Voröld - 15.02.1949, Side 23

Voröld - 15.02.1949, Side 23
* 1>lö<l og útvarp Mánudagsblaðið Jón Reyikvíkingur.ihefur nú urn nokkurra mánaSa skeið verið eitt af eftirlætis umræðu1- efnum manna við kaffiborð bæjarins. Margir fullyrða, hver hann sé, en enginn getur sannað tilgátur sinar. Það er talað um Guðbrand Jónsson prófessor (hann neitar opin- berlega), Karl Ísfeld, Vilmund Jónsson, Einar Magnússon, Boga Olafsson, Tómas Guð- mundsson, Jónas Sveinsson, Svein Bergsveinsson og marga fleiri. Hver, sem hann er, þá er Jón Reykvíkingur vinsæl- asti liður Mánudagsblaðsins, og að spyrja ritstjóra blaðsins um þennan dularfuilla rithöf- und, er svipað og að ávarpa Esjuna. Þetta er þó aðeins ein af mörgum -gátum, isem mönnum er tíðrætt ura í sambandi við Mánudagsblaðið. Hverjir standa á bak við það? Hver skrifar árásargreinar blaðs- ins? Ilver er þessi ritstjóri? Sumum þessara snurninga er hægt að fá svar við. Ritstfór- inn fullyrðir og leggur á það áherzlu, að engir dularfullir valdamenn standi á bak við rjtið, það sé hans afsprengi og eign. Hann segist sjálfur hafa skrifað allar forsíðugreinar blaðsins, sem mesta athygli hafa vakið. Og varðandi það, hver ritstjórinn sé, því er auðsvarað. Agnar Bogason er sonur Boga Ólafsisonar yfirkennara. Hann er 27 ára gamall, varð stúdent 1940, fór veslur um haf, var í Texas við tann- læknanám í tæplega tvö ár, hættj við það og tók upp V O R Ö L D ,, ; Í ! stjórnmálanám í Chicago. Hann . kom heim 1946, vann tæplega ár við Morgunblaðið, en stofniaði svo Mánudagsblað- ið síðastliðið haust. Tilgangur Mánudagsblaðs- ins er, að sögn ritstjórans, að taka fyrir mál, sem pólitisku flokkarnir leiða hjá sér af ein- hverjum ástæðum. Af slíkum málum hafa þrjú birzt með feitu letri á forsíðu blaðsins: 1) Verðlag á brennivíni á Borginni og fleira varðandi þá stofnunin; 2) Meðferð drukk- inna hjá lögreglunni, sérstak- Agnar Bogason. lega í kjallaranum. Mólið fór til rannsóknar á æðri stöðum; 3) Árásin á útgerðarmenn, sem varð til þess að LÍÚ boð- aði ritstjórann á fund til að standa fyrir máli sinu. Hann hlýddi auðvitað ekki boði þess dómslóls. Þjóðviljinn gaf snemma út dánarvot'torð fyrir Mánudags- 'blaðið. En hvort sem mönnum líkar betur eða verr sú teg- und blaðamennsku, sem þar er ' við Iíði, þá er þegar sannað, að hér -er markaður fyrir slíkt blað. Upplagið er nú, að sögn ritstjórans, 6.500. . ^ ■ ' rr^ MisJieppnuð -'fiif r»v ' 'r'i tilraun Snemma í styrjöldinni ný- afstöðnu hóf göngu sina í New York dagblað, er „PM“ nefndist, og var á marga lund nýstárlegt. Það birti engar auglýsingar, og setti frétta- efni sitt upp á svipaðan hátt og tímarit, • skilmerkilega flokkað. Blað þetta var rót- tækt í skoðunum, studdi mál- stað blökkumanna, Gyðinga og annarra kynflokka, sem ofsóttir hafa verið á ýrnsum stöðum í heiminum. Blaðið vakti athygli, og hlaut um 100.000 eintaka útbreiðslu. Mönnum kann að virðast það einkenniilegt, að á bak við þetta róttæka umbóta- blað stóð einn mesti auðkýf- ingur Bandaríkjanna, Mar- s'hall Field. En blaðið gat ekki borið sig, það stóðst ekki samkeppni auðvalds- blnðanna um fiöldahylli. Blaðið varð því að láta af þeirrj stefnu að birta ekki auglýsingar, en jafnvel það ráð 'duaði ekki. I fyrravor seldi Marshall Field „PM”, Hinir nýju eigendur skýrðu blaðið ,,Star“ og br-eyttu því á ýmsa .lund. Útbreiðslan jókst í 140 þús., en það var ekki nóg. Blaðið bar sig ekki, og rétt eftir nýárið hætti það að koma út. Þar með lauk merkilegri tilraun í blaða- mennsku á sorglegan hátt. 23

x

Voröld

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Voröld
https://timarit.is/publication/1956

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.