Víkurfréttir


Víkurfréttir - 26.06.2024, Side 4

Víkurfréttir - 26.06.2024, Side 4
Tillaga stýrihóps vegna flutnings Bókasafns Reykjanesbæjar í Hljóma- höll ásamt kosntaðaráætlun var samþykkt á fundi bæjarráðs Reykja- nesbæjar síðasta fimmtudag. Vinna verkefnahóps um flutning bóka- safnsins í Hljómahöll leiddi í ljós að húsnæði Hljómahallar hentar vel undir þá fjölbreyttu menningarstarfsemi sem um ræðir. Tillagan, sem var samþykkt á fundinum, inniheldur skiptingu á rýmum Hljómahallar á milli aðila sem þar verða með heimilis- festi. Sömuleiðis er farið yfir þær framkvæmdir sem ráðast þarf í til að allar stofnanir nái að þróa áfram blómlega starfsemi í breyttu starfsumhverfi með metnaðarfulla þjónustu við íbúa að leiðarljósi. Helstu kostnaðarliðir vegna verkefnisins eru hönnun og undir- búningur, stofnbúnaður bókasafns, geymslurými á lóð, flutningur á vörumóttöku, hljóðeinangraður veggur, útdraganleg stúka í Bergi, ný framsetning á rokksýningu, hönnun og uppsetning á framtíð- arsýningu Rokksafnsins, bókunar- kerfi við rými, loftræsting og hljóð- einangrun í tónlistarskóla, úrbætur á móttöku o.fl. Í greinargerð með bókun í bæjar- ráði í morgun segir að flestir kostn- aðarliðir og verkefni sem tekin eru saman í tillögunni hafa sannarlega legið fyrir í nokkurn tíma óháð breytingum á Hljómahöll. Mætti segja að þar sé um að ræða eðli- legt viðhald og undirbúning frekar en sértækan kostnað vegna þessa verkefnis. Hvað varðar geymslu- rými á lóð þá er stærstur hluti þess kostnaðar fjárfesting í lausum einingum sem eflaust má selja eða setja í aðra notkun ef breyting verður á aðstöðumálum Hljóma- hallar á komandi árum. Bókun í bæjarráði frá Margréti A. Sanders (D): „Sjálfstæðisflokkurinn leggur til að fyrst verði unnið að stefnu- mótun um framtíðarfyrirkomulag í húsnæðismálum stofnana og samhliða því önnur aðstöðu- og húsnæðismál sem tengjast menn- ingarstarfsemi í Reykjanesbæ áður farið er í umfangsmiklar og kostn- aðarsamar breytingar á Hljómahöll enda segir í tillögu stýrihóps eftir- farandi: „Hins vegar snýr tillagan að því að á haustmánuðum 2025 verði skipaður verkefnahópur á vegum Reykjanesbæjar sem mun vinna tillögur varðandi framtíðar- fyrirkomulag í húsnæðismálum stofnana í Hljómahöll og sam- hliða því önnur aðstöðu- og hús- næðismál sem tengjast menningar- starfsemi í Reykjanesbæ. Í þeirri vinnu verði sérstaklega horft til þeirrar íbúafjölgunar sem vænst er í samfélaginu og mögulegra viðbragaða við auknu umfangi og þjónustu stofnana“.“ Bókun í bæjarráði ásamt greinargerð frá Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur (B), Bjarna Páli Tryggvasyni (B), Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur (S), Valgerði Björk Pálsdóttur (Y) og Margrét Þórarinsdóttur (U): „Fulltrúar Framsóknar, Sam- fylkingar, Beinnar leiðar og Um- bótar í bæjarráði samþykkja tillögu stýrihópsins sem varða flutning bókasafnsins í Hljómahöll. Tillög- urnar snúa að kostnaðarliðum sem tengjast bæði rekstri og eignfærslu. Samþykkt er að vísa 14 millj- ónum í viðauka við fjárhagsá- ætlun 2024 og 155 milljónum í viðauka við fjárfestingaáætlun 2024. Gert er ráð fyrir geymslu- rými á lóð Hljómahallar