Islande-France - 01.11.1947, Blaðsíða 6

Islande-France - 01.11.1947, Blaðsíða 6
4 ÍSLANL)É - FRANCE MARC BLANCPAIN, AÐALRITARI ALLIANCE FRANCAISEl L'ALLIANCE AL L I A N C E FRANQAISE er félagsskapur af góðu bergi brot- inn. Var til hans stofnað i júlímán- uði 188IÍ fyrir for- göngu ágætra Frakka. Undir for- ystu herra Paul (iambons lögðu þeir grundvöll að allsherjar félagssamtökum til vernd- ar og viðgangs franskri tungu og iðkun hennar. Samtökum þessum óx brátt fiskur um hrygg. Árið 1884 voru meðlimir sambandsins 4500 að tölu, en tíu ár- um síðar voru þeir orðnir yfir 30 þúsund. Á heimssýningunni árið 1900 hlaut Alliance frangaise eigin sýningarskála. Með ráðum og dáð studdu félög sambandsins í 25 lönd- um heims þá þegar kennslu i frönsku cða héldu henni uppi. Nokkuð dró úr þessari glæsilegu þróun í heimsstyrjöldinni fyri’i. A þeim örðugu baráttu- og stríðsárum urðu þó til næstum því öll frönsku félögin í Suður-Amex’íku, sem nii ei’u meðal hinna blómlegustu. En hvað um það, allt frá 1920 rak Alliance frangaise víðtækt starf endurskipulagningar og treysti ör- ugglega aðstöðu sína í Miðjarðar- hafslöndunum og í löndum Engil- saxa. Hafði hr. Raymond Poincaré FRANCAISE um það forgöngu. Varð tala með- lima brátt yfir 200.000 og árið 1929 var lnin orðin 500.000. A sambands- þingi, sem haldið var í París 1931, sendu 800 félagsstjórnir fulltrúa fyr- ir sína hönd. Voru þeir úr 42 lönd- um. Á stríðsárunum 1939—1945 varð Alliance frangaise fyrir enn meiri áföllum en í stríðinu 1914—1918. Þjóðverjar rændu bygginguna í Raspail-breiðgötu og þröngvuðu fi’önsku félögunum í herteknu lönd- unum til að hætta störfum eða í’eka starfsemi sína á laun. En i frjálsum löndum slokknaði ekki ljósið á lampa samtakanna, og áx’ið 1943 kom sam- an stjórnarráðstéfna undir forsæti de Gaulles hershöfðingja. 1 París, tæpunx nxánuði eftir flótta Þjóðverja, 29. sept. 1944, var aftur hafizt handa í Raspail-breiðgötu og sambandi aftur komið á nxeð gamla húsinu og útbúum þess í víðx’i ver- öld. Þegar veturinn 1944—1945 fluttu fyrirlesarar fi’á Alliance frangaise boðskap liins fi-jálsa Frakklands til útlanda og sambandslandanna frönsku. Ungir kennarar héldu að heiman og leystu af hólmi hina fyrri eða konxu sér fyi’ir i nýjum stöðunx; l’Ecole pratique í Paxás tók við her- mönnum bandamanna og útlendum stúdentum; bókasöfnum vorum er- lendis bai’st nýtt blóð frá Pax’ís.

x

Islande-France

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Islande-France
https://timarit.is/publication/1955

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.