Vesturbæjarblaðið - Dec 2023, Page 16

Vesturbæjarblaðið - Dec 2023, Page 16
16 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2023 Á meðal jólabóka bóka forlag­ sins Hóla þetta árið er bókin Björn Pálsson – flugmaður og þjóðsagna persóna, eftir Jóhannes Tómasson. Björn var frum kvöðull í sjúkraflugi á Íslandi og starfaði við það frá 1949 til dauðadags, 1973. Á þeim tíma var hann kallaður „bjargvættur landsbyggðarinnar“. Hann var oft eina von sjúkra og slasaðra úti á landi, hann fór í loftið þótt veðurútlitið væri allt annað en gott til flugs, svo ekki sé nú minnst á lendingarstaðina, sem sumir voru varla meira en „lófastærð“. „Ég man að eitt sinn var hann kallaður til að sækja mjög sjúkan mann að Breiðabólstað á Fellsströnd,“ sagði Sveinn, sonur Björns. „Þar var um að ræða lendingarsvæði sem var afgirt tún, 400 til 500 metrar að lengd, sem hafði verið merkt og settur upp vindpoki. Þar sem svartamyrkur var lagði hann fyrir viðkomandi hvernig þeir skyldu standa að því að lýsa upp lendingarstaðinn. Hann flaug tveggja hreyfla flugvélinni TF-VOR í þetta sinn og þegar þangað kom höfðu menn raðað bílum við enda túnsins sem lýstu upp fyrirhugað lendingarsvæði. Þegar hann setti niður vængbörðin í aðfluginu til að geta komið hægar inn til lendingar snerist flugvélin mjög skyndilega á aðra hlið. Drifarmurinn í tjakknum hægra megin hafði þá brotnað þannig að vængbarðið sat eftir þeim megin á miðri niðurleið. Hann gerði sér strax grein fyrir hvert vandamálið var, brást hart við og náði að draga vinstra barðið strax upp þar til að jafnvægi náðist. Eftir á taldi hann sig hafa komist í hann krappan þarna. Þar sem túnið var allt of stutt til lendingar án vængbarðanna varð hann að snúa frá og það tókst vel. Hann hafði þá samband við flugstjórn og sagði þeim hvernig komið var. Einnig að hann myndi reyna lendingu á Kambsnesi við Búðardal þar sem var litlu lengri flugbraut og bað um að þeim skilaboðum yrði komið til fólksins á Breiðabólstað. Hann flaug þangað og náði að gerðum nokkrum tilraunum að lenda heilu og höldnu á Kambsnesi í myrkrinu, án lýsingar á svörtum melnum og auðvitað án vængbarðanna. Þar beið hann svo sjúklingsins og flutti hann til Reykjavíkur. Súrefnistækin björguðu konunni Í byrjun september 1950 var Björn Pálsson beðinn um að fljúga með súrefnistæki frá Slökkviliðinu á Reykjavíkurflugvelli vestur á Reykhóla vegna konu í barnsnauð. Flugið tók 55 mínútur og var lent skammt frá húsinu þar sem konan lá. Hún var þá „orðin blá, svo var af henni dregið“. En skömmu eftir að tækin voru tekin í notkun var konunni auðveldara um andardráttinn. Læknirinn á Reykhólum sagði við Morgunblaðið að það hefði „bjargað lífi hinnar ungu konu hve skjótt tækin komu“. Varð að skilja móðurina eftir Snemma á sjötta áratugnum sótti Björn Pálsson litla stúlku til Borgarfjarðar eystra á „Kásetunni“ (TF-KZA). Barnið var með botnlangabólgu og mjög veikt. Móðirin vildi koma með en það var ekki pláss fyrir hana í vélinni. „Það var afskaplega erfitt að þurfa að skilja móðurina eftir,“ sagði Björn síðar í viðtali. „Og upp úr þessu var farið að gera ráðstafanir til að fá stærri flugvél.“ Heypokarnir komu sér vel Að vetrarlagi var Björn Pálsson beðinn að sækja fullorðinn mann austur á Bakkafjörð. Á leiðinni þaðan var óskað eftir því að hann færi til Fáskrúðsfjarðar að sækja veika konu. Þegar þangað var komið var „vandinn að koma fyrir öðrum sjúklingi í þessari litlu vél,“ sagði Björn síðar. „Nú var komið með heypoka, hvern á fætur öðrum, og þeim hlaðið upp þangað til sjúklingarnir voru eiginlega komnir í axlarhæð á mér í vélinni, til þess að geta legið heldur frjálsari aftur í. Og til Reykjavíkur komumst við.