Islande-France - 01.11.1947, Page 18

Islande-France - 01.11.1947, Page 18
16 ISLANDE - FRANCE PIERRE DESCAVES: MINNING ALPHONSE DAUDET f ?IÐ rannsóknir, " sem gerðar hafa verið fyrir skömmu, bæði i Frakklandi og ut- anlands, hefir ó- tvírætt komið í ljós, að einn hinna mest lesnu höf- unda er stöðugt Alphonse Daudet. Höfundur skáld- sögunnar Jack og fimmtíu annarra skáldrita með vinsælum og alþýðleg- um heitum og hinn hugðnæmi sagna- þulur myllubréfanna heldur þannig ennþá við lýði aðdáuninni á sér, bók- menntalega talað, aðdáun, sem enn þann dag í dag lýsir sér í tónsmíð- um, sem sprottnar eru af verkum hans og einnig eru mjög dájðar, eins og til dæmis hið töfrandi lista- verk George Bizet um meyna frá Arles, þótt ei sé fleira nefnt. Og nú er mcnntamannastétt Frakklands að búa sig undir hátíða- liöld til minningar um Alphonse Daudet á fimmtugustu ártíð hans, en hann lést, sem kunnugt er í París hinn 16. desember 1897, fimmtíu og sjö ára að aldri, eftir langvinnan og erfiðan sjúkdóm. Hvernig sá sjúk- dómur ágerðist og hvaða áhrif hann hafði á hann, hefir hann greint frá í „athugasemdum“, sem lýsa dásam- legri hugarró og karlmannlegri stað- festu. Þessi dagbók sjúklings var gefin út af mikilli ræktarsemi fyrir um það bil tuttugu árum og kölluð La Douleu (smækkunarorð af douleur, og á að merkja þá þján- ingu, sem maðurinn hefir náð valdi yfir). 1 desembermánuði 1940 var al- menningi opnuð minningarsýning innan veggja Musée Carnavalet, í tilefni fæðingar skáldsins í Nímes (13. maí 1840). En þá voru hinir dimmu dagar ])ýzka hernámsins gengnir yfir landið, svo þessi at- burður fór fyrir ofan garð og neðan. En athöfnin í desember 1947 verður með öðrum hætti, og margvíslegt A. DAUDET á nokkurn mann í eiginhagsmuna- skyni, né halda henni fram sem elju neinnar annarar. Vér segjum aðeins, að hún húi yfir óvenjulegu afli, sam- kvæmni, þokka og skýrleika, en allt þetta þráir mannkynið, efalaust vegna þess, að það finnur á sér, að allt þetta er því ómissandi til and- legs frelsis, og vér viljum einnig halda þvi fram, að hún sé lykill að allverulegum bókmenntum, að hún sé dásamlegt verkfæri til andlegrar vinnu, og að hún sé mikilvægt mál mannlegra samskipta, beinn arftaki hinna fornu tungna og siðmenningar við Miðjarðarhaf, og þannig alger- lega ómissandi tæki fagurfræðilegra iðkana vorra tíma.“ André Rousseau,

x

Islande-France

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Islande-France
https://timarit.is/publication/1955

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.