Stjörnur - 01.07.1953, Side 10

Stjörnur - 01.07.1953, Side 10
Birtu: „Hún var alveg náföl, þegar hún kom rétt áðan, og hún sagðist ekki vita, hvort hún væri veik eða ekki.“ „Það er víst bezt, að þú fylgir h»nni heim, Birta,“ sagði ungfrú Nord, gjaldkerinn. Þá heyrði ég karlmannsrödd. „Ég skal fylgja ungfrú Tranberg heim. Ég er hvort sem er að fara. Viljið þér gera svo vel að hringja í bíl fyrir mig, ungfrú Nielsen." Það næsta ég man var að ég sat inni í bifreið. Við hliðina á mér sat Otto Barholt. Hann leit á mig ein- kennilega raunalegum augum, en þó eins og meðaumkandi. Þá stóðst ég ekki lengur mátið. Ég tók að orga svo hátt, að mér fannst bifreiðin ganga í skrykkjum við það. Hann tók hönd mína og strauk hana blíðlega. „Svona, svona,“ sagði hann hug- hreystandi. „Ég skil það mætavel, að þér takið þetta nærri yður, en verið alveg vissar, þetta lagast allt saman.“ Ég hristi höfuðið ákaft. „Ég hef nú líka þó nokkrar á- stæður til þess að hafa áhyggjur. Ég var nefnilega að missa atvinnuna. En það er nú raunar allt í lagi, því að frændi minn bauð mér nýlega stöðu hjá fyrirtækinu sínu.“ „En ungfrú Gusting“, snökti ég. „Finnst yður ekki leiðinlegt, að..“ „Ja, svei,“ sagði hann hæðnis- lega. „Nei, ég er sannast sagt dauð- feginn því að vera laus við hana.“ „Er þetta — er þetta satt?“ stam- aði ég. „Svona, svona, ekki gráta, ungfrú Lísa. Viljið þér nú ekki heldur trúa mér fyrir því, *sem amar að yður? Það hjálpar stundum.“ Ég leit tortryggnislega á hann. „Ég veit ekki, hvort ég þori það.“ „Þori? Ekki bít ég yður.“ Og þá var það, að játningin streymdi fram. Ég leyndi hann engu. Ástandið gat ekki versnað úr þessu. Ég starði á gólfið, þegar frá- sögninni lauk. Það var löng þögn. „Lísa,“ sagði hann loksins. „Já,“ hvíslaði ég. „Það varst ekki þú, sem gerðir mistökin. Það var ég. Ég skil ekki, hvernig ég gat verið svona blindur. Skilurðu þá ekki, að það varst þú, sem ég elskaði?“ Hvorugt okkar hafði tekið eftir því, þegar bifreiðin nam staðar. „Þá erum við komin,“ sagði bíl- stjórinn, og ég sá í speglinum ein- kennilegt bros leika um varir hans. Otto stökk á fætur og opnaði hurðina. Inni í stigaganginum dró hartn mig að sér og kyssti mig — einn koss — tvo kossa. Og það verður nú framtíðaratvinna mín að svara þeim öllum upp til hópa — í staðinn fyrir þessum andstyggilegu bréfum. 8 Stjörnur

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.