Stjörnur - 01.07.1953, Page 23
1 AUSTUKBÆJABBÍó verður sýnd á
næstunni hin afar spennandi mynd,
Odette, gerð eftir sögunni, sem nú er
framhaldssaga í Vikunni og fjallar um
atburði, er hentu brezku stúlkuna Odetto
á styrjaldarárunum, er hún starfaði í
leyniþjónustu Breta á meginlandinu.
Efni myndarinnar er óþarfi að rekja,
svo mo,rgum er það kunnugt af hinum
viðburðaríku frásögnum, og ensku leik-
ararnir Anna Neagle, Trevor Howard,
Marius Goring og Peter Ustinov ættu að
vera manni trygging fyrir því, að aðal-
hlutverkin séu í góðum höndum.
John Vayne og Maureen O’IIara.
Þögli maðurinn, eitt af meistaraverkum
leikstjórans John Ford, er önnur mynd-
in, sem bráðlega verður sýnd í Austur-
bæjarbíói. Myndin er tekin .af Republic
Pictures og gerist í Irlandi.
Ameríski hnefaleikakappinn, Sean Thorn-
ton (John Wayne) kemur heim til Ir-
lands, til þess að eiga rólega daga, en
lendir brátt í erjum við ,,Rauða“ Villa
Danaher (Victor McLaglen) og verður
ástfanginn í systur hans, Mary Kate
(Maureen O’Hara), svo að búizt er við
tíðindum. Þau giftast án þess að til á-
rekstra komi, fyrir atbeina sóknarprests-
ins (Ward Bond) og Michaeleen nokkurs
Flynn (Barry Fitzgerald). Danaher neit-
ar að borga heimamund með henni, Sean
vill ekki berjast, og loks hleypur Mary
Hin árlega, franska Kermesse aux
Etoiles (Stjörnu-hátíð) var hátíðlega hald-
in nýlega. Auriol Frakklandsforseti sæmdi
þar nokkra leikara bronz-styttu, og voru
þ.á.m. Gregory Peck og Cary Cooper. Þeg-
ar sá atburður var tilkynntur, upphóf
Cooper gífurleg fagnaðarlæti. Leikkon-
unni Gisele Pascal sem sat hið næsta hon-
um, tókst með nokkrum erfiðismunum
að þagga niður í honum, og furðu lostn-
um fjöldanum gaf hún þessa skýringu:
,,Hann skilur ekki eitt einasta orð í
frönsku. “ (TIME).
frá honum, en þá er líka mælirinn full-
ur. Verður nú ofsafenginn bardagi milli
þeirra máganna, sem lýkur á þann hátt,
að báðir liggja á vígvellinum, örmagna
af þreytu en ósigraðir, fullir virðingar
hvor fyrir öðrum, og er þá ekki að sök-
um að spyrja, að friður og sátt færist
yfir heimili þeirra Mary og Sean.
Þriðja myndin, sem bráðlega verður
sýnd í Austurbæjarbíó kemur frá Norð-
urlöndum, nánast sænsk, með aðstoð
Ulrik Neumann og Svend Asmussen.
nokkurra skemmtikrafta frá öðrum lönd-
um. Efni myndarinnar er ekki svo ýkja
mikið, að því er vér bezt vitum, en hvaða
máli skiftir það, þegar Alice Babs Nilsson
og Delta Rythm Boys, syngja fyrir okk-
ur, hljómsveit Svend Asmussen leikur
með, ,og Stig Járrel leikur aðalhlutverk-
ið? Nei, eitt er víst, það verður glatt á
hjalla!
Stjörnur
21