Stjörnur - 01.07.1953, Page 19

Stjörnur - 01.07.1953, Page 19
í heild hafa tekið stórkostlegum breyt- ingum til prýðis og hagsbóta íbúum sín- um. Sjálfur hef ég átt heima í öllum bæjarhlutum borgarinnar í lengri eða skemmri tíma með nýjum og gömlum götuheitum með misháum húsnúmerum, og nú hef ég átt heima í vesturhlutanum síðustu 10 árin og kann ég ekki síður við mig í honum. Það tekur mig stutta leið að fara á Iþróttavöllinn og horfa þar á knatt- spyrnu og ýmsar aðrar íþróttir, skoða Þjóðminjasafnið, gefa tjarnarfuglunum brauðbita á sunnudögum, og oft liggur leið mín um kirkjugarðinn og les ég þá oft nöfn þeirra, sem þar hvíla undir mis- jafnlega gerðum og fallegum legsteinum undir grænum, tignarlegum trjám og angandi blómum allt i kring. Eitt er þó það, sem prýðir bæjarhlut- ana okkar óefað mest, svo langt sem það nær frá austri til vesturs, en það er hreinleikinn sem borgin hefur tekið á sig, þegar hún hætti að skorsteins- reykja á fastandi maga og langt fram á nætur allt árlð í kring, fyrir fáum árum síðan. Reykjarsvælan var oft svo mikil og dökk, að oft hélt ég að kviknað værl I sums staðar, og þegar maður fór 1 ljósu sparifötunum sínum um borgina, þá voru þau á svipstundu líkust því sem maður hefði verið í kolavinnu eða heilsað upp á hegrann við höfnina, og kvenþjóð- in var alltaf á nálum um hvítu hattana sína og ljósu kjólana, því að kolamökk- urinn vildi ekki síður kynna sig fyrir þeim, þó þær hryggbrytu hann og fyrir- litu. Þá held ég að heilbrigðiseftirlits- mennirnir og læknastéttin hafi ekki grát- ið reykjarmökkinn, þegar hann kvaddi eftir svo fjörgamlan aldur. Slæmt heilsu- far og hverskonar vanlíðan var honum eignað, og á það kannski eftir að sann- reynast betur eftir því sem lengra líður frá andláti hans. Nú skulum við, lesandi góður, taka annað umtaisefni á dagskrá, og ég ætla að minnast hér nokkrum orðum á stræt- isvagnana, því þú hefur óefað fengið þér far með þeim og það kannski oftar en einu sinni á dag. £>ó að borgin okkar geti ekki kallazt stór á við aðrar borgir út í heimi, gæt- um við núna illmögulega verið án stræt- isvagnanna, þegar við þurfum að flýta för okkar og heimsækja kunningjana, sem búa langt frá þeim stað sem við búum, í sitt hvorum endum bæjarins. Með því að nota þessi þægilegu farartæki, spör- — Viltu hætta strax að teikna á ísinn, strákur. um við okkur bæði tima og skóslit, losn- um við allan mæðiveikisblástur og úr- hellisrigningu, ef veðrið er þannig. Og sé nokkuð til, sem getur kennt mönnum stundvísi, þá standa strætisvagnarnir þar framarlega sem kennarar á því sviði. Sjálfur verð ég núna að ná í hraðferð- ina, sem bíður ekki eftir mér frekar en öðrum, því ég ætla að skella mér á Aust- urbæjarbíó í kvöld og sjá þar afarspenn- andi mynd, svo ég verð aö kveðja þig í skyndi með þökk fyrir samverustundina, og vonast ég til, að við lifum það báðir af að hittast í næsta STJÖRNU-hefti aftur, og skal ég þá segja þér frá því, hvort bíóauglýsingin hefur gabbað mig. Stjörnur 17

x

Stjörnur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.