Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Side 41

Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Side 41
Stjórn Félags blikksmiða: Efri röð, talið' frá vinstri: Ólafur Jóhannesson, ritari, Hörður Helgason, varamað- ur í stjórn, Magnús Magnús- son, gjaldkeri. Neðri röð: Jón Rögnvaldsson, varamaður í stjórn, og Kjartan Guðmunds- son, formaður félagsins. og orðið mikið ágengt. í janúar 1941 háði það þriggja vikna verkfall; fékkst þá nokkur haekkun kaups og stytting vinnuviku. í september 1942 náðust mjög góðir samningar án verkfalls. Var þá samið um 48 st. vinnuviku, fast vikukaup og 12 daga sumarfrí. En um þessar mundir náðu flest félög svipuðum samningum. Um haustið 1944 átti félagið í tveggja mánaða verkfalli. — Á seinni árum hefur félagið oft orðið að heyja harða baráttu gegn sífelldum árásum auð- stéttarinnar á kjörin. Of langt mál yrði að rekja þá baráttu lið fyrir lið, en nægt getur að minna á verkföllin í des. 1952 og í marz—apríl s.l. — Það segir sig sjálft, að ekki stærra félag en okkar þarf að hafa góða sam- Ásgeir Matthíasson vinnu við önnur félög, og hefur slík samvinna tekizt með ágætum á seinni árum svo sem hið nána samstarf við Félag járniðnaðarmanna, Félag bif- vélavirkja og Sveinaféiag skipasmiða. Miðað við félagatölu hefur félagið komið upp all myndarlegum sjóðum, svo sem sjúkrasjóðum o. fl. — Þá má líka geta þess að félagið hefur látið til sín taka um skógrækt og er þegar búið að gróðursetja í Heiðmörk um 7—8000 plöntur.“ Þetta er nú orðin prýðileg skýrsla hjá þér, Kjartan En hvað getur þú meira sagt um félag þitt nú, í sam- bandi við tvítugsafmælið. ,,Ég hef nú eiginlega sagt í stuttu máli það, sem ég hef á takteinum úr starfssögu félagsins. En ég vil bara segja það að lokum, að tuttugu ára barátta okkar félags hefur ekki að- eins fært félagsmönnum marga og mikilvæga sigra á sviði hagsmuna og menningar; hún hefur efltsvo mjög og stælt okkar samtök, að við getum verið þess vísir, að Félag blikksmiða mun með fullum heiðri skipa sitt rúm í baráttu verkalýðssamtakanna almennt, fyrir því, að vinnandi fólk öðlist þá hlutdeild í þjóðartekjunum og það vald í þjóðfélaginu sem því ber.“ VINNAN ug verkalýðurinn 203

x

Vinnan og verkalýðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vinnan og verkalýðurinn
https://timarit.is/publication/1968

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.