Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Blaðsíða 44
ADDA BÁRA SIGFÚSDÓTTIR, formaður Æ.F.R.:
Kvenþjóðin og
kaupgjaldið
Alltof fáar stúlkur eru gæddar nægjanlegri forvitni til að hnýsast í
opinbera launasamninga, sem ekki koma þeim persónulega við og hætt er
við. að nokkuð skorti á að við lesum launasamninga eða lög okkar eigin stétta
ofan í kjölinn — eða hvernig mætti annars skýra það, hve sjaldan er ritað
og rætt um þá háðung sem kvenþjóðinni er gerð í ýmsum launasamningum.
Lítum fyrst á samninga Verzlunarmannafélags Reykjavíkur. Þeir eru
í tveimur liðum. Undir A-lið heyrir starfsfólk heildsölufyrirtækja og er því
skipt í 5 launaflokka. Þrír launahæstu flokkarnir eru eingöngu fyrir karl-
menn. Það er skýrt og ótvírætt tekið fram, þó innan sviga, eins og samnings-
menn hafi hálf slæma samvizku. Þar eru skrifstofustjórar, fulltrúar og bók-
arar (kariar). í 4. fl. kemur svo aðstoðarfólk á skrifstofum og er þeim flokki
þrískipt) a) Aðstoðar- og skrifstofumenn (kariar, með verzlunarskóla- eða
hliðstæða menntun) grunnlaun byrjanda 1573.00. Síðan kemur b-liður og
þá kemur ioks kvenfólkið. Þar eru vélritarar (konur og karlar), sem vinna
að bréfaskriftum á þremur erlendum málum, byrjunarlaun 1351.00. Að lokum
kemur svo annað skrifstofufólk (konur og karlar). í fimmta og síðasta flokki
eru sendlar. Það væri fróðlegt að vita, hversu margir karlmenn heyra undir
b og c lið í fjórða flokki. Grunur minn er sá að þar sé kvenþjóðin í öruggum
meirihluta. Það fáránlegasta við þessa samninga er þó, ef til vill það, að
hvergi er gert ráð fyrir konum með verzlunarskólamenntun. Þær vinna ef
til vill alls ekki hjá heildsölufyrirtækjum?
Ilvernig skyldi svo málum vera skipað hjá smásalanum?. Þar þurfum
við þó ekki lengra en ofan í annan flokk til að finna stúlkurnar. Þar eru deild-
arstjórar (konur). Deildarstjórar (karlar) eru aftur á móti í fyrsta flokki. í
þriðja flokki eru afgreiðslustúlkur með verzlunarskóla- eða hliðstæða mennt-
un en afgreiðslumenn (karlar) með sömu menntun eru flokki ofar eða í öðrum
flokki.
Sumir segja að kvenréttindabaráttan hafi þegar verið farsællega til lykta
leidd og kvenréttindakonur nútímans séu bara með nöldur af gömlum vana.
206
VINNAN og verhalýðurinn