Vesturbæjarblaðið - des. 2023, Blaðsíða 19

Vesturbæjarblaðið - des. 2023, Blaðsíða 19
19VesturbæjarblaðiðNÓVEMBER 2023 Zonnic NIKÓTÍNÚÐI HAGKVÆMUR KOSTUR TIL AÐ HÆTTA AÐ REYKJA TAKTU STJÓRNINA! Fólk fer mismunandi leiðir að reyklausu lífi og til að forðast bakslag er mikilvægt að kynna sér hvaða úrræði og stuðningsmeðferðir eru í boði áður en kemur að deginum sem þú ætlar að hætta að reykja. Dæmi um stuðningsmeðferðir eru t.d. ráðgjöf fagaðila í reykleysismeðferð og nikótínlyf. Samkvæmt Berglindi Árnadóttur lyfjafræðingi hjá LYFIS/Icepharma hafa rannsóknir sýnt að samþætting faglegs stuðnings og nikótínlyfja gefi góða raun fyrir þá sem vilja hætta að reykja. Í mörgum tilfellum eru það ekki bara fráhvörfin sem eru erfið heldur allt þetta félagslega og andlega sem tengist reykingunum. Hafðu í huga að erfiðleikarnir og óþægindin sem þú upplifir þegar þú hættir að reykja eru tímabundin. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir hverjar ástæðurnar eru fyrir því að vilja hætta að reykja. Gott er að minna sig á þessar ástæður reglulega, til dæmis þegar reykingalöngunin gerir vart við sig. Nikótínlyf Þegar þú hættir snögglega að útvega líkamanum nikótín úr tóbaki finnur þú fyrir ýmiss konar vanlíðan sem kallast fráhvarfseinkenni. Með notkun nikótínlyfja getur þú komið í veg fyrir eða dregið úr þessari vanlíðan og löngun til að reykja. Það er vegna þess að þú heldur áfram að útvega líkamanum lítið magn af nikótíni í stuttan tíma á meðan hann er að venjast því að fá ekki lengur nikótín úr tóbaki. Nikótínlyf fást án lyfseðils í apótekum. Til eru margar gerðir af nikótínlyfjum svo hver og einn ætti að geta fundið nikótínlyf við sitt hæfi. Margir kjósa nikótín munnholsúða frekar en önnur nikótínlyf þar sem hann er auðveldur í notkun og áhrifin koma fram á um 1 mínútu. Samanborið við nikótíntyggi- gúmmí eða nikótínmunnsogs- töflur frásogast nikótín hraðar úr munnholsúða og getur nikótín munnholsúði því hentað þeim sem vilja slá fljótt á reykingalöngunina. Það tekur innan við mínútu fyrir nikótínið að frásogast inn í líkamann frá því að maður dregur að sér sígarettureyk. Nikótínið fer upp í heila og losar þar taugaboðefnið dópamín, sem framkallar vellíðan. Það eru þessi áhrif sem reykingafólk sækist eftir og ánetjast. Í ljósi þess hversu fljótt nikótínið frásogast inn í líkamann telur Berglind að notkun skjótvirkandi nikótínlyfs geti verið lykilatriði í að hætta að reykja. Zonnic – taktu stjórnina! Zonnic Pepparmint munnholsúði er notaður til að hjálpa þér að hætta að reykja þegar þú vilt hætta eða til að hjálpa þér að draga úr reykingum þegar þú getur ekki eða vilt ekki hætta reykingum. Munnholsúðinn inniheldur 1 mg af nikótíni í hverjum úða og er skjótvirkt lyf gegn reykingalöngun. „Þegar reykingalöngunin gerir vart við sig viltu hafa skilvirkt ráð við höndina sem virkar hratt og örugglega. Zonnic munnholsúði er með piparmintubragði og koma áhrif hans fram á 1 mínútu eftir að úðaskammtur er notaður“ segir Berglind. Zonnic munnholsúði inniheldur ekki tjöru, kolsýring eða önnur eiturefni sem eru í sígarettureyk. „Úðaglasið er með úðastúti sem er sérhannaður til að auðvelda notkun. Beina skal úðastútnum á milli kinnar og tanna þar sem nikótínið frásogast hratt inn í líkamann í munnholinu. Með því að beina úðanum á milli kinnar og tanna lágmarkar það einnig magn nikótíns sem berst niður í háls og maga, þar sem það getur valdið ertingu.” „Ráðlagður skammtur er 1-2 úðar á þeim tíma sem sígaretta væri venjulega reykt eða ef löngun gerir vart við sig“ upplýsir Berglind. Zonnic munnholsúðinn er einnig góð leið ef þú vilt minnka fjölda sígaretta sem þú reykir yfir daginn. Þú getur notað úðann til að vera laus við löngunina í sígarettu, því hver einasta sígaretta sem þú sleppir felur í sér stóran ávinning fyrir þig og þína heilsu. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. Niconovum AB. NIC231202 – Desember 2023 Viltu hætta að reykja? Berglind Árnadóttir, lyfjafræðingur hjá LYFIS/ Icepharma.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.