Vinnan og verkalýðurinn - 01.12.1955, Page 52
uðu sig við að slíkar kringumstæður
væru ekki án fordæmis í mannheim-
um. Það var nefnilega alveg útilokað
að Elmar gæti verið faðir að kálf ■
inum. Aliur gauragangurinn á heims-
sýningunni hafði reynt svo á taugar
bola, að hann hafði algerlega misst
áhugann fyrir hinu kyninu. En þessi
staðreynd fékk ekki að kasta nein-
um skugga á gleðina yfir fæðingu
Beulah. Heillaóskaskeyti og bréf tóku
að streyma að frá öllum 49 fylkjum
ríkjasambandsins, forystumenn í op-
inberu lífi þjóðarinnar sendu viðeig-
andi skírnargjafir og stjörnuspámað-
ur reiknaði út framtíð Elsu eflir af-
stöðu ýmissa stjörnumerkja á fæðing-
ardegi hennar.
Samkvæmt stjörnuspánni átti Elsa
að deyja í hárri elli. Þetta reyndist
þó ekki rétt, því dauða hennar bar
að í umferðarslysi nokkrum árum
seinna, þegar hún var á leið til kvöld-
verðar í einum helzta matsölustað
New Yorkborgar, „Restaurant Sardi“.
Þetta skeði í maí-mánuði 1941, þegar
herir nazismans höfðu lagt undir sig
mest alla Evrópu, og teygðu sig fram
til heimsyfirráða. Flest blöð Banda-
ríkjanna vörðu þó meiru af rúmi sínu
í að skýra frá hinum sorglegu afdrif-
um Elsu, en til að birta leiðinlegar
frásagnir af málum hinnar þrasgjörnu
Evrópu. Þúsundir alvarlega þenkj-
andi manna sendu mjólkurhringnum
sorgarkransa og samúðarskeyti.
Það væri mikil fákunnátta um
bandaríska auglýsingatækni, ef menn
ímynduðu sér að erfidrykkjan hefði
orðið endir ævintýrisins um Elsu.
Brátt var ný Elsa komin fram á sjón-
arsviðið, og sú lét ekki minna að sér
kveða. Frá upphafi voru gerðar ráð-
stafanir til að tryggja nýju Elsu það
Það var sögulegt augnablik þegar
herir Sovétrikjanna og Bandaríkj-
anna mættust viff Elbufljót undir
stríffslokin 1945. — Myndin sýnir
Bandaríkjamenn úr hópi þeirra, er
viffstaddir voru á hinu sögulega
augnabliki hjá Elbu, stadda í Moskvu
í boffi s.I. sumar.
langlifi, sem stjörnurnar höfðu heitið
fyrirrennara hennar. Einum af starfs-
mönnum mjólkurhringsins datt það
snjallræði í hug, að láta vinsældir
og metorð Elsu skiptast jafnt á milli
þriggja einstaklinga. Hann viður-
kenndi seinna að hugmyndina hefði
hann fengið frá kenningum kristin-
dómsins um heilaga þrenningu. Síðan
214
VINNAN og verkalýðurinn