Stjörnur - 01.07.1953, Side 26
verkift í ISellissima ásamt lítilli stúlku,
Tina Apicella.
Liðnir dagar heitir ítölsk mynd, sem
tekin er eftir þrem frægum sögum
ítalskra rithöfunda frá 19. öld. í þessari
mynd leika Vittorio De Sica, Gina Dollo-
brigida og Aldo Fabrizi.
Klukkan hálf-níu í kvöld er ensk, tek-
in af J. A. Bank. 1 myndinni eru tekin
til meðferðar þrjú leikrit Noel Coward,
The Bed Peppers, með Ted Ray og Kay
Walsh, Ways and Means, Nigel Patrick og
Valerie Hobson og Furaed Daks með
Stanley Holloway.
Skæð í vatni heitir ný mynd frá Metro,
og er það auðvitað Esther Williams,
sundrottningin, sem veldur nafninu. Sér-
staka athygli hefur vakið atriði, þar sem
hún stígur í draumi dans við teikni-
mynda,,figururnar,“ Tom og Jerry, undir
vatnsyfirborðinu. Fernando Lamas leikur
annað aðalhlutverkið móti Esther. Myndin
er frá Metro.
Janet Leigh og Toni Curtis
Houdini er frá Paramount, og fjallar í
aðalatriðum um ævi töframannsins fræga,
Harry Houdini. Hjónin Toni Curtis ög
Janet Leigli þykja fara mjög skemmti-
lega með aðalhlutverkin.
Drottningarkrýning, ensk mynd frá
krýningarhátíð Elísabetar II. Myndin,
sem framleidd er af Rank, hefur hvar-
vetna vakið einróma hrifningu.
Myndin er nú sýnd í Tjamarbió.
Jean Simmons og Stewart Granger
Æskuástir Elísabetar, nýleg mynd frá
Metro með Jean Simmons, Stewart Grang-
er og Charles Laughton í aðalhlutverkun-
um, hefur fengið góða dóma.
Eyðimerkursöngurinn, byggður á óper-
ettu Sigmund Romberg er nú sýndur í 3.
útgáfu (áður léku aðalhlutverkin John
Boles (1929) og Dennis Morgan (1943)) og
nú eru Gordon McBae og Kathryn Gray-
son i aðalhlutverkunum.
Hinir fimm þúsund fingur Dr. T.,
skemmtileg ,,fantasía“ frá Columbia.
Aðalhlutverkið leikur Hans Conried.
Genghis Khan, mynd tekin á Filipps-
eyjum af United Artists, Manuel Conde
stjórnar myndinni og leikur aðalhlut-
verkið.
Ofsahræddir! 1 þessari bráðskemmti-
legu grín-hrollvekju eru aðalhlutverkin í
höndum Dean Martin og Jerry Lewis.
Lizabeth Scott kemur einnig við sögu.
Julius Caesar er talin bezt-heppnaða
kvikmyndaútgáfa, sem gerð hefur verið í
Ameríku á Shakespeare-leikriti. Aðal-
hlutverkin eru í höndum Marlon Brando
(Markús Antoníus) John Gielgud (Cass-
ius), James Mason (Brútus) og Louis
24
Stjörnur