“ Með aðra hönd á stýri Sunnudaginn 19. júlí 1959 slasaðist átta ára drengur frá Hvammstanga á sveitabæ í Miðfirði í Vestur-Húnavatnssýslu. „Hafði hann setið á dráttarvél hjá manni sem var að slá með henni en fallið með einhverjum hætti af henni og á ljáinn. Meiddist hann mjög illa á fæti og handleggsbrotnaði og hlaut auk þess önnur meiðsli á hlið,“ sagði Tíminn. Skömmu eftir að þetta gerðist lenti Björn Pálsson við Hvammstanga til að sækja konu sem átti að fara á sjúkrahús í Reykjavík. Áður en af því varð kom læknir með drenginn. Vísir sagði svo frá í forsíðufrétt: „Varð nú sjúklingurinn að bíða og drengurinn fluttur suður og var hann milli heims og helju á leiðinni og aðstoðaði Björn lækninn við að halda lífinu í drengnum og voru aðstæður til þess erfiðar og kveðst hann ekki hafa getað haft nema aðra hönd á stýri mikinn hluta leiðarinnar og mætti næstum segja að stundum hafi flugvélin flogið sjálf.“ Ári síðar birtist auglýsing í dagblöðunum þar sem móðir drengsins þakkaði þeim sem „skutu saman álitlegri fjárupphæð“ til þess að sonur hennar „gæti fengið sér gervifót þegar hann í fyrrasumar missti annan fótinn af slysförum“. Skorið upp í skyndi Í byrjun júlí 1963 flaug Björn Pálsson með Árna Björnsson skurðlækni og Valtý Bjarnason svæfingalækni vestur í Dali til að skera upp konu sem var of veik til að hægt væri að fljúga með hana suður. „Höfðu þeir meðferðis blóð, súrefnistæki, svæfingatæki og annað sem þurfti til uppskurðar,“ að sögn Morgunblaðsins. Lent var á Breiðabólsstað á Fellsströnd og farið beint að Staðarfelli, þar sem konan var. Eftir meira en tveggja tíma uppskurð var konan flutt flugleiðis til Reykjavíkur. „Lánaðist aðgerðin vel og líður konunni eftir vonum,“ sagði í Tímanum daginn eftir. Síðasta flugferðin Björn Pálsson var 65 ára þegar hann fórst með flugvél sinni, Vorinu, þann 26. mars 1973, á leiðinni frá Akureyri til Reykjavíkur eftir vinnuferð þangað norður. Hann var ekki að fljúga í það skiptið en sat í farþegasæti. Með Birni fórust flugmaður hans og þrír samverkamenn frá Flugmálastjórn. Nú eru 50 ár frá því að Björn Pálsson lést, en í bókinni segir frá mörgum ferðum hans og afrekum, auk þess sem hún er prýdd fjölda ljósmynda. Útkomin hjá Hólum Sjúkrabíll, Björn og Kástan TF-KZA. Björn hóf sjúkraflug á vélinni en hún þótti ekki henta vel, sér í lagi vegna þess hve lítil hún var og sjúklingar urðu að sitja uppréttir. Fyrsti sjúkraflug- maðurinn á Íslandi Á kápu bókarinnar á sjá mynd af Birni Pálssyni og að sjálfsögðu er flugvél í baksýn. Sunnudagur 17. desember kl. 17 Heilunarguðsþjónusta í samstarfi Fríkirkjunnar í Reykjavík, Kærleiksseturs og Sálarrannsóknafélags Íslands. Friðbjörg Óskarsdóttir heilari og fræðslumiðill leiðir kirkjugesti í heilunarhugleiðslu. Ávarp flytur séra Hjörtur Magni Jóhannsson. Um tónlist sjá Gunnar Gunnarsson og Sönghópurinn við Tjörnina. Sunnudagur 17. desember kl. 20 Aðventukvöld Fríkirkjunnar Fallegt og ljúft tónlistarkvöld. Gyrðir Elíasson, rithöfundur og Tómas R. Einarsson tónlistarmaður lesa úr nýútgefnum bókum sínum. Sara Gríms, Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir og Aðalsteinn Ásberg syngja lög úr söngvasveignum Stjörnunni í austri. Heiða Árnadóttir, söngkona og Gunnar Gunnarsson, píanóleikari flytja lög af nýútgefinni hljómplötu sinni. Barnakór Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Hljómsveitin Mantra og Sönghópurinn við Tjörnina leiða sönginn ásamt Gunnari Gunnarssyni. Séra Hjörtur Magni og Dr. Sigurvin Lárus prestar Fríkirkjunnar leiða stundina. Aðfangadagur 24. desember kl. 18 Aftansöngur á aðfangadagskvöldi Söngkonan Þóra Einarsdóttir syngur einsöng. Sönghópurinn við Tjörnina syngur jólin inn undir stjórn Gunnars Gunnarssonar, organista. Dr. Sigurvin Lárus leiðir stundina. Aðfangadagur 24. desember kl. 20.55 á RÚV sjónvarp Friðarstund í Fríkirkjunni Sjónvarpsútsending á RÚV frá friðaðarstund í Fríkirkjunni í Reykjavík. Jóladagur 25.desember kl. 14 Hátíðarguðsþjónusta á jóladag Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól. Tónlistarmaðurinn KK flytur nokkur af sínum fjölmörgu lögum og kryddar stundina með skemmtilegum sögum. Sr. Hjörtur Magni, Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni. Gamlársdagur 31.desember kl. 16 Aftansöngur á gamlársdag Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista leiða safnaðarsöng. Dr. Sigurvin Lárus leiðir stundina. Verið öll hjartanlega velkomin! Jól og áramót í Fríkirkjunni í Reykjavík

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.