Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.05.2024, Side 8

Víkurfréttir - 15.05.2024, Side 8
Svanur Már Scheving er vel þekktur hlaupa- og hjólreiðakappi í reykjanesbæ og má sjá honum bregða fyrir hlaupandi eða hjólandi allan ársins hring, sama hvernig viðrar. Það eru fáir sem stand ast Svani snúning en hann hjólaði m.a. hringinn kringum ís- land fyrir fáeinum árum. Nú hefur Svanur opnað hjólaverkstæði á Smiðjuvöllum í reykjanesbæ en þá þjónustu hefur sárlega vantað í bæinn. Hjól þurfa sitt viðhald „Ég auglýsti mig og svo spyrst þetta einfaldlega út,“ segir Svanur en talsverður erill hefur verið hjá honum síðan hann opnaði hjóla- verkstæðið sitt á Smiðjuvöllum í byrjun síðasta mánaðar. „Það koma alltaf fleiri og fleiri með hjól til mín. Það er virkilega gaman hvað fólk tekur þessu vel.“ Það hefur verið mikil þörf á svona þjónustu í bæinn, sérstak- lega núna þegar skólarnir eru að klára. „Já og allir að fara af stað. Þessi þjónusta þarf að vera til staðar, hjólið bilar alveg eins og bíllinn. Það þarf að smyrja bílinn og sinna viðhaldi, þetta er alveg eins.“ Hvernig fólk hefur verið að leita til þín? „Þetta hefur verið allskonar fólk; eldra fólk, fólk á miðjum aldri eða fólk að koma með hjólin fyrir börnin.“ Svanur segir að hann muni jafnvel fljótlega fara að selja ný reiðhjól. „Ég ætlaði nú ekki að byrja á því strax en fólk hefur verið að spyrja um þetta og mögulega tek ég fljótlega inn hjól í samstarfi við Örninn. Þar fæ ég alla varahluti og þeir bakka mig upp.“ Hvernig dast þú inn í hjóla- viðgerðir, er það bara eitthvað sem þú hefur verið að fikta við í gegnum tíðina? „Já, ég er nú búinn að vera mikið að hlaupa og hjóla og ég hjólaði til dæmis hringinn fyrir fjórum árum. Víkurfréttir fjölluðu meðal annars um þessa ferð mína og það var með fyrstu greinunum af fólki að ferðast innanlands þegar Covid var í gangi. Mig langaði alltaf að gera þetta og notaði tækifærið þegar Covid var og engir útlendingar á veg- unum. Ég hef nú gert ýmislegt yfir ævina en þetta er eitt það allra skemmtilegasta sem ég hef gert, ég naut hverrar einustu mínútu af ferðinni,“ segir Svanur en ferðin tók tólf daga í heildina, tíu dagar fóru í að hjóla hringinn en tvo daga notaði hann til að heimsækja ætt- ingja á Akureyri. Svanur sinnir hjólaviðgerðunum utan hefðbundins vinnutíma en hann starfar í Vatnaveröld í Reykjanesbæ. „Ég er í vinnu sem ég er ánægður með og þetta er bara svona auka. Svo hef ég mann til að hjálpa mér ef reynir á það. Ég sinni öllu vel sem ég tek mér fyrir hendur,“ segir Svanur og bætir við að lokum að hann sé með Face- book-síðu þar sem hann setur reglulega inn hvenær hann er á staðnum og fólk geti komið með hjól á þeim tímum. Múrari/verkamaður – Reykjanesbæ Epoxy Gólf leitar af jákvæðum og duglegum starfsmanni. Unnið er með bæði epoxy, flotefni, polyurethane og microsement. Starfslýsing: n Gólflagnir með tveggjaþátta efni n Flotun gólfa n Lögn á Microsementi n Múrviðgerðir Kröfur um: n Stundvísi n Sjálfstæði n Metnaðarsemi n Reglusemi n Sveigjanleiki n Jákvæðni n Með ökuréttindi Tekið skal fram að unnið er töluvert út á landi. Áhugasamir sendi tölvupóst á epoxygolf@epoxygolf.is eða hafi samband í síma 519-8970. Epoxy Gólf is looking for an employee to do flooring work. Working with both epoxy, self-levelling cement, polyurethane and microcement. Job description: n Flooring with two-component materials n Putting down self-levelling underlayment n Applying microcement n Concrete repairs Requirements for: n Punctuality n Independence n Ambition n Orderliness n Flexibility n Positivity n With drivers license It should be noted that work is also done in the country side. Interested send email to epoxygolf@epoxygolf.is or call 519-8970. Gerir við reiðhjól í frítímum Svanur við Jökulsárlón á hringferð sinni um Ísland sumarið 2020. Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is 8 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.