sín upp þar og ég var svo
heppin að búa hjá ömmu og afa
og alast upp hjá þeim stóran hluta
af æsku minni. Mamma keypti svo
húsið af þeim og við héldum áfram
að búa þar þannig að Melhagi 3 er
einskonar ættaróðal fyrir mér. Ef ég
fer aðeins lengra aftur þá á ég ættir
á Grímshaga. Þar var bóndabærinn
Hólabrekka þar sem langafi minn
og langamma voru með búskap.
Stórfjölskyldan byggði síðan yfir
sig í túninu heima og hálf ættin
mín býr þar í götunni. Jón Torfi
prófessor og Ögmundur Jónasson
stjórnmálamaður eru móðurbræður
mínir og búa þar báðir,“ segir
Emma. Þegar fjölgaði í fjölskyldu
Emblu hófst leit að stærra húsnæði.
„Þá fluttum við á Látraströndina á
Seltjarnarnesi. Við erum aðkomu
fólk því flestir sem þar búa eru
fæddir og uppaldir á Nesinu.
Heilsugæslan á Seltjarnarnesi
sinnir einnig hluta af Vesturbænum
þannig að margir af skjólstæðingum
okkar koma frá Heilsugæslunni
á Nesinu. En við kunnum vel
við okkur þar líkt og við gerðum
í Vesturbænum. “
Ætla að koma aftur
Emma og Embla segjast mjög
ánægðar með þær móttökur sem
þær hafa fengið. Engin kona hefur
enn komið tvisvar til að fæða
enda hafa þær aðeins verið með
fæðingarheimilið frá því seint á
síðasta ári. Þær segjast þó eiga von á
að konur komi aftur til þeirra erinda
að fjölga mannkyninu og sumar
hafi látið í ljósi þegar þær hafa kvatt
með nýburann sinn að við munum
sjá þær aftur. Kannski eftir tvö ár.
Þannig að við bíðum nú spenntar
eftir konum til að koma aðra umferð
í þjónustu til okkar.
5Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2023
Edythe Mangindin ljósmóðir og brjóstagjafaráðgjafi .
Feður eru undantekningalítið viðstaddir fæðingu barna á fæðingar
heimilinu og fæðingar í vatni fara öðru hvoru fram.
Boðið er upp á hreyfingu og jóga í undirbúningstímum fyrir fæðingu.
Sú nýjung sem við erum að móta er að
bjóða upp á stað þar sem fleira er að finna
en eingöngu ljósmæðraþjónustu. Við bjóðum
upp á jógatíma, brjóstaráðgjöf, bjóðum nudd,
nálastungur og erum með ýmis námskeið á
íslensku, ensku og pólsku.
KLASSÍSK ÍSLENSK ÚR
FYRIR HANN OG HANA