Stjörnur - 01.07.1953, Qupperneq 21
Efni myndarinnar:
Fjárglæframaðurinn Harry Brock (Brod-
erick Crawford) mætir á alþjóða kaup-
stefnu í Washington í fylgd með vinkonu
sinnl, Billie Dawn (Judy Holliday), sem
er forkunnarfögur, en veit nákvæmlega
ekkert í slnn haus. Dauðhræddur um, að
fávizka Billie eyðileggi viðskiftaáform
hans, ræður hann rithöfundinn Paul Verr-
aJl (William Holden) til Þess að upp-
fræða hana. Smám saman rennur upp
íyrir Billie, hverskonar viðskipti Það
eru, sem Harry stundar, og hvern Þátt
hún á í Þeim, og svo fer að lokum, að
hún gerir uppreisn gegn yfirdrottnunar-
sýki hans, og Þau Paul ákveða að standa
saman i framtíðinni.
Skoðanir manna á gildi nautaats kunna
að vera skiptar, en myndin „Nautahan-
inn“ (The Brave Bulis) hefur vakið slíka
athygli, að ástæða er til að ætla, að kvik-
myndaunnendur hér láti hana ekki fram
hjá sér fara óséða. Myndin er gerð eftir
sögu Tom Lea, sem varð metsölubók í
Bandaríkjunum. Auk hins ágæta leikara
Mel Eerrer og mexíkönsku stjörnunnar,
Miroslava, birtist okkur Þarna ótölulegur
grúi frægustu nautabana Mexíkó.
Mirosiava og Mei Ferrer.
Efni myndarinnar:
Einn fremsti nautabani Mexico, Luis
Bello (Mel Farrer) verður gripinn
hræðslu i fyrsta skipti á ævinni, er hann
særist í nautaati. Hann kynnist Lindu de
Calderon (Miroslava), verður ástfanginn í
henni, og innileg faðmlög hennar á næt-
urnar fá hann til að gleyma dauðanum,
sem morgundagurinn lcann að fela í
skauti sér. Að loknu stefnumóti Þeirra
lendir Linda í biíreiðarslysi ásamt um-
boðsmanni Luis, Baul Fuentes (Anthony
Quinn), og lætur lífið. Niðurbrotinn á-
kveður Luis að heyja at I smábæ, Þar
sem bróðir hans kemur fram í fyrsta
skifti. Luis berst eins og dauðskelkaður
byrjandi, og leggur séinast á flótta. En
Þegar bróðir hans (Eugene Iglesias) sær-
ist, snýr Luis aftur inn á hringsviðið, og
sigrast nú fyrir fullt og allt á ótta sin-
um við dauðann —- og lífið.
I GAMLA BÍÓ verða á ferðinni tvær
afar spennandi og skemmtilegar myndir,
sem hafa Það sameiginlegt, að kvenleik-
arar fara með aðalhlutverkin.
1 myndinni „THE WOMAN ON PIER
13“ fer Laraine Day með aðalhlutverkið.
Myndin er frá RKO, og hefur Bobert
Stevenson annazt leikstjórnina.
Efni myndarinnar er í stuttu máli
Þetta:
Fornt ástarsamband Brad Collins (Ro-
bert Ryan) og stúlkunnar Christine (Jan-
is Carter), sem er í félagi með fjárkúg-
aranum og undirróðursseggnum Vanning
(Thomas Gomez), varpar dimmum skugga
á líf hans. Vanning fær Brad til Þess að
taka Þátt í verkfalli, sem stefnt er að Því
að eyðileggja skipasamgöngur á vestur-
strönd Bandaríkjanna, með Því að hóta
að ljóstra upp um Þann Þátt, sem Brad
hefur átt i morðmáli, sem aldrei leystist.
Á afar spennandi hátt er iýst, hvaða
hættu Þessi nauðungar svik skapa eigin-
konu Brad, Nan Collins (Laraine Day)
og bróður hennar (John Agar), Þrátt fyr-
ir örvæntingarfulla baráttu hans að halda
hlifiskildi yfir Þeim.
Og Þá er „Lcyndarmál konu“ ekki síð-
Stjörnur
19