Stjörnur - 01.07.1953, Page 13

Stjörnur - 01.07.1953, Page 13
æfintýraborgirnar að sjá. Þreyjulaus er þráin eins og bára. Þungabrim er léttur súgur fyrst. Því fór Selja, sextán ára, suðurleið í höfuðborgarvist. Það var margt um lífsins leik og kæti. léttur hlátur glaðrar stúlku beið. Það var eins og þessi kviku stræti, þrungin lífi, gerðu henni seið. Næsta sumar var um margt að velja. Vesturförin yzt á haka sat. Knæpa réði Selju til að selja setuliöi drykk og léttingsmat. Þar er hún með brosið bjarta og hýra, borðin þekur drykk og vistum enn fyrir hermenn ásta og æfintýra, ameríska gesti, — Seljumenn. ★ í FAÐMI DALSINS Lag: Bjarni J. Gíslason. Ljóð: Guðmundur Þórðarson. Fögur voru fjöllin hér, frammi í dalnum léku sér marga æsku-unaðsstund yngissveinn og fögur sprund Hlupu frjáls um holt og mó, höfðu í blómalautu skjól, bundu kransa, brostu eins og blóm við sól. Bjartir lokkar léku í ljósi sólar dægrin löng. Þá var ástin ljóðrænt lag og lífið söng. Fegurð enn á fjöllum býr, — faðmur dalsins grænn og hlýr. Sveinar enn þar fara á fund við fögur sprund. ★ VINNUHJÚA-SAMBA Lag: Svavar Benediktsson. Ljóð: Kristján Einarsson frá Djúpalæk. Vinnumann og vinnukonu vissi ég í sveit. — Astin getur orðið svo undarlega heit. ,,SUÐUR UM HÖFIN“ Guðný Pétursdóttir og Haukur Morthens í revýu „Næturgalans.“ Vinnumaður, vinnukona vildu ekkert ljótt. En bilið milli bríka er í baðstofunni mjótt. Vinnumaður, vinnukona voru heldur sein. Guð þau sá og gladdist við og gaf þeim lítinn svein. Vinnumaður, vinnukona voru í eðli trú. Hann varð síðar húsbóndi, og hún varð síðar frú. Vinnumann og vinnukonu völdu þau sér fljótt. Ástin hún er undarleg, og enn er bilið mjótt. Stjörnur 11

x

Stjörnur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.