Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Page 37
BÁLKUR
Vísu þessa kvað hann, er hann
var að slá tjörn á Hofdölum:
Mina ýtar mega sjá
mynd af (evikjörum,
þar sem litið stararstrá
straumi flýtur köldum á.
F.inu sinni voru þeir saman í
vegavinnu Símon Dalaskáld og
jónas. Gisti Jónas í Miðhúsum en
Símon að Miðsitju.
Símon kvað:
Jónas glingrið girndar fljótt
gjörir stöðugt drýgja.
Þrúður yngri í alla nótt,
um hann fingrum vafði hljótl.
jónas kvað:
Ótilkvaddur oft til býr
óð af raddar brunni.
Sinnis gladdur sverða-Týr
svaf hjá maddömunni.
(Á Miðsitju bjó þá roskin
prests-ekkja).
Öðru sinni var Jónas að stríða
Símoni á því að honum gengi illa
að ná hylli stúlku nokkurrar, er
Símon tláði mjög. Þá kvað Símon:
Simon hylli svanna ber
söngva snillin veldur.
En ég held illur járnagrér
Jónas spilli fyrir mér.
Jónas svaraði:
Samt með snilli svo fram ber
svo þú tryllist þeygi:
Fyrir spilla þarf ei þér
þvi hiin vill þig eigi.
Yfir 1800 amerísk börn sem fædd eru
frá því í marz 1955 eru haldin einhverri
heilsufarsbilun af völdum vetnissprenginga
varið áður. „Hlutfallstala þeirra barna. sem
fædd eru með veilu í hjarta og heila sakir
geislaverkana er orðin ískyggileg“, upplýsir
hinn ameríski prófessor í eðlisfræði, F. Hutc-
hinson.
★
Ameríska blaðið „Míami Herald“ birti ný
lega þá tillögu að safnað verði sæði karl-
manna á öruggan stað, ef kjarnorkustyrjöld
kynni að brjótast út. Blaðið hélt því fram
að þetta mundi vera „hyggileg varúðarráð-
stöfun“ til viðhalds kyninu, því reikna mætti
með því, að karlmenn, sem lifa kynnu af
kjarnorkustyrjöld, yrðu óhæfir til frjóvgunar
vegna geislaverkunar. — En vér spyrjum:
Hví vilja kanar ekki banna kjarnorkuvopn?
★
„Skilið oss aftur landi voru“
Síðastliðið sumar henti það, að hið ame-
ríska setulið í Japan varð að leggja niður
skotæfíngar sínar í grennd við Fuschijama,
hið heilaga fjall Japana. Þetta gerðist með
þeim hætti, að 200 japanskir bændur skipu-
lögðu svokallaðan „setustræk", þeir neituðu
sem sé að víkja af skotæfingasvæðinu og
letruðu á kröfuspjöld sín: Skilið oss aftur
Iandi voru.“
VINNAN og verkalýðurinn(
Tjarnarg. 20, sími 7500 og 81077.
199