Stjörnur - 01.07.1953, Blaðsíða 43

Stjörnur - 01.07.1953, Blaðsíða 43
„Það er omögulegt,“ kom hann loksins út úr sér. „Hvað skyldi henni hafa gengið til þess?“ „Ja, það er nú eimitt það, sem við erum að reyna að komast eftir,“ var svarið. Leynilögreglumaðurinn hafði tekið lítinn, örmjóan rýting upp af skrifborðinu. Hann rétti hann í áttina til Bob með spyrjandi augnaráði. „Ég sendi hann heim frá Japan,“ sagði Bob eins og var. „Vinnukonan yðar heyrði síðastliðna nótt, að hrópað var hérna niðri. Hún flýtti sér hingað og fann hann liggjandi á gólfinu Frú Hunter stóð með rýtinginn í hendinni.“ Agnes hafði hlustað á orðaskipti Bob og leynilögreglumannsins, og hún staðfesti nú það, sem hann hafði sagt. „Það var hræðilegt,“ sagði hún. „Hún stóð með rýtinginn í hend- inni. Kjóllinn hennar var rifinn, og hún var blóðug um hendurnar.“ „Já, en sagði hún ekki frá því, sem gerðist?“ spurði Bob ákafur. Agnes skýrði ennfremur frá því, að frúin hefði fallið í yfirlið. Þær hefðu hringt í lækni, síðan í herra Hannaford, lögfræðinginn, sem hafði komið þegar í stað, og síðan hringt á lögregluna. En ekki hafði enn reynzt fært að yfirheyra frúna vegna inngjafar, sem læknirinn hafði gefið henni. Stundarkomi síðar stóð Bob uppi í svefnherbergi eiginkonu sinnar. „Ert það virkilega þú?“ sagði hún og hjúfraði sig upp að honum. ,JÉg hélt, þú ætlaðir aldrei að koma.“ „Hafðu nú engar áhyggjur,“ sagði hann og strauk yfir hárið á henni. „Ég skal gæta þín.“ 3. kaíli. Chris segir lögreglunni frá. Þegar Bob kom inn, hafði Larry Hannaford dregið sig hæversk- lega í hlé. Þeir Bob voru góðir vinir. Þeir höfðu verið skólabræður í menntaskóla, já, og meira að segja höfðu þeir verið ákaflega sam- rýmdir þau tvö ár, sem Bob hafði verið í hernum. Reynolds hóf þegar að spyrja Larry spjörunum úr um hvernig sambandinu milli þeirra hjónanna, Chris og Bob, væri háttað. Svar- Stjörnur 41

x

Stjörnur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.