Víkurfréttir - 26.06.2024, Síða 4
Tillaga stýrihóps vegna flutnings Bókasafns Reykjanesbæjar í Hljóma-
höll ásamt kosntaðaráætlun var samþykkt á fundi bæjarráðs Reykja-
nesbæjar síðasta fimmtudag. Vinna verkefnahóps um flutning bóka-
safnsins í Hljómahöll leiddi í ljós að húsnæði Hljómahallar hentar vel
undir þá fjölbreyttu menningarstarfsemi sem um ræðir.
Tillagan, sem var samþykkt á
fundinum, inniheldur skiptingu
á rýmum Hljómahallar á milli
aðila sem þar verða með heimilis-
festi. Sömuleiðis er farið yfir þær
framkvæmdir sem ráðast þarf í
til að allar stofnanir nái að þróa
áfram blómlega starfsemi í breyttu
starfsumhverfi með metnaðarfulla
þjónustu við íbúa að leiðarljósi.
Helstu kostnaðarliðir vegna
verkefnisins eru hönnun og undir-
búningur, stofnbúnaður bókasafns,
geymslurými á lóð, flutningur á
vörumóttöku, hljóðeinangraður
veggur, útdraganleg stúka í Bergi,
ný framsetning á rokksýningu,
hönnun og uppsetning á framtíð-
arsýningu Rokksafnsins, bókunar-
kerfi við rými, loftræsting og hljóð-
einangrun í tónlistarskóla, úrbætur
á móttöku o.fl.
Í greinargerð með bókun í bæjar-
ráði í morgun segir að flestir kostn-
aðarliðir og verkefni sem tekin eru
saman í tillögunni hafa sannarlega
legið fyrir í nokkurn tíma óháð
breytingum á Hljómahöll. Mætti
segja að þar sé um að ræða eðli-
legt viðhald og undirbúning frekar
en sértækan kostnað vegna þessa
verkefnis. Hvað varðar geymslu-
rými á lóð þá er stærstur hluti þess
kostnaðar fjárfesting í lausum
einingum sem eflaust má selja
eða setja í aðra notkun ef breyting
verður á aðstöðumálum Hljóma-
hallar á komandi árum.
Bókun í bæjarráði frá Margréti
A. Sanders (D):
„Sjálfstæðisflokkurinn leggur
til að fyrst verði unnið að stefnu-
mótun um framtíðarfyrirkomulag
í húsnæðismálum stofnana og
samhliða því önnur aðstöðu- og
húsnæðismál sem tengjast menn-
ingarstarfsemi í Reykjanesbæ áður
farið er í umfangsmiklar og kostn-
aðarsamar breytingar á Hljómahöll
enda segir í tillögu stýrihóps eftir-
farandi:
„Hins vegar snýr tillagan að
því að á haustmánuðum 2025
verði skipaður verkefnahópur á
vegum Reykjanesbæjar sem mun
vinna tillögur varðandi framtíðar-
fyrirkomulag í húsnæðismálum
stofnana í Hljómahöll og sam-
hliða því önnur aðstöðu- og hús-
næðismál sem tengjast menningar-
starfsemi í Reykjanesbæ. Í þeirri
vinnu verði sérstaklega horft til
þeirrar íbúafjölgunar sem vænst
er í samfélaginu og mögulegra
viðbragaða við auknu umfangi og
þjónustu stofnana“.“
Bókun í bæjarráði ásamt
greinargerð frá Halldóru Fríðu
Þorvaldsdóttur (B), Bjarna Páli
Tryggvasyni (B), Guðnýju Birnu
Guðmundsdóttur (S), Valgerði
Björk Pálsdóttur (Y) og Margrét
Þórarinsdóttur (U):
„Fulltrúar Framsóknar, Sam-
fylkingar, Beinnar leiðar og Um-
bótar í bæjarráði samþykkja tillögu
stýrihópsins sem varða flutning
bókasafnsins í Hljómahöll. Tillög-
urnar snúa að kostnaðarliðum sem
tengjast bæði rekstri og eignfærslu.
