Vesturbæjarblaðið - dec. 2023, Side 12

Vesturbæjarblaðið - dec. 2023, Side 12
12 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2023 Netverslun: systrasamlagid.is Parísarval Landakotsskóla Nemendur á unglingastigi skólans geta valið Parísarval, Þá læra nemendur auk frönsku margt um menningu og listir Frakka. Námskeiðinu lýkur svo með menningarferð til Parísar. Fyrir atbeina sendiráðs Frakklands á Íslandi og borgarinnar Nice bauð Alliance Francaise í Reykjavík nemendum kvöldstund sem tileinkuð var matseld frá Nice. Luc Salsedo, franskur kokkur frá Nice, kenndi Parísarvali að elda socca en það er forréttur frá Suður-Frakklandi. Í socca, sem eru litlar bökur eru kjúklingabaunir, hveiti og ólífolía en svo eru notaðar alls kyns kryddjurtir til að gefa mismundandi bragð. Nemendur skemmtu sér vel í franskri matreiðslu undir handleiðslu Luc. Nemendur kynnast drónatækni Lego steam smiðja 7. bekkjar í Landakots skóla í samstarfi við leiklist skólans fengu Matthew Johnson, varaforseta Volatus Aerospace í Kanada í heimsókn til sín, en fyrirtækið er framarlega í þróun og sölu dróna um víða veröld. Matthew sem var áður stærðfræðikennari stýrir menntunar- og landbúnaðarsviði Volatus. Matthew hefur hannað þó nokkuð af fræðsluefni sem auðveldar nemendum og kennurum að tileinka sér drónatækni á árangursríkan hátt. Aðferðin byg- gist á því að hjálpa nemendum að tileinka sér vin- nubrögð í steam tilraunasmiðjum og um leið mæta þeim kröfum sem gerðar eru í námi. Nemendur hafa notið námsins og hlakka til að halda áfram með seinni hluta smiðjunnar, ekki síst að vinna með drónann sem Matthew gaf Landakotsskóla. Lego steam smiðja 7. bekkjar í Landakotsskóla ásamt Matthew Johnson. Nóvember var viðburðaríkur mánuður í félagsmiðstöðinni Frosta en þó voru tveir áfangar sem stóðu sérstaklega upp úr. Mánu daginn 13. nóvember kepptu átta grunnskóla til úrslita Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanna, þar sem Hagskælingar stóðu sig eins og hetjur og fóru með sigurinn. Atriðið heitir „Líttu upp, taktu eftir“ og fjallar um samfélagsmiðla og mikilvægi þess að fylgjast með veröldinni utan þeirra og leggja snjalltækin niður um stund. Háteigsskóli hlaut annað sætið og Seljaskóli það þriðja. Í Skrekk fá unglingar í grunnskólum Reykjavíkurborgar að útfæra og vinna með hugmyndirnar sínar og þróa sviðsverk fyrir stóra svið Borgarleikhússins. Þar nýta unglingarnir allar sviðslistir við verkin; tónlist, dans, leiklist og gjörninga. Sömuleiðis sjá þau um tæknimál, búninga, förðun, semja leik, dans, söng, tónlist og söguþráð. Það er ljóst að framtíð sviðslista er björt og óskum við Hagskælingum og öllum keppendum Skrekks hjartanlega til hamingju með árangurinn. Hagskælingar létu sér ekki nægja að sigra Skrekk, heldur lönduðu einnig þriðja sæti í Rímnaflæði, rappkeppni unga fólksins. 17. nóvember steig rappdúóið Kjartan og Pétur á svið fyrir hönd Frosta og fluttu frumsamið lag og texta við góðar undirtektir. Rappararnir stóðu sig með prýði og verður ekki síður spennandi að fylgjast með þessum upprennandi röppurunum. Frá Skrekk, hæfileikakeppni grunnskólanna sem Hagaskóli vann. Viðburðaríkur mánuður í Frosta Nemendur í Parísarvali Landakotsskóli. Nemendur elda franskan mat

x

Vesturbæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.