Stjörnur - 01.07.1953, Blaðsíða 24

Stjörnur - 01.07.1953, Blaðsíða 24
Þessar myndir voru bezt sóttar í Am- eríku í maí-mánuði. 1. Vaxmyndasafnið, þriöju-víddar-mynd, tekin af Warner Bros. Aðalhlutverkið leikur Vincent Price. 2. Moulin Rouge, tekin af United Art- isto. José Ferrer leikur aðalhlutverkið, málarann Toulouse-Lautrec.' 3. Salóme, frá Columbia. Rita Hay- wortli leikur aðalhlutverkið. Auk hennar leika Stewart Granger, Judith Anderson og Charles Faughton. 4. sætið skipar mynd, er nefnist: „Þetta er Cineranna." 5. Maður í dimmunni, þriðju víddar mynd, tekin af Columbia. Aðalhlutverk- in leika Edmond O’Brien og Audrey Totter. En auk þess eru um þessar mundir sýnt margt ágætra mynda og skulum við nú ganga á röðina og rabba um hverja fyrir sig. Erfðasyndirnar sjö er frönsk, og fjall- ar um þessa verstu galla mannsálarinn- ar. 1 myndinni sjáum við meðal fjölda annara ágætra leikara, Francois Rosay og Michéle Morgan, og Roberto Rosselini hefur annazt leikstjórn eins þáttarins. Shane er frá Para- mount, og leikur Al- an Eadd er talinn með ágætum. — 1 myndinni leika einn- ig Van Heflin og Jean Arthur. Furðuleg blekking heitir ítölsk mynd, sem vakið hefur mikla eftirtekt, sér- staklega fyrir leik- leikstjórnina, sem Curzio Malaparte hefur annazt. Aðalhlutverkið er í höndum Raf Vallone. Volcano er einnig ítölsk og þykir bera allsterkan keim af Stromboli, en talin betri að flestu leyti. Anna Magnani leikur aðalhlutverkið. Anna Magnani leikur einnig aðalhlut- * VINCENT PRICE * Það hafa verið örlög Vincent Price að fara alla ævi, sem nú eru liðin 42 ár af, með hlutverk þrjóts- ins — vegna glæsimennsku hans og menntunar. Kvikmyndagestum um heim allan hættir alltaf til að leggja fæð á námshestinn, þann betur gefna. Og þessi tilhneiging virðist meira að segja enn færast í aukana. 1 Hollywood er heill ara- grúi af kjálkabreiðum og ennislág- um vöðvadrumbum til þess að leika hetjurnar. Þrjóturinn verður hins vegar að vera „evrópskur“ og „spilltur“. Vincent Price á góða daga fyrir höndum. Hann naut ágætrar menntunar, stundaði nám í Yale, síðan í London og Núrnberg. I mörg ár var hann þekktur á Broadway, þar sem hann meða.1 annars lék prins Albert, en Helen Hayes lék Viktoríu drottn- ingu í Viktoria Regina, svo skaut honum upp í leiðinlegri Hollywood- mynd „Ungfrú Þjónusta“, en ólánið yfirgaf hann fljótlega og í „Ósýni- legi maðurinn snýr aftur“ „sló hann í gegn“ aðeins vegna raddarinnar. Hann lalar sérkennilega ensku. Eftir stríðið hefur hann ekki haft nokkra stund aflögu. Hann lék hinn drambsama biskup í „Lyklar himna- ríkis“, hinn slæga Richelieu í „Skytturnar“. Hann yfirbugaði hinn Stjörnur 22

x

Stjörnur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.