innan þess kostnaðar sem bæjarráð vill að unnið verði meira með t.d. með tilliti til stærðar og því hvort hægt er að nýta einingar sem sveitar- félagið á þegar þær losna á næsta ári. Bæjarráð vísar hluta tillaganna, þ.e. kaupum á útdraganlegri stúku í Berg og hönnun og uppsetningu á framtíðarsýningu Rokksafnsins til fjárhagsáætlunarvinnu 2025. Ferill málsins Á 1457. fundi bæjarráðs þann 29. febrúar sl. var tekin ákvörðun um að vinna áfram í flutningi Bóka- safns Reykjanesbæjar í Hljóma- höll og var sú ákvörðun staðfest með meirihluta atkvæða á 671. fundi bæjarstjórnar þann 5. mars sl. Í kjölfarið var ráðinn verkefna- stjóri og skipaður vinnuhópur sviðsstjóra, stjórnenda og bæjar- fulltrúa til að vinna að útfærslu á ákvörðuninni og var honum ætlað að skila útfærðum tillögum til bæjarráðs með kostnaðaráætlun. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir ráð- gjafi hefur leitt verkefnið en hún hefur viðamikla reynslu í menn- ingarmálum og í málefnum tón- listarskóla og var m.a. í undirbún- ingshópi fyrir byggingu Menn- ingarhússins Hofs á Akureyri, var framkvæmdastjóri Hofs um árabil og er núverandi stjórnarformaður í Hörpu. Verkefnastjóri hefur, ásamt pólitískum fulltrúum, haldið stutta kynningu á hugmyndum með starfsmönnum stofnananna. Brugðist var við ábendingum sem fram komu á þessum fundum eftir fremsta megni og hafa tillögurnar sem samþykktar eru hér í dag verið samþykktar samhljóða af öllum í verkefnahópnum. Tillagan sem hér er samþykkt inniheldur skiptingu á rýmum Hljómahallar á milli aðila sem þar verða með heimilisfesti. Sömuleiðis er farið yfir þær framkvæmdir sem ráðast þarf í til að allar stofnanir nái að þróa áfram blómlega starf- semi í breyttu starfsumhverfi með metnaðarfulla þjónustu við íbúa að leiðarljósi. Til viðbótar við þau atriði sem nefnd eru hér að ofan var horft til skilgreindra lykilþátta árangurs hjá hverri stofnun sem starfandi er í Hljómahöll og fyrir bókasafnið. Helstu kostnaðarliðir vegna verkefnisins eru hönnun og undir- búningur, stofnbúnaður bókasafns, geymslurými á lóð, flutningur á vörumóttöku, hljóðeinangraður veggur, útdraganleg stúka í Bergi, ný framsetning á rokksýningu, hönnun og uppsetning á framtíð- arsýningu Rokksafnsins, bókunar- kerfi við rými, loftræsting og hljóð- einangrun í tónlistarskóla, úrbætur á móttöku o.fl. Flestir kostnaðarliðir og verk- efni sem tekin eru saman í til- lögunni hafa sannarlega legið fyrir í nokkurn tíma óháð breytingum á Hljómahöll. Mætti segja að þar sé um að ræða eðlilegt viðhald og undirbúning frekar en sértækan kostnað vegna þessa verkefnis. Hvað varðar geymslurými á lóð þá er stærstur hluti þess kostnaðar fjárfesting í lausum einingum sem eflaust má selja eða setja í aðra notkun ef breyting verður á aðstöðumálum Hljómahallar á komandi árum. Það er ánægjulegt að vinna verk- efnahópsins hefur leitt það í ljós að húsnæði Hljómahallar hentar vel undir þá fjölbreyttu menningar- starfsemi sem hér um ræðir. Í til- lögunni felst að allar stofnanirnar geta áfram sinnt þeirra metnaðar- fulla starfi og að Hljómahöll geti áfram haldið vel utan um 700–800 manna viðburði og Rokksafnið verður áfram tryggt innan