Vesturbæjarblaðið - des. 2023, Blaðsíða 16
16 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2023
Á meðal jólabóka bóka forlag
sins Hóla þetta árið er bókin
Björn Pálsson – flugmaður
og þjóðsagna persóna, eftir
Jóhannes Tómasson. Björn var
frum kvöðull í sjúkraflugi á Íslandi
og starfaði við það frá 1949 til
dauðadags, 1973. Á þeim tíma
var hann kallaður „bjargvættur
landsbyggðarinnar“. Hann var
oft eina von sjúkra og slasaðra
úti á landi, hann fór í loftið þótt
veðurútlitið væri allt annað en gott
til flugs, svo ekki sé nú minnst á
lendingarstaðina, sem sumir voru
varla meira en „lófastærð“.
„Ég man að eitt sinn var
hann kallaður til að sækja mjög
sjúkan mann að Breiðabólstað á
Fellsströnd,“ sagði Sveinn, sonur
Björns. „Þar var um að ræða
lendingarsvæði sem var afgirt tún,
400 til 500 metrar að lengd, sem
hafði verið merkt og settur upp
vindpoki. Þar sem svartamyrkur var
lagði hann fyrir viðkomandi hvernig
þeir skyldu standa að því að lýsa
upp lendingarstaðinn. Hann flaug
tveggja hreyfla flugvélinni TF-VOR
í þetta sinn og þegar þangað kom
höfðu menn raðað bílum við enda
túnsins sem lýstu upp fyrirhugað
lendingarsvæði. Þegar hann setti
niður vængbörðin í aðfluginu til að
geta komið hægar inn til lendingar
snerist flugvélin mjög skyndilega á
aðra hlið. Drifarmurinn í tjakknum
hægra megin hafði þá brotnað
þannig að vængbarðið sat eftir
þeim megin á miðri niðurleið.
Hann gerði sér strax grein fyrir hvert
vandamálið var, brást hart við og
náði að draga vinstra barðið strax
upp þar til að jafnvægi náðist. Eftir
á taldi hann sig hafa komist í hann
krappan þarna.
Þar sem túnið var allt of stutt
til lendingar án vængbarðanna
varð hann að snúa frá og það tókst
vel. Hann hafði þá samband við
flugstjórn og sagði þeim hvernig
komið var. Einnig að hann myndi
reyna lendingu á Kambsnesi
við Búðardal þar sem var litlu
lengri flugbraut og bað um að
þeim skilaboðum yrði komið til
fólksins á Breiðabólstað. Hann
flaug þangað og náði að gerðum
nokkrum tilraunum að lenda heilu
og höldnu á Kambsnesi í myrkrinu,
án lýsingar á svörtum melnum og
auðvitað án vængbarðanna. Þar
beið hann svo sjúklingsins og flutti
hann til Reykjavíkur.
Súrefnistækin björguðu
konunni
Í byrjun september 1950 var
Björn Pálsson beðinn um að fljúga
með súrefnistæki frá Slökkviliðinu
á Reykjavíkurflugvelli vestur á
Reykhóla vegna konu í barnsnauð.
Flugið tók 55 mínútur og var
lent skammt frá húsinu þar sem
konan lá. Hún var þá „orðin
blá, svo var af henni dregið“. En
skömmu eftir að tækin voru tekin
í notkun var konunni auðveldara
um andardráttinn. Læknirinn á
Reykhólum sagði við Morgunblaðið
að það hefði „bjargað lífi hinnar
ungu konu hve skjótt tækin komu“.
Varð að skilja
móðurina eftir
Snemma á sjötta áratugnum
sótti Björn Pálsson litla stúlku til
Borgarfjarðar eystra á „Kásetunni“
(TF-KZA). Barnið var með
botnlangabólgu og mjög veikt.
Móðirin vildi koma með en það
var ekki pláss fyrir hana í vélinni.
„Það var afskaplega erfitt að þurfa
að skilja móðurina eftir,“ sagði Björn
síðar í viðtali. „Og upp úr þessu var
farið að gera ráðstafanir til að fá
stærri flugvél.“
Heypokarnir komu sér vel
Að vetrarlagi var Björn Pálsson
beðinn að sækja fullorðinn mann
austur á Bakkafjörð. Á leiðinni
þaðan var óskað eftir því að hann
færi til Fáskrúðsfjarðar að sækja
veika konu. Þegar þangað var komið
var „vandinn að koma fyrir öðrum
sjúklingi í þessari litlu vél,“ sagði
Björn síðar. „Nú var komið með
heypoka, hvern á fætur öðrum,
og þeim hlaðið upp þangað til
sjúklingarnir voru eiginlega komnir
í axlarhæð á mér í vélinni, til þess að
geta legið heldur frjálsari aftur í. Og
til Reykjavíkur komumst við.“
Með aðra hönd á stýri
Sunnudaginn 19. júlí 1959
slasaðist átta ára drengur frá
Hvammstanga á sveitabæ í Miðfirði
í Vestur-Húnavatnssýslu. „Hafði
hann setið á dráttarvél hjá manni
sem var að slá með henni en fallið
með einhverjum hætti af henni og
á ljáinn. Meiddist hann mjög illa á
fæti og handleggsbrotnaði og hlaut
auk þess önnur meiðsli á hlið,“
sagði Tíminn.
