Stjörnur - 01.07.1953, Page 30
Á ferðalagsárunum segist Rose-
mary hafa fundið sárt til þess, að
henni skyldi aldrei auðnast að ganga
í menntaskóla. Þarna söng hún á
hundruðum skóladansleikja, og
horfði á hundruð drengja og stúlkna
á hennar reki gleyma skólabókunum
og líða áhyggjulaus eftir tónunum.
Síðan hefur hún komizt að þeirri
niðurstöðu, að menntunin, sem hún
hefur aflað sér sjálf, hafi líka haft
sitt gildi.
Hún hefur lært að þekkja menn-
ina og veröldina, sem aldrei verður
kennt á skólabekk. Hún les allt,
sem fyrir kemur, hvort heldur eru
skemmtilegir kaflar mannkynssög-
unnar eða notkunarreglur á brauð-
mylsnupökkum. Komi prentletur á
annað borð fyrir auglit Rosemary,
þá les hún það. Margan penmginn
hefur hún þurft að greiða flugfélög-
unum fyrir stóra farangurstösku,
sem hún skilur aldrei við sig, og er
full af hálflesnum bókum.
Mikið er hún samt farin að óska
þess, að hún geti haldið kyrru fyr-
ir á sama stað, geymt tannburstann
sinn í vatnsglasi í eigin íbúð í stað-
inn fyrir í töskunni sinni. Hún á í-
búð í New York og leigir aðra á
Beverley-hæðum. En hún er of mik-
ið kaupstaðarbarn til þess að geta
kunnað við sig í leiguíbúð. Og nú
er hún að svipast um eftir íbúð til
kaups, því að kvikmyndasamningur-
inn gerir henni kleift að dveljast
a.m.k. nokkrar vikur í einu á sama
stað.
Menn eru jafnvel farnir að tala
um möguleikana á því að hún fari
að setjast að á eigin heimili, ásamt
sínum eiginmanni, en enn sem kom-
ið er, vita menn eigi gjörla, hver
hann muni verða. Fyrir tveim árum
sást hún mikið í fylgd með Dáve
Garroway, en upp á síðkastið hefui
það verið José Ferrer. Hvar það ást-
arævintýri endar, er enn óvissa, því
að José er ekki löglega skilinn við
fyrri konu sína. En Rosemary er
órög við að láta gífurlega hrifningu
sína á honum í ljós: „Hann hefur
áhuga fyrir svo mörgu .... við eig-
um svo margt sameiginlegt .... á
hverri mínútu lærir maður eitthvað
af honum.“ En, sem sagt, enn ríkir
óvissa yfir þessu.
Önnur kvikmynd hennar, „Here
Come the Girls,“ verður frumsýnd
í desember. Þar leikur hún með Bob
Hope. Núna leikur hún í „Red Gart-
ers.“ í ágúst verður byrjað að vinna
að „White Christmas,“ og þar fer
Bing Crosby með aðalhlutverkið.
Þá mynd verður sannarlega gaman
að sjá, því Rosemary hefur oft ver-
ið nefnd „Ungfrú Crosbie“, og mun
ástæðan aðallega vera sú, að hún
syngur og leikur eðlilega eins og
Bing. Hún fær hlutverkið í hendur,
lærir setningarnar, og „hellir sér út
í leikinn“ án minnstu leiðbeiningar
frá leikstjóranum.
28
Stjörnur