Hljóma- hallar. Við þökkum Ingibjörgu og verk- efnahópnum fyrir þeirra vönduðu vinnu til þessa en það er mat okkar að verkefnið hafi verið vel unnið og hefur hópurinn verið opinn fyrir þeim tækifærum sem geta skapast til enn meiri vaxtar og fyrir þeim samþættingarmöguleikum sem samvinna þeirra stofnana sem hér um ræðir getur falið í sér. Við sjáum gríðarleg tækifæri og hlökkum til að sjá menningarhúsið Hljómahöll vaxa og blómstra enn meir með fjölbreyttri menningar- starfsemi sem íbúar og notendur þjónustunnar munu njóta góðs af.“ Á fundinum samþykkti bæjarráð með fjórum atkvæðum að vísa 14 milljónum í viðauka við fjárhagsá- ætlun 2024 og 155 milljónum í viðauka við fjárfestingaáætlun 2024. Gert er ráð fyrir geymslu- rými á lóð Hljómahallar, innan þess kostnaðar sem bæjarráð vill að unnið verði meira með, t.d. með tilliti til stærðar og því hvort hægt er að nýta einingar sem sveitar- félagið á þegar þær losna á næsta ári. Bæjarráð vísar hluta tillaganna þ.e. kaupum á útdraganlegri stúku í Berg og hönnun og uppsetningu á framtíðarsýningu Rokksafnsins til fjárhagsáætlunarvinnu 2025. Mar- grét A. Sanders greiðir atkvæði á móti. Bókasafnið flytur í Hljómahöll Á trúnó-tónleikum í Hljómahöll fá gestir að upplifa mikla nánd við lista- mennina. Tónleikarnir fara fram í Bergi sem rúmar um 100 gesti og er þó engu til sparað þegar kemur að hljóðgæðum eða lýsingu á tónleikunum. Mætti jafnvel lýsa þeim sem stórtón- leikum í litlum sal. Hin frábæra hljómsveit Valdimar ætlar að koma fram á tvennum trúnó-tónleikum á meðan Ljósanæturhátíðinni stendur í ár. Fyrri tónleikarnir fara fram þriðjudagskvöldið 3. september. Á þeim tónleikum mun sveitin leika öll lögin af plötunni Batnar útsýnið sem kom út árið 2014. Seinni tón- leikarnir fara fram miðviku- dagskvöldið 4. september og mun hljómsveitin taka fyrir plötuna Sitt sýnist hverjum sem kom út árið 2018. Húsið opnar kl. 19 og tón- leikar hefjast kl. 20 bæði kvöldin. Bjartmar Guðlaugsson og Bergrisarnir verða á trúnó á tónleikum í Bergi í Hljóma- höll þann 10. október. Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikar hefjast kl. 20:00. Bjartmar þarf vart að kynna fyrir nokkrum tónlistarunn- anda en lög hans og texta þekkja allir! Bjartmar hefur gefið út 16 sólóplötur á ferli sínum og er því af nægu að taka. Hver veit nema að lög á borð við Týnda kynslóðin, Ég er ekki alki, Súrmjólk í há- deginu, Fimmtán ára á föstu, Járnkarlinn, Sumarliði er fullur, Þannig týnist tíminn, Negril eða hans nýjasta lag Af því bara fái að hljóma á tón- leikunum þann 10. október? Hljómsveitin hefur verið iðin við tónleikahald undan- farið og útgáfu á nýjum lögum og textum eftir Bjartmar og má þar nefna, Á ekki eitt einasta orð, Af því bara og nýjasta lagið þeirra Veistu hver ég er? Bergrisarnir eru Bjartmar Guðlaugsson, Júlíus Freyr Guðmundsso, Arnar Gíslason, Birkir Rafn Gíslason og Daði Birgisson. Valdimar á trúnó á Ljósanótt Bjartmar og Bergrisarnir verða á trúnó n Hljómahöll hentar vel fyrir bókasafn, rokksafn og tónlistarskóla, segir í niðurstöðu stýrihóps um flutninginn. vf is 4 // víkurFrÉttir á SuðurnESjuM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.