Islande-France


Islande-France - 01.11.1947, Qupperneq 23

Islande-France - 01.11.1947, Qupperneq 23
ISLANDE - FRANCE 21 Sem ferðamaður hefir Marmier áttað sig vcl á sérkennum og feg- urð hins íslenzka landslags. Hann sá ekki aðra mcrkisstaði en Þing- velli, Geysi og Hcklu. En allt vakti þetta mikla hrifningu í brjósti hans. Þannig skrifar hann: „Þetta land, Island, er svo fagurt og svo tignar- legt, að sá, sem sér það, gleymir því aldrei“. Lýsing hans á Þingvöllum er samboðin staðnum; eða á að minnsta kosti að vera það. Og hér er lýsing lians á útsýninu frá hæð einni við Reykjavík: „Svissnesku fjöllin, Pyreneafjöllin og Alpafjöllin hafa ekki til að hera þenna tæra litblæ, þessi Ijómandi litbrigði, sem málarinn dáist að án þess að geta lýst þeim . . . Á þessari stundu her allur ])essi hluti Islands keim af landslagi við Miðjarðarhaf. Miðjarð- arhafið er ekki tærara en þetta haf hér í norðri, og himinn Suðurlanda ekki fegurri“. Hann notar þessar samlíkingar til þess að gefa hug- mynd um hin sterku áhrif, sem liann hefur orðið fyrir, en annars var hon- um fyllilega ljóst, að Island átti hvergi sinn líka. „Islandssaga“ hans, sem er 400 blaðsíður, skiptist í kafla, er svara til aðaltímabilanna í sögu landsins og til höfuðeinkennanna í menningu ]>ess. Hér eru dregnar meginlínurn- ar í sögu landsins, án þess að hægt sé að finna neinar meiriháttar skekkjur — að minnsta kosti að því er heildina snertir. Þar er ritgerð um „Ultima Thule“, sem hann reyn- ir að ákveða, hvaða land sé, eins og svo margir aðrir á undan honum. Og hann getur þess réttilega, að höf- undar þeir, sem um það hafa talað, hafi heimfært ])etta nafn upp á mis- munandi lönd. 1 bókinni er lýsing á landinu, saga landnámsins, þar sem hann styðst við Landnámu, stofnun Al])ingis, kristnitakan. Þar nemur hann staðar og lýsir i tveim- ur löngum köflum goðafræði Norð- urlanda og hinum fornu siðum Is- lendinga. Hann reynir að gera grein fyrir víkingunum og þcirra háttum og varar við að taka það trúanlegt, hvernig þeim er lýst af höfundum frá þeim þjóðum, sem áttu að húa við rán þeirra og gripdeildir. Hann telur einnig upp dyggðir þeirra: orð- heldni, trúfestu gagnvart vinum og vandamönnum, gestrisni, hugrekki og viðhjóð á lýgi. Þá talar hann um hinar miklu menningarlegu fram- farir, sem klaustrin og skólarnir hafi haft í för með sér. Og síðan er lýs- ing á því, hvernig höfðingjastjórnin hreyttist í fámennisstjórn, hún aft- ur i stjórnleysi, sem endaði með því, að þjóðin glataði sjálfstæði sínu. Hann hefir gert fulla grein fyrir því, að upptökin að ógæfu og hnign- un íslenzku þjóðarinnar eru þau, að Islendingar missa skip og glata þar mcð verzluninni úr höndum sér. Og hann lýsir rétt og átakanlcga hin- um ömurlegu afleiðingum dönsku cinokunarinnar. Xavier Marmier á miklar þakkir skildar fyrir það, að i bókmennta- sögu hans kemur fram glöggur skiln- ingur á þýðingu og ágæti miðalda- bókmennta íslendinga. Hann sekkur sér fyrst og fremst niður í Eddurnar, þýðir sum Eddukvæðin og reynir að gefa nákvæma hugmynd um efni

x

Islande-France

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Islande-France
https://timarit.is/publication/1955

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.