Stjörnur - 01.07.1953, Side 38
Ný afar-spennandi kvikmynda-framhaldssaga
1 kvikmyndinni, sem gerð hefur verið um Þessa sögu,
og væntanlega verður sýnd í Austurbæjarbió á vetri
komanda, er Chris Hnnter leikin af ANN SHERIDAN,
Earry Hannaford af IEW AYRES, Bob Hunter af
ZACHARY SCOTT og faula af EVE ARDEN.
1. kaíli. Óp að nœturlagi.
i
Veðrið er eins dásamlegt og hugsazt getur.
Nóttin er hljóð. Blærinn mildur og hlýr. Blómailminn leggur upp
úr görðunum. Sumarið er komið til Beverley-hæða.
Chris Hunter hefur rétt lokið við að ganga frá bifreiðinni sinni
inni í skýlinu, og gengur upp stéttina til myndarlega, stóra hússins,
sem þau eiga, hún og maðurinn hennar, byggingarfræðingurinn Bob
Hunter.
Hún er þreytt, ákaflega þreytt, en samt er hún í ágætis skapi, vegna
þess, að á morgun kemur Bob heim, Bob hennar, bezti maðurinn í
öllum heiminum, eini maðurinn í öllum heiminum, sem henni þykir
vænt um og hefur nokkurn tíma þótt vænt um.
Bob hefur einungis^verið að heiman í viku, nei. í heila tíu daga.
Chris veit þetta mætavel, því að hún hefur talið dagana, næstum
klukkustundirnar frá því hann lagði af stað. Hann hafði í hyggju
að selja einhverju verzlunarfélagi einhvern uppdrátt. Hún hefur ekki
svo mikið vit á viðskiftahlið málsins. Hinsvegar þekkir hún mætavel
húsin, sem hann teiknar. Hún elskar húsin, sem Bob teiknar. Þau
eru falleg að sjá að utan og dásamleg að innri byggingu, og svo eru
36 Stjörnur