Vesturbæjarblaðið - des. 2023, Blaðsíða 22
22 Vesturbæjarblaðið DESEMBER 2023
Afgreiðslutími:
Mán: 10-16
Þri-fös: 10-17
Lau: 11-16
ÓÐINSGÖTU 1, REYKJAVÍK
systrasamlagid.is
@systrasamlagid
Sími: 511 6367
GEFÐU HLÝLEGAR
GJAFIR
Hugleiðslupúðar
Hönnun sem endurspeglar hefðir og venjur frá Indlandi.
Mynstur sem notuð eru til að skreyta stíga á
hindúhátíðum og við hjónavígslu.
Einstök hönnun. Kíktu á úrvalið.
Líkamsburstar og olíur
Ást er... að gefa þér og þínum líkamsbursta og -olíu
á aðventunni. Hydréa London er leiðandi í baðdekri.
Notaðu með lífrænar olíur af bestu gerð. Frá Fuschi og
Wild Grace hjá okkur.
Nærðu húðina með
Wild Grace
Mögnuð húðlína sem færir
húðinni aðeins það besta og
nákvæmasta sem náttúran
hefur upp á að bjóða. Kíktu
á úrvalið.
Lykillinn að jólunum!
Allra bestu ferðafélaganir í
skammdeginu, alla aðventuna
og öll jólin eru meltingar-
ensím, magasýra og
mjólkurþistill. Það er gott að
fara að undirbúa meltinguna.
Jólaljósin lýsa nú upp borgina og kallast á
við orð Jesú sem sagði: „Ég er ljós heimsins
hver sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri
heldur hafa ljós lífsins.“ Því miður eru margir
skuggar sem þyrfti að lýsa upp á þessari aðventu.
Hugur okkar hefur síðustu vikurnar, verið hjá
Grindvíkingum sem takast á við náttúruhamfarir,
skemmdir á eignum og ótrygga framtíð.
Athygli heimsbyggðarinnar hefur einnig beinst
að átökunum í landinu helga og því hatri sem knýr
áfram voðaverkin sem hafa átt sér stað í Ísrael og
á Gaza og ekki hefur enn tekist að ná fram friði
í Úkraínu. Margir hafa spurt sig hvert geti verið
andsvar við þeirri illsku sem stríð birtir. Forsendur
friðar hljóta ævinlega að hvíla á kærleika og
gagnkvæmri virðingu og viljanum til að viðurkenna
rétt annarra til lífs í friði.
En hvernig undirbúum við komu jólanna þegar
allt er breytt? Þegar tilvera okkar er í uppnámi, þegar
við getum ekki verið heima hjá okkur, þegar ástvinir
okkar eru veikir eða dánir, eða jafnvel í fangelsi,
þegar áhyggjur og kvíði lita líf okkar?
Sannleikurinn er sá að það er hægt að hlúa að
gleði þrátt fyrir þjáningar og sorgir heimsins og það
er hægt að vera glaður þótt ekki sé allt fullkomið
eða eins og við helst kysum. Lykillinn að því að geta
fundið fyrir gleði og tilhlökkun á aðventunni og um
jólin er sennilega sá að geta fundið til þakklætis
fyrir það sem maður hefur og fyrir allt það smáa og
hversdagslega.
Þess vegna er það svo undursamlegt að jólin skuli
hafa aðdraganda.
Jólaundirbúningurinn getur nefnilega gefið okkur
einstakt tækifæri til að skoða og íhuga hvað er okkur
helgast og kærast. Aðventan og jólin er sá tími sem
opinberar það með skýrum hætti hvaða gildi það
eru sem við sem samfélag viljum standa vörð um.
Þegar kirkjuklukkurnar hafa hring kl. sex á
aðfangadagskvöld er sagt að þá sé orðið heilagt. Þá
þarf ekki að gera neitt annað en það að opna hjarta
sitt fyrir því að jólagleði og jólafriður taki sér bólstað
innra með okkur. Tímabundið mótlæti á ekki að fá
að taka þá tilfinningu frá okkur.
Jólaundirbúningurinn ætti ekki síst að felast í
því að búa til pláss í hjartanu fyrir þann boðskap
jólanna að frelsari mannanna hafi fæðst í litlu og
berskjölduðu barni. Sá boðskapur kallar okkur til
þess að lifa vel og gera öðrum gott.
Guð gefi ykkur friðsæla aðventu og gleði ríka jólahátíð!
Elínborg Sturludóttir.
Kveðja frá Dómkirkjunni
Elínborg Sturludóttir og Sveinn Valgeirsson
prestar Dómkirkjunnar.
Arngunnur Árnadóttir, Urh Mrak og Mathias Halvorsen leika
tríó fyrir klarínett, selló og píanó í Dómkirkjunni.
Á dagskránni eru Tríó í B-Dúr Op. 11 eftir Ludwig van Beethoven og
Klarínettutríó í d-moll Op. 3 eftir Alexander Semlinskíj. Tónleikarnir
fara fram þann 14. desember kl. 20 og er aðgangur ókeypis.
Beethoven og Semlinskíj
í Dómkirkjunni