Stjörnur - 01.07.1953, Síða 49

Stjörnur - 01.07.1953, Síða 49
Dust) Carmichael, sem nú er í þann veg- Inn að byrja á nýjum þætti i sjónvarp kom gagnrýnendunum í opna skjöldu með snaggaralegri sjálfsgagnrýni á söng- hæfileika sina: „Röddin í mér er ekki upp á marga fiska. Ég spila plöturnar mínar þrisvar yfir og er þá orðinn dauð- leiöur á þeim. Mér finnst röddin hræði- Orson Wells. lega tilbreytingarlaus.'1 .... Og svo var það undramaðurinn Orson Welles. Hann kvað eiga að fara að leika Farúk kon- ung í einhverri Erroll Flynn-mynd. En vonandl meir um það seinna .... Meðan verið var að taka snilldarverkið Monlin Rouge fékk leikarinn José Ferrer sann- arlega að kenna á hlutverki sínu. Hann leikur har málarann Toulouse-Laurec, sem var aðeins hálfur annar meter á hæð, en sjálfur er José nærri tveir. Það vaíðist talsvert fyrir mönnum hvernig ætti að kýta leikarann pannig saman, að hæfi- legt væri, þangað til hann kom sjálfur með lausnina. Tveir gervifætur voru reyrðir við hné hans, en fætur hans voru sveigðir aftur á bak. Þannig á sig kom- inn hökti hann um. Þið getið kannskl gert ykkur þjáningar hans í hugarlund, ef myndatakan stóð kringum stundar- fjórðung, hvað þá, þegar hann þurfti að þola þessa pín klukkustundum saman. En myndin hlaut frábærar viðtökur, og aðdáendur José Ferrer, sem seint munu gleyma leik hans i myndinni Cyrano de Bergerac, biða þessarar myndar hans með óþreyju .... Nýjasta kvikmynd Walt Disney um Fétur Pan fer sigurför um heiminn. Hún mun hafa kostað um 4 millj. dollara. Næsta mynd, sem Disney hyggst láta gera, er byggð á ævintýri H. C. Andersen ., I.jnt i andarunginn.“ Ekki verður það nú samt góðkunningi okkar, Andrés önd, sem fær aðalhlutverkið i þessari nýju mynd, heldur einhver ný „fígúra, “ sem Disney hj'ggst skapa, og hvernig, sem allt fer, þá verður gaman að sjá, hvað úr þessu áformi Dlsney's verður .... Enn ein söngstjarna er í upp- siglingu í kvikmyndum, Theresa Brew- er, kölluð Mlss Music í Bandarikjunum. Sigur vann hún með laginu „Music, Music, Music. “ Hún er aðeins tvítug að aldri .... George Sanders hefur nýlokið við að leika i kvilcmyndinni um riddara kringlótta borðsins. Við komuna til Holly- wood fórust honum svo orð: „Ég er dauðþreyttur. Farinn að verða gamall." Oss finnst nú 46 ekki vera hár aldur, og Stjörnur 47'

x

Stjörnur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjörnur
https://timarit.is/publication/1910

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.