Vesturbæjarblaðið - des. 2023, Blaðsíða 21
21VesturbæjarblaðiðDESEMBER 2023
NÝTUM ORKUNA
TIL AÐ FLOKKA
Umbúðagámar fyrir pappa- og plastumbúðir
hjá Orkunni 22. - 29. desember.
Kleppsvegi, Reykjavík
Gylfa
öt, Reykjavík
Austurströnd, Seltjarnarnesi
Skagabraut, Akranesi
Reykjavíkurvegi, Hafnarrði
Hinn árlegi jólamarkaður Frístundaheimilanna;
Frostheima, Skýjaborga, Undralands og Selsins var
7. desember sl. Börnin komu saman til að selja fallegi
hluti sem þau föndruðu á frístundaheimilum.
Mjög margir mættu í frístundamiðstöðina Tjörnina
til að styrkja gott málefni og að fá sé kakó og piparkökur
á meðan. Allur ágóði rennur til SOS Barnaþorpa sem
hjálpar munaðarlausum og yfirgefnum börnum í
Eþíópíu og Indlandi að eiga gott og öruggt líf.
Jólamarkaður
frístundaheimilanna Borgarstjóri kallar
eftir breytingum
Íþróttahús grunnskóla Reykjavíkurborgar eru nú rekin með
56 milljóna króna tapi á ári hverju. Borgarstjóri hefur kallað
eftir breytingum á rekstrarfyrirkomulagi íþróttahúsa í eigu
borgarinnar. Í greinargerð fundar borgarráðs kemur fram
að mikilvægt sé að skóla- og frístundasvið og menningar- og
íþróttasvið endurskoði rekstur íþróttahúsanna í samstarfi við
Íþróttabandalag Reykjavíkur.
Í greinargerð borgarráðs kemur fram að skóla- og frístundasvið hafi
áður bent á að halli væri á rekstri íþróttahúsa grunnskóla í borginni
um nokkurt skeið. Leigutekjur sem koma inn eftir að hefðbundinni
kennslu lýkur dugi ekki til að greiða laun starfsmanna. Þeir fjármunir
sem notaðir hafi verið til að dekka þann 56 milljóna króna halla sem
nú er á rekstrinum komi úr fjárheimildum til reksturs skólanna. Þeir
séu því færðir úr lögbundinni starfsemi yfir í alls óskyldan rekstur.
Fyrir liggur að íþróttahúsin hafi ekki staðið undir sér í rekstri eftir
kl. 16:00 á daginn þegar íþróttafélög og almenningur hafa aðgang að
þeim. Í minnisblaði sem fylgdi fundargerð borgarráðs kemur fram að
ein tillaga feli í sér að hækka leigugjald á almenningstímum um 50%.
Þetta myndi jafngilda meðalhækkun upp á 4000 krónur á tímann.
Íþróttahúsum er skipt í þrjár stærðir eftir verði: Lítil, meðalstór og
stór. Við þetta færi verð á leigu á litlu íþróttahúsi úr 6480 krónum á
klukkustund í 9720 krónur á klukkustund.
Íþróttahús Hagaskóla.
Halli á rekstri íþróttahúsa grunnskólana