Skömmu eftir að þetta gerðist lenti
Björn Pálsson við Hvammstanga
til að sækja konu sem átti að fara
á sjúkrahús í Reykjavík. Áður en af
því varð kom læknir með drenginn.
Vísir sagði svo frá í forsíðufrétt:
„Varð nú sjúklingurinn að bíða
og drengurinn fluttur suður og
var hann milli heims og helju á
leiðinni og aðstoðaði Björn lækninn
við að halda lífinu í drengnum
og voru aðstæður til þess erfiðar
og kveðst hann ekki hafa getað
haft nema aðra hönd á stýri
mikinn hluta leiðarinnar og mætti
næstum segja að stundum hafi
flugvélin flogið sjálf.“
Ári síðar birtist auglýsing í
dagblöðunum þar sem móðir
drengsins þakkaði þeim sem „skutu
saman álitlegri fjárupphæð“ til þess
að sonur hennar „gæti fengið sér
gervifót þegar hann í fyrrasumar
missti annan fótinn af slysförum“.
Skorið upp í skyndi
Í byrjun júlí 1963 flaug Björn
Pálsson með Árna Björnsson
skurðlækni og Valtý Bjarnason
svæfingalækni vestur í Dali til að
skera upp konu sem var of veik til
að hægt væri að fljúga með hana
suður. „Höfðu þeir meðferðis blóð,
súrefnistæki, svæfingatæki og annað
sem þurfti til uppskurðar,“ að sögn
Morgunblaðsins.
Lent var á Breiðabólsstað á
Fellsströnd og farið beint að
Staðarfelli, þar sem konan var. Eftir
meira en tveggja tíma uppskurð var
konan flutt flugleiðis til Reykjavíkur.
„Lánaðist aðgerðin vel og líður
konunni eftir vonum,“ sagði í
Tímanum daginn eftir.
Síðasta flugferðin
Björn Pálsson var 65 ára þegar
hann fórst með flugvél sinni, Vorinu,
þann 26. mars 1973, á leiðinni
frá Akureyri til Reykjavíkur eftir
vinnuferð þangað norður. Hann
var ekki að fljúga í það skiptið
en sat í farþegasæti. Með Birni
fórust flugmaður hans og þrír
samverkamenn frá Flugmálastjórn.
Nú eru 50 ár frá því að Björn
Pálsson lést, en í bókinni segir
frá mörgum ferðum hans og
afrekum, auk þess sem hún er
prýdd fjölda ljósmynda.
Útkomin hjá Hólum
Sjúkrabíll, Björn og Kástan TF-KZA. Björn hóf sjúkraflug á vélinni en hún
þótti ekki henta vel, sér í lagi vegna þess hve lítil hún var og sjúklingar
urðu að sitja uppréttir.
Fyrsti sjúkraflug-
maðurinn á Íslandi
Á kápu bókarinnar á sjá mynd af
Birni Pálssyni og að sjálfsögðu er
flugvél í baksýn.
Sunnudagur 17. desember kl. 17
Heilunarguðsþjónusta
í samstarfi Fríkirkjunnar í Reykjavík, Kærleiksseturs og
Sálarrannsóknafélags Íslands.
Friðbjörg Óskarsdóttir heilari og fræðslumiðill leiðir kirkjugesti
í heilunarhugleiðslu.
Ávarp flytur séra Hjörtur Magni Jóhannsson.
Um tónlist sjá Gunnar Gunnarsson og
Sönghópurinn við Tjörnina.
Sunnudagur 17. desember kl. 20
Aðventukvöld Fríkirkjunnar
Fallegt og ljúft tónlistarkvöld.
Gyrðir Elíasson, rithöfundur og Tómas R. Einarsson tónlistarmaður
lesa úr nýútgefnum bókum sínum.
Sara Gríms, Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir og Aðalsteinn Ásberg
syngja lög úr söngvasveignum Stjörnunni í austri.
Heiða Árnadóttir, söngkona og Gunnar Gunnarsson, píanóleikari
flytja lög af nýútgefinni hljómplötu sinni.
Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.
Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða sönginn
ásamt Gunnari Gunnarssyni.
Séra Hjörtur Magni og Dr. Sigurvin Lárus prestar
Fríkirkjunnar leiða stundina.
Aðfangadagur 24. desember kl. 18
Aftansöngur á aðfangadagskvöldi
Söngkonan Þóra Einarsdóttir syngur einsöng.
Sönghópurinn við Tjörnina syngur jólin inn undir stjórn
Gunnars Gunnarssonar, organista.
Dr. Sigurvin Lárus leiðir stundina.
Aðfangadagur 24. desember kl. 20.55 á RÚV sjónvarp
Friðarstund í Fríkirkjunni
Sjónvarpsútsending á RÚV frá friðaðarstund í Fríkirkjunni í Reykjavík.
Jóladagur 25.desember kl. 14
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag
Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól.
Tónlistarmaðurinn KK flytur nokkur af sínum fjölmörgu lögum
og kryddar stundina með skemmtilegum sögum.
Sr. Hjörtur Magni, Sönghópurinn við Tjörnina
ásamt Gunnari Gunnarssyni.
Gamlársdagur 31.desember kl. 16
Aftansöngur á gamlársdag
Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista
leiða safnaðarsöng.
Dr. Sigurvin Lárus leiðir stundina.
Verið öll hjartanlega velkomin!
Jól og áramót í
Fríkirkjunni í Reykjavík