Islande-France - 01.11.1947, Page 17

Islande-France - 01.11.1947, Page 17
ISLANDE - FRANCE 15 ástandi með því að auðvelda aðgang- inn að frönskunámi við ýmsa land- skóla og láta kennslu hinna frönsku kennara ná til fleiri þjóðfélagsstétta. Þannig hefir t. d. verið komið á fót í Portúgal kvöldnámskeiðum með því nær ókeypis aðgangi, og sóttu þau um 1200 manns, scm flestir höfðu úr litlu að spila. Eftir sigurinn 1918 var frægð Frakklands slík hernaðarfrægð og hetjudáðir að ])að var tiltölulega auðvelt að lciða útlendinga til þeklc- ingar á franskri tungu og franskri menningu. Af tungu vorri stafaði þá í heiminum, um nokkurra ára hil, líkur Ijómi og á 18. öld í hinni siðmenntuðu Evrópu. En hinn hern- aðarlegi ósigur 1940 og hin langa 4 ára nótt, sem honum fylgdi, batt skjótan enda á þetta. I herteknu löndunum gerði óvinurinn, sem öfundaði oss af þessum Ijóma, sér allt far um að láta hann hverfa, ýmist með ofbeldi eða lævísi. Tjónið varð þó miklu minna en búast mátti við, og síðan 1944 hafa framkvæmdir verið slíkar, að aðal- ritari Alliance Francaise, herra Marc Blancpain, hefir nýlega komizt þann- ig að orði, „að aðstaða franskrar tungu í heiminum er betri nú en 1939.“ Ástæðurnar fvrir þessari stað- reynd eru margar, en höfuðástæðan er sú, að þegar örbirgðin og hin efnalega eymd skall yfir oss, varð oss það greinilega Ijóst, að tunga vor og andi voru hin traustustu verð- mæti, sem vér áttum til, og að oss bar skylda til að bjóða þau umheim- inum. Sú deild utanríkisráðuneytis- ins, sem hefir menningarlega starf- semi með höndum, hefir ckki mikil efni til umráða, ef liorið er saman við slíkar stofnanir annarsstaðar, cn fulltrúar hennar og kennarar hitta allsstaðar fyrir sér menn, sem meta mikils franska menningu og eru þeim því til trausts og halds. Þau eru því allmörg ennþá löndin, þar sem frönsk tunga er iðkuð. Vér nefnum aðeins nokkrar tölur, scm tala sínu máli. I Grikklandi eru nú 9000 nemendur í skólum Alliance Fran^aise á móti 2500 árið 1939. Ilinn franski menntaskóli í Kairo tekur á þessu ári við 1800 nemcnd- um. A móti hverjum 300 nemendum hjá Alliancc Frangaise í Mclbournc fyrir ófriðinn, koma 400 árið 1944, 668 árið 1945 og 1230 árið 1946. Hinar hrasilisk-frönsku mennta- stofnanir, sem töldu ekki langt yfir 1500 innritaða nemendur árið 1944, töldu yfir 4000 árið 1946. Er hægt að segja, að keppni sé á milli ensku og frönsku? Eg held ekki. Hvor tungan um sig er með sínu sérstaka einkenni, hin fyrr- nefnda er tunga verzlunar og við- skipta, ferðalaga og tækni, lnin er og ágætlega fallin til ljóðagerðar. Hin síðarnefnda cr svo aftur á móti tunga réttarfarsins, samninga og sáttmála, heimspeki og hinna dýpstu andlegu samskipta, aðalsmerki and- ans. Ég vil svo enda á því að taka hér upp ummæli herra George Duhamel, sem hann viðhafði einu sinni i ræðu. „Allar tungur eru fagr- ar og virðingarverðar, þar eð þær lýsa mannlegri hugsun. Um vora tungu er það að segja, að vér höfum ekki í hyggju að þvinga henni upp

x

Islande-France

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Islande-France
https://timarit.is/publication/1955

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.