Samþykkt er að vísa 14 millj-
ónum í viðauka við fjárhagsá-
ætlun 2024 og 155 milljónum í
viðauka við fjárfestingaáætlun
2024. Gert er ráð fyrir geymslu-
rými á lóð Hljómahallar innan
þess kostnaðar sem bæjarráð vill
að unnið verði meira með t.d. með
tilliti til stærðar og því hvort hægt
er að nýta einingar sem sveitar-
félagið á þegar þær losna á næsta
ári. Bæjarráð vísar hluta tillaganna,
þ.e. kaupum á útdraganlegri stúku
í Berg og hönnun og uppsetningu á
framtíðarsýningu Rokksafnsins til
fjárhagsáætlunarvinnu 2025.
Ferill málsins
Á 1457. fundi bæjarráðs þann 29.
febrúar sl. var tekin ákvörðun um
að vinna áfram í flutningi Bóka-
safns Reykjanesbæjar í Hljóma-
höll og var sú ákvörðun staðfest
með meirihluta atkvæða á 671.
fundi bæjarstjórnar þann 5. mars
sl. Í kjölfarið var ráðinn verkefna-
stjóri og skipaður vinnuhópur
sviðsstjóra, stjórnenda og bæjar-
fulltrúa til að vinna að útfærslu á
ákvörðuninni og var honum ætlað
að skila útfærðum tillögum til
bæjarráðs með kostnaðaráætlun.
Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir ráð-
gjafi hefur leitt verkefnið en hún
hefur viðamikla reynslu í menn-
ingarmálum og í málefnum tón-
listarskóla og var m.a. í undirbún-
ingshópi fyrir byggingu Menn-
ingarhússins Hofs á Akureyri, var
framkvæmdastjóri Hofs um árabil
og er núverandi stjórnarformaður
í Hörpu.
Verkefnastjóri hefur, ásamt
pólitískum fulltrúum, haldið
stutta kynningu á hugmyndum
með starfsmönnum stofnananna.
Brugðist var við ábendingum sem
fram komu á þessum fundum eftir
fremsta megni og hafa tillögurnar
sem samþykktar eru hér í dag verið
samþykktar samhljóða af öllum í
verkefnahópnum.
Tillagan sem hér er samþykkt
inniheldur skiptingu á rýmum
Hljómahallar á milli aðila sem þar
verða með heimilisfesti. Sömuleiðis
er farið yfir þær framkvæmdir sem
ráðast þarf í til að allar stofnanir
nái að þróa áfram blómlega starf-
semi í breyttu starfsumhverfi með
metnaðarfulla þjónustu við íbúa
að leiðarljósi. Til viðbótar við þau
atriði sem nefnd eru hér að ofan
var horft til skilgreindra lykilþátta
árangurs hjá hverri stofnun sem
starfandi er í Hljómahöll og fyrir
bókasafnið.
Helstu kostnaðarliðir vegna
verkefnisins eru hönnun og undir-
búningur, stofnbúnaður bókasafns,
geymslurými á lóð, flutningur á
vörumóttöku, hljóðeinangraður
veggur, útdraganleg stúka í Bergi,
ný framsetning á rokksýningu,
hönnun og uppsetning á framtíð-
arsýningu Rokksafnsins, bókunar-
kerfi við rými, loftræsting og hljóð-
einangrun í tónlistarskóla, úrbætur
á móttöku o.fl.
Flestir kostnaðarliðir og verk-
efni sem tekin eru saman í til-
lögunni hafa sannarlega legið fyrir
í nokkurn tíma óháð breytingum
á Hljómahöll. Mætti segja að þar
sé um að ræða eðlilegt viðhald og
undirbúning frekar en sértækan
kostnað vegna þessa verkefnis.
Hvað varðar geymslurými á lóð þá
er stærstur hluti þess kostnaðar
fjárfesting í lausum einingum
sem eflaust má selja eða setja í
aðra notkun ef breyting verður á
aðstöðumálum Hljómahallar á
komandi árum.
Það er ánægjulegt að vinna verk-
efnahópsins hefur leitt það í ljós að
húsnæði Hljómahallar hentar vel
undir þá fjölbreyttu menningar-
starfsemi sem hér um ræðir. Í til-
lögunni felst að allar stofnanirnar
geta áfram sinnt þeirra metnaðar-
fulla starfi og að Hljómahöll geti
áfram haldið vel utan um 700–800
manna viðburði og Rokksafnið
verður áfram tryggt innan Hljóma-
hallar.
