Stjörnur - 01.07.1953, Side 14

Stjörnur - 01.07.1953, Side 14
BLIKANDI HAF Lag og ljóð: Tólfti September. En hvað það er dásamlegt að dansa hér, — dansa við þig einmitt þetta lag. Endurminningarnar streyma móti mér. — Manstu forðum, — þennan sama dag, er við stóðum frjáls og glöð á Bláteigs- brún? — blikandl hafið seyddi okkar þrá, — Gáruðu flöt þess léttskreið fleyg með ljós við hún. — Lagið okkar beggja fæddist þá. Dvölin þar var ógleymanleg unaðsstund, — angan stórra drauma, sagðir þú. Ljósaskiftin breiddu frið um fjöll og sund. Flýtum okkur, — hverfum þangað nú. Lokum augum, svífum út á Bláteigsbrún, — blikandi hafið svalar okkar þrá — Heyrum í fjarska, langt frá strönd, —• um laut og tún, lagið okkar beggja hljóma Þá. ★ E Gi MÆTTI ÞÉB Lag: Ágúst Pétursson. Ljóð: Kristján Einarsson frá Djúpalæk. Ég mætti þér á mildu sumarkvöldi. ó, manstu, hversu dásamlegt það var, er særlnn skein I sólarlagsins eldi og sviflétt ský um himinhvolfið bar? Um grænan skóg þú leiddir mig að lundi og ljóð mín, döpur, vöktu hlátur þinn. Ég roðnaði, ég stamaði, ég stundi; þá straukstu hvítri hönd um vanga minn. i I En ég var bara átján ára drengur og örlögþræði dís í hljóði spann. Og þá var brjóst mitt þaninn, grannur strengur, og þú varst fiðlarinn, sem lék á hann. Já, feiminn var ég fyrst, svo hvarf mér óttlnn. Þín fegurð I mér kveikti svo ég brann. Þú kysstir mig, ég kyssti þig, og nóttin í kyrrð og friði leið, unz dagur rann. LINDIN HVlSLAB Lag: Þórður G. Halldórsson. Ljóð: Loftur Guðmundsson. Nú andar bliður blær og blikar döggin skær um ljósan bjarkarlund, leiftrar um smáragrund. En lindin hvíslar hljótt: „Þín heitmey kemur skjótt." Við bjarkarlund, er bládögg skin, þar bíð ég þin ástin min. ÍG MINNIST HANS Lag: Magnús Sigurðsson. Ljóð: Jón Einarsson. Um vorkvöld seint með sjávarhömrum gekk ég þá sólarlagsins roða á hafið sló og minninganna mynd i huga fékk ég, sú mynd mér bæði gleði og trega bjö. Ég minnist hans á sælum sumarkvöldum þá sækir að mér glæstur draumaher. Hann hvarf mér burt með hafsins breiðu öldum nú helzt við fjöruborðið uni ég mér. En þar til að Þú kemur, kæri vinur þá kveð ég sjávarhömrum ljóðin mín, og þar sem ávalt heyrist hafsins niður ég hugsa flest og mest — og bezt til þín. V ö K II D R A l! M U B Lag og ijóð: Jenni Jónsson. Ljúft er að láta sig dreyma liðna sælutið. Sólríku sveitina kæru, svipmikla birkihlíð. Fjarlægu fjöllin bláu, frjósama blómskreytta grund, baðandi í geislagliti glaðværa morgunstund. Við lékum heima saman að legg og skel, Ijúft var vor og bjart um fjöll og dal. Ég man, hvað við i æsku þar undum vel, við óm i bröttum fossi i hamrasal. Og þú, sem varst svo barnslega blið og góð. Bernzkuárum gleymi ég aldrei þeim. Þvi sendi ég nú, vina mín, mitt litla ljóð, ljósvakans á öldum til þin heim. 12 Stjörnur

x

Stjörnur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.