Islande-France - 01.11.1947, Síða 20

Islande-France - 01.11.1947, Síða 20
18 ÍSLANDE - PRANCK mælikvarða og fagran en haí'a þó til hliðsjónar liðna tíð og vera gædd- nr nanðsynlegri sálarró. Alphonse Daudet var vissulega ekki frekar en hin eldri samtíðarskáld hans, Gon- court-bræður, gæddur lyndiseinkunn hins skapandi snillings. í öllum bók- Um sínum þarf bann stöðugt að styðjast við veruleikann, við per- sónulega atburði, sem annaðhvort bann sjálfur eða vinir hans böfðu reynt. Hann skáldar alltaf út frá sönnum viðburðum. A móti þessu vegur svo hið næma lífsviðhorf bans, bin aðlaðandi lýsing á tíðarandan- um, frábær frásagnarhæfileiki og síðast en ekki sízt stílsnilldin. Hjá honum var lífsviðhorfið, lífs- tilfinningin, í samræmi við samúð bans með öllu lifandi; hann var mannvinur og tólc þátt í lífskjörum þeirra af bjartnæmum innileik og blíðu. Enginn skáldsagnahöfundur lionum samtíða er jafn víðs fjarri og hann hinni kaldhæðnu óhlutdrægni manns eins og Flaubert eða hinni illkvitnu og meinfýsnu hlutlægni náttúruhyggjumannanna. Nægir í þessu efni að benda á eitt dæmi. Skáldsagan Jack eftir hann (þótt ekki sé sú bezta af verkum hans) hefir komið út og kemur ennþá út tárunum engu síður en David Copp- erfield eftir Charles Dickens. Þján- ingafull og eyðilögð mannsæfi vekur hjá höfundinum hryggð og gremju samtímis, og hann kemur oss líka til að finna til þess sama. Þessar sömu tilfinningar hafa leitt hann til að semja aðra bók, frábæra, l’Evan- géliste, sem lýsir mannsæfi, sem eyði- lögð er af ofstækisfullum kvenpré- dikara. Þá er að nefna snilldarritið Sapho, þar sem lýst er æfi trúðleik- ara eins, sem fer í hundana vegna ástamáia, og er sama efni einnig gerð skil í Les Femmes d’artistes. Þótt Les Rois en exil sýni, að ekki verði þess krafizt af skáldinu að lýsa Parísarlífinu neðan frá (flestar bera bækur hans undirtitilinn Moeurs Parisiennes) verður Daudet samt sem áður frábær lýsandi siðvenj- anna, þ. e. a. s. lýsandi á siðum og liáttum millistéttanna, hins daglega, raunverulega, sanna og áþreifanlega fólks. Að vísu lýsir hann ekki hinu stórbrotna, mikilfenglega leiksviði lifsins, heldur hinu hversdagslega lífi, sem rennur fram í lygnum straum, sem slær á bliki glaðværð- ar og hins létta gamans, er var einn snari þátturinn í lyndiseinkunn þessa suðurfrakkneska manns. Þá má vissulega ekki gleyma öllu því, sem hinn dáði höfundur að Tar- tarin de Tarascon á að þakka sínu provensalska umhverfi. Þessi Nimes- verji var fæddur félibre, og honum er eðlilegt, að strá salti hinna próv- ensölsku sagnasnillinga í nokkur rita sinna. Þessum suðurfrönsku „typ- um“ var framúrskarandi vel tekið. En ekki væri samt rétt að skoða þær sem sannsögulegar persónur eða ein- kenni suðurfransks hugsunarháttar eins og samtíðarmenn hans gerðu. I Tartarin og Numa Roumestan hef- ir höfundurinn búið söguhetjurnar til, sem skemmtimyndir (karikatur) og til útflutnings. Að vorri hyggju er þetta sá þáttur verka hans, sem einna helzt er nú farinn að dofna, en aftur á móti verða Contes du

x

Islande-France

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Islande-France
https://timarit.is/publication/1955

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.