Við þökkum Ingibjörgu og verk-
efnahópnum fyrir þeirra vönduðu
vinnu til þessa en það er mat okkar
að verkefnið hafi verið vel unnið og
hefur hópurinn verið opinn fyrir
þeim tækifærum sem geta skapast
til enn meiri vaxtar og fyrir þeim
samþættingarmöguleikum sem
samvinna þeirra stofnana sem hér
um ræðir getur falið í sér.
Við sjáum gríðarleg tækifæri og
hlökkum til að sjá menningarhúsið
Hljómahöll vaxa og blómstra enn
meir með fjölbreyttri menningar-
starfsemi sem íbúar og notendur
þjónustunnar munu njóta góðs af.“
Á fundinum samþykkti bæjarráð
með fjórum atkvæðum að vísa 14
milljónum í viðauka við fjárhagsá-
ætlun 2024 og 155 milljónum í
viðauka við fjárfestingaáætlun
2024. Gert er ráð fyrir geymslu-
rými á lóð Hljómahallar, innan
þess kostnaðar sem bæjarráð vill
að unnið verði meira með, t.d. með
tilliti til stærðar og því hvort hægt
er að nýta einingar sem sveitar-
félagið á þegar þær losna á næsta
ári. Bæjarráð vísar hluta tillaganna
þ.e. kaupum á útdraganlegri stúku
í Berg og hönnun og uppsetningu á
framtíðarsýningu Rokksafnsins til
fjárhagsáætlunarvinnu 2025. Mar-
grét A. Sanders greiðir atkvæði á
móti.
Bókasafnið flytur í Hljómahöll
Á trúnó-tónleikum í
Hljómahöll fá gestir að
upplifa mikla nánd við lista-
mennina. Tónleikarnir fara
fram í Bergi sem rúmar
um 100 gesti og er þó engu
til sparað þegar kemur að
hljóðgæðum eða lýsingu á
tónleikunum. Mætti jafnvel
lýsa þeim sem stórtón-
leikum í litlum sal.
Hin frábæra hljómsveit
Valdimar ætlar að koma fram
á tvennum trúnó-tónleikum á
meðan Ljósanæturhátíðinni
stendur í ár. Fyrri tónleikarnir
fara fram þriðjudagskvöldið 3.
september. Á þeim tónleikum
mun sveitin leika öll lögin af
plötunni Batnar útsýnið sem
kom út árið 2014. Seinni tón-
leikarnir fara fram miðviku-
dagskvöldið 4. september og
mun hljómsveitin taka fyrir
plötuna Sitt sýnist hverjum
sem kom út árið 2018.
Húsið opnar kl. 19 og tón-
leikar hefjast kl. 20 bæði
kvöldin.
Bjartmar Guðlaugsson og
Bergrisarnir verða á trúnó á
tónleikum í Bergi í Hljóma-
höll þann 10. október. Húsið
opnar kl. 19:00 og tónleikar
hefjast kl. 20:00.
Bjartmar þarf vart að kynna
fyrir nokkrum tónlistarunn-
anda en lög hans og texta
þekkja allir! Bjartmar hefur
gefið út 16 sólóplötur á ferli
sínum og er því af nægu að
taka. Hver veit nema að lög
á borð við Týnda kynslóðin,
Ég er ekki alki, Súrmjólk í há-
deginu, Fimmtán ára á föstu,
Járnkarlinn, Sumarliði er
fullur, Þannig týnist tíminn,
Negril eða hans nýjasta lag Af
því bara fái að hljóma á tón-
leikunum þann 10. október?
Hljómsveitin hefur verið
iðin við tónleikahald undan-
farið og útgáfu á nýjum lögum
og textum eftir Bjartmar
og má þar nefna, Á ekki eitt
einasta orð, Af því bara og
nýjasta lagið þeirra Veistu
hver ég er?
Bergrisarnir eru Bjartmar
Guðlaugsson, Júlíus Freyr
Guðmundsso, Arnar Gíslason,
Birkir Rafn Gíslason og Daði
Birgisson.
Valdimar á trúnó
á Ljósanótt
Bjartmar og
Bergrisarnir
verða á trúnó
n Hljómahöll hentar vel fyrir bókasafn, rokksafn og tónlistarskóla, segir í niðurstöðu stýrihóps um flutninginn.
vf is
4 // víkurFrÉttir á SuðurnESjuM