Stjörnur - 01.07.1953, Page 12

Stjörnur - 01.07.1953, Page 12
STJÖRNUNÓTT Lag: Þórður G. Halldórsson. Ljóð: Loftur GuSmundsson. Er báran við sævarströnd blundar á bjartri stjörnunótt, og máninn úr húmsölum horfir í hafdjúpið, kyrrt og rótt, Þá man ég það yndi, er við áttum úti við sundin blá, og orð, sem að aldan og biærinn ein kunna að greina mér frá. Þau syngja ekki neinum þann söng, nema'mér, — um unað þann, er ég átti með þér. Er saman við horfðum á hafdjúpið rótt, og leiddumst um sandinn á lognværri nótt. Og geislarnir glitruðu á sundum, og glóð þeirra i augum þér skein. Við orðum og atlotum bundum þau ástljúfu heit, sem að nóttin man ein. Er stjörnurnar stara í hafdjúpin hljóð, þær lýsa mér einum leið á minningaslöð. ★ VOEIINNING Lag: Guðmundur Karlsson. Ljóð: Kjartan Ólafsson. Ástin min ein, ungur man ég gömul kynni hugljúf og hrein. Hjartað söng í návist þinni. Ástin mín ein þann yndisdraum ég ber í minni. Sumarsins söngglöðu þrestir sungu þar á grein. Hve sælt er að unna og sólskinið þrá söngvana þá sumrinu írá, og augun þín dreyma svo brosmild og blá í blænum vaka þér hjá. Ungur ég er. öll mín þrá við hafið bundin, en bátinn minn ber báran heim til þín um sundin, mætir þar mér minningin um vorblíða lundinn. Hjá blómum, sem æska mín unni, ást mína gaf ég þér. ★ HITTUMST HEIL Lag: Ágúst Pétursson. Ljóð: Kristján Einarsson írá Djúpalæk. Er einmana geng ég á ókunnum stað er einasta gleðin að hugsa um það, hve þá verður sælt, er til þín liggja spor og þar verður fagnað af tveim. Að liðinni nótt, yfir land rennur sól; þá lifnar það allt, sem í frostinu kól. Og ást mín og þrá eru vermandi vor, — og, vinur, þær bera mig heim. ★ N Ó T T Lag: Árni Isieifsson. Ljóð: Jón Sigurðsson. I nótt glitra hin gullroðnu ský svífandi suðrinu í, svalar nætur. 1 nött læðumst við léttfætt um stíg, ljósálfar hjala við þig, ijósar nætur. Og lækjar ijúfur niður hann leikur fyrir þig. I nótt eigum við tvö eina s&l. Ástin þá hjartnanna mál óma lætur. ★ SELJA LITLA Lag: Jón Jónsson frá Hvanná. Ljóð: Guðmundur Ingi Kristjánsson. Selja litla fæddist fyrir vestan, frjáls og hraust í túni lék hún sér, hlaut, við nám og erfðir, allra beztan yndisleik, sem telpum gefinn er. Svo varð hugur hennar stór og dreyminn, hjartað sló í vængjaléttri þrá til að fljúga eitthvað út i heiminn, 10 Stjörnur

x

Stjörnur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.