Goðasteinn - 01.09.1988, Page 210
Séra, Páll Pálsson,
Bergþórshvolsprestakall:
Þórhallur Guðjónsson
frá Þúfu
Hann var fæddur hinn 30. okt. árið 1913 að Stóra Hofi í Rangár-
vallahreppi. Var hann af skaftfellskum ættum kominn. Foreldrar
hans voru hjónin Einhildur Sveinsdóttir á Efri Fljótum í Meðal-
landi og Guðjón Magnússon í Fagradal í Mýrdal. Þau urðu 4 syst-
kinin: Þórhallur og 3 systur. Þær eru Sólveig M. Guðjónsdóttir á
Hellu, Guðrún og Sveinbjörg, sem báðar eru látnar. Á árunum
1913—1917 var Þórhallur í vist með foreldrum sínum á Stóra Hofi,
Efra Hvoli og i Vestri Garðsauka. 1917—1973 var hann með foreldr-
um sínum í Þúfu í Vestur-Landeyjum og frá 1973 og síðan að Frey-
vangi 9 á Hellu. Hann gekk lengi undir nafninu Halli í Þúfu, sem
margir könnuðust við. Á árunum, sem hann var við búskap í Þúfu,
var hann einnig nokkrar vertíðir til sjós í Vestmannaeyjum. TVo
vetur - á heimstyrjaldarárunum seinni - var hann í vinnu hjá breska
setuliðinu í Reykjavík. Árið 1947 keypti hann sér vöruflutninga-
bifreið og var með hana í vegavinnu og ýmsum flutningum um 20
ára skeið. Frá árinu 1973 vann Þórhallur í glerverksmiðjunni
Samverki á Hellu. Hann var ógiftur og barnlaus og andaðist í
Landakotsspítalanum í Reykjavík þann 5. mars 1986, 72 ára að
aldri.
Hógværðin, samviskusemin og snyrtimennskan einkenndu
Þórhall. Hann var dulur, söngelskur og sérstaklega trúr starfs-
maður. Á síðasta vinnustaðnum var honum lýst þannig: „Hann var
mjög jákvæður maður, einn þeirra fágætu, sem maður vill að fleiri
væru til af.” Hann var mikill dýravinur, naut þess að skoða landið
sitt og hafði mikið yndi af því, sem hann gat smíðað úr tré. Barn-
góður var hann og átti auðvelt með að umgangast unglinga. í kring
um hann var ekkert kynslóðabil. Orðheldinn með afbrigðum og
sóttist hvorki eftir metorðum né vegtyllum. Foreldrum sínum var
hann einkar nærgætinn og umhyggjusamur. Þórhallur var jarð-
sunginn frá Akureyjarkirkju 15. mars 1985.
208
Goðasteinn