Voröld - 15.02.1949, Síða 22
hitt og petta
.—■+
• |l II —»II l| II l| mmm IIII awN H.
Kosmngarnar í Israel í
íyrra mánuði voru fjörugar í
meira lagi, enda 'buðu 21
flokkur fram. Þótti' þctta
minna á gamlan húsgang í
Evrópu, sem er svona:
Atta menn lentu á eyðieyju
eftir skipstrand. Tveir þeirra
voru Englendingar. Þeir tök
uðu ekkj saman, ,af því að
enginn ’kynnti þá hvorn fyrir
öðrujn. Tveir voru Skotar.
Þeir stofnuðu Robert Burns-
félag. Tveir voru Irar. Þeir
rifust svo mikið, að báðir
hlutu bajia af. Loks voru
tveir Gyðingar. Þeir stofn-
uðu fimm pólitíska flokka.
Aðalfiokkarnir í Israel eru
jafnaðarmenn Ben Gurions
og ,,frelsishreyfing“ Mena-
chim Beigin, en hann stjórn-
aði áður Irgun Zwai Leumi
hef ndar verkaflokknum. And-
stæðingúm Ben-Gurions
finnst hann heldur umsvifa-
mikill. Þeir segja þá sögu, að
Stalin hafi fengið mikil-
mennskuæði. Hann hafi geng-
ið um gólf, rifið hár sitt og'
hrópað: Ég' er eBn-Gurion,
Ég er Ben-Gurion!
Stuðningsmenn Ben-Guri
ons voru ekki lengi að svara
þessu.Þeir sögðu, að floltkur
Beigins væri einstæður í
siimi röð, því að hann vaeri
eni fasistaflokkur heimsins,
sem ekki hefði Gyðingahatur
á stefnuskrá snni!
*
Danski herforjnginn, Major
Juel, sem er fulltrúi Dana í
Berlín', var beðinn að tala á
þýzkri barnaskemmtun. Hann
skýrði frá jólum í Kaup-
jnannahöfn og lífverði kon-
ungsins. Á eftir i-æðu hans
lögðu þýzku börnin fyrir
hann spurningar: Hvers kon-
ar einkennisbúningujn ganga
danskir hermemi í? Hvers
konar vopn bera þeir? Hvað
eru margir menu í hvej-ju
herfylki í Danmörku?
Ég undirritaður óska að gerast kaupandi að frétta-
tímaritinu VORÖLD, sem verður sent mér í pósti og inn-
heimt með póstkröfu.
Nafn
Heimili
Jil timarifsins VORÖLD,
Alþýðuhúsinu. Reykjavik.
v
oo
V O R Ö L D