Stjörnur - 01.07.1953, Side 20
Við skulum byrja þennan þátt á því
að líta á þær myndir, sem við fáum að
sjá á næstunni í þrem kvikmyndahúsum
borgarinnar.
STJÖRNUBÍÓ kynnir fyrir okkur ævi
Rudoiph Valentino. Nafnið eitt íelur í
sér hugljúfan töfraljóma i augum þeirra
lcvikmyndahúsgesta, sem sáu sjálfir
þennan konung elskhuganna. Og yngra
fólki leikur áreiðanlega hugur á að
kynnast æfintýra-ævi þessa fjölhæfa lista-
manns, þótt hann sé hér leikinn af áður
óþekktum leikara.
Efnið er þetta:
Dansarinn Rndolph Valentino (Ant-
Rudolph Valentino og Aliee Terry.
hony Dexter) hittir kvikmyndastjörnuna
Joan Carlisle (Eleanor Parker) um borð
í skipi frá ftalíu til Ameriku. Févana í
New York kynnist hann þjóninum Lnigi
(Joseph Caileia). Leiðir þeirra Valentino
og Joan liggja aftur saman, og kvik-
myndaframleiðandinn William King (Ric-
hard Carlson) verður hrifinn af hæfileik-
um Valentino. Valentino kemst einnig í
kynni við leikkonuna Uila Reyes (Patricia
Medina). Leiðir hans liggja nú til Holly-
wood, þar sem hann nær mikilli frægð
þegar í stað. Joan gerir sér ljóst, að hjá
Valentino finnur hún ekki öryggi, og gift-
ist King. En niðurbæld ást þeirra brýst
út, er þau leika saman í kvikmynd.
Blaðamaður kemur þeim að ávörum á
leynilegu stefnumóti. Valentino slær hann
niður, en fer síðan til New York og ætl-
ar að kvænast Lilu til þess að bjarga
heiðri Joan. En áður en af því verður,
deyr hann sakir ofreynslu af völdum
sjúkdóms og átakanna i slagsmálunum.
i
Einkennileg er þessi kvikmyndafrægð.
Sumir leikarar eru mestan hluta ævinnar
að ,,afla sér nafns,“ aðrir verða frægir á
svipstundu. Þannig var með Judy Holli-
day, sem hlaut Oscar-verðlaunin 1951,
fyrir leik sinn i myndinni „Fædd í gær,“
Þótt Judy væri óþekkt sem kvikmynda-
leikkona, hafði hún leikið ljóshærða
stelpukjánann, sem við fáum vonandi
bráðlega að sjá, hvorki meira né minna
en 1643 sinnum í leilchúsi i New York.
18
SrjÖRNUR