Vesturbæjarblaðið - Dec 2023, Page 19
19VesturbæjarblaðiðNÓVEMBER 2023
Zonnic NIKÓTÍNÚÐI
HAGKVÆMUR KOSTUR
TIL AÐ HÆTTA AÐ REYKJA
TAKTU STJÓRNINA!
Fólk fer mismunandi leiðir að reyklausu
lífi og til að forðast bakslag er
mikilvægt að kynna sér hvaða úrræði
og stuðningsmeðferðir eru í boði áður
en kemur að deginum sem þú ætlar að
hætta að reykja.
Dæmi um stuðningsmeðferðir eru t.d. ráðgjöf
fagaðila í reykleysismeðferð og nikótínlyf.
Samkvæmt Berglindi Árnadóttur lyfjafræðingi
hjá LYFIS/Icepharma hafa rannsóknir sýnt að
samþætting faglegs stuðnings og nikótínlyfja
gefi góða raun fyrir þá sem vilja hætta að reykja.
Í mörgum tilfellum eru það ekki bara
fráhvörfin sem eru erfið heldur allt þetta
félagslega og andlega sem tengist reykingunum.
Hafðu í huga að erfiðleikarnir og óþægindin
sem þú upplifir þegar þú hættir að reykja eru
tímabundin. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir
hverjar ástæðurnar eru fyrir því að vilja hætta
að reykja. Gott er að minna sig á þessar ástæður
reglulega, til dæmis þegar reykingalöngunin
gerir vart við sig.
Nikótínlyf
Þegar þú hættir snögglega að útvega
líkamanum nikótín úr tóbaki finnur þú
fyrir ýmiss konar vanlíðan sem kallast
fráhvarfseinkenni.
Með notkun nikótínlyfja getur þú komið í veg
fyrir eða dregið úr þessari vanlíðan og löngun til
að reykja. Það er vegna þess að þú heldur áfram
að útvega líkamanum lítið magn af nikótíni í
stuttan tíma á meðan hann er að venjast því að
fá ekki lengur nikótín úr tóbaki.
Nikótínlyf fást án lyfseðils í apótekum. Til
eru margar gerðir af nikótínlyfjum svo hver
og einn ætti að geta fundið nikótínlyf við sitt
hæfi. Margir kjósa nikótín munnholsúða
frekar en önnur nikótínlyf þar sem hann er
auðveldur í notkun og áhrifin
koma fram á um 1 mínútu.
Samanborið við nikótíntyggi-
gúmmí eða nikótínmunnsogs-
töflur frásogast nikótín hraðar
úr munnholsúða og getur
nikótín munnholsúði því
hentað þeim sem vilja slá fljótt
á reykingalöngunina.
Það tekur innan við mínútu
fyrir nikótínið að frásogast inn
í líkamann frá því að maður
dregur að sér sígarettureyk.
Nikótínið fer upp í heila og
losar þar taugaboðefnið
dópamín, sem framkallar
vellíðan. Það eru þessi áhrif
sem reykingafólk sækist eftir
og ánetjast. Í ljósi þess hversu
fljótt nikótínið frásogast inn í líkamann telur
Berglind að notkun skjótvirkandi nikótínlyfs
geti verið lykilatriði í að hætta að reykja.
Zonnic – taktu stjórnina!
Zonnic Pepparmint munnholsúði er notaður
til að hjálpa þér að hætta að reykja þegar þú
vilt hætta eða til að hjálpa þér að draga úr
reykingum þegar þú getur ekki eða vilt ekki
hætta reykingum. Munnholsúðinn inniheldur
1 mg af nikótíni í hverjum úða og er skjótvirkt
lyf gegn reykingalöngun.
„Þegar reykingalöngunin gerir vart við sig
viltu hafa skilvirkt ráð við höndina sem virkar
hratt og örugglega. Zonnic munnholsúði er
með piparmintubragði og koma áhrif hans fram
á 1 mínútu eftir að úðaskammtur er notaður“
segir Berglind. Zonnic munnholsúði inniheldur
ekki tjöru, kolsýring eða önnur eiturefni sem
eru í sígarettureyk.
„Úðaglasið er með úðastúti
sem er sérhannaður til að
auðvelda notkun. Beina skal
úðastútnum á milli kinnar
og tanna þar sem nikótínið
frásogast hratt inn í líkamann í
munnholinu. Með því að beina
úðanum á milli kinnar og tanna
lágmarkar það einnig magn
nikótíns sem berst niður í háls og
maga, þar sem það getur valdið
ertingu.”
„Ráðlagður skammtur er
1-2 úðar á þeim tíma sem
sígaretta væri venjulega reykt
eða ef löngun gerir vart við sig“
upplýsir Berglind.
Zonnic munnholsúðinn er
einnig góð leið ef þú vilt minnka fjölda sígaretta
sem þú reykir yfir daginn. Þú getur notað úðann
til að vera laus við löngunina í sígarettu, því
hver einasta sígaretta sem þú sleppir felur í sér
stóran ávinning fyrir þig og þína heilsu.
Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og
í fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis
eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum
um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari
upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Niconovum AB.
NIC231202 – Desember 2023
Viltu hætta að reykja?
Berglind Árnadóttir,
lyfjafræðingur hjá LYFIS/
Icepharma.