Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Side 22

Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Side 22
BJÖRN BJARNASON: Af alþjóðavettvangi Alþjóðaráðstefna vinnandi kvenna. Að tilhlutun Alþjóðasambands verkalýðsfélaga, WFTU, verður á næsta ári, 14—17 júní, haldin ráð- stefna vinnandi kvenna. Undirbún- ingsnefnd, sem í eru fulltrúar frá 9 löndum bæði innan og utan Aiþjóða- sambandsins, hélt fund 29. sept. til 2. okt. og gekk þar frá ávarpi og tillög- um að dagskrá. Tillögur hennar eru: Eining í launabaráttunni, fram- kvæmd kröfunnar um sömu laun fyr- ir sömu vinnu, gegn öllu misrétti, fyrir bættum vinnuskilyrðum, rétt- indamál kvenna og baráttan fyrir friði. Meiri þátttaka kvenna í starfi og stjórn verkalýðsfélaganna. Avarp undirbúningsnefndarinnar verður birt í næsta hefti Vinnunnar. Úr bréfi frá Portúgal. Portúgalska þjóðin, sem í 29 ár hefur orðið að búa við ógnarstjórn Salazar og fasistaklíku hans, er svift hinum frumstæðustu réttindum svo sem fundafrelsi og réttinum til að stofna félög. Engin frjáls verkalýðs- félög eru til og verkfallsrétturinn er afnuminn. Verkalýðsfélögin voru bönnuð 1934 en í þeirra stað myndaði Salazarstjórnin svokölluð „Þjóðleg verkalýðsfélög“, algerlega undir eft- irliti stjórnarinnar. Verkamenn eru skyldaðir til að vera í þessum félög- um og gjöld til þeirra eru tekin með öðrum sköttum. Verkamönnum er bannað að boða til funda í þessum félögum og forystu- menn þeirra eru tilnefndir af stjórn- arvöldunum eða pólitísku lögreglunni. Þrátt fyrir þessar hindranir reyna verka-menn að nota félögin sem bar- áttutæki og einstaka af hinum til- nefndu forystumönnum vinna með verkamönnum að hagsmunamálum þeirra, en eru þá ofsóttir af stjórn- arvöldunum. Margir þeirra sitja nú í fangelsum, dæmdir til langrar refs- ingar og er líf þeirra í yfirvofandi hættu. Þannig er með hinn ástsæla foringja portúgalska verkalýðsins, Alvaro Gunhal, sem setið hefir í fangelsi í Lissabon síðan í marz 1949. 1950 var hann dæmdur í 12 ára fang- elsi og eitt ár betur, til „öryggis“. Þessi viðbót, til „öryggis", getur orðið framlengd að geðþótta stjórnarvald- anna og jafngildir raunverulega lífs- tíðarfangelsi. Allan tímann hefur hann setið í eins manns klefa og er beilsa hans nú mjög farin að gefa sig. í fangelsum Salazarstjórnarinnar er 184 VINNAN og verkalýðurinn

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.