Stjörnur - 01.07.1953, Síða 50
vonum innilega, að hann nái að hvíla sig
rækilega hjá konunni sinni, ungiærsku
leikkonunni Zsa-Zsa Gaiior, enda þótt
einhver hafi hvíslað þvi að okkur, að
hjónabandið hjá Þeim sé nú bara zso-
zso .... Ýmsurn mun Þykja það gleðiefni.
Zarah I.citruirr.
að .Zarah Leaniler þýzka söngkonan
fræga, hefur lokið við aðra kvikmynd
sína eftir stríðið, ,,Cuba-Cabana“ ....
Landi hennar, ..Ungfrú Þýzkaland 1952,“
einn þátttakandinn i fegurðarsamkeppn-
inni i fyrra, Benate Hoy að nafni, fékk
nýlega sjö ára samning við Universal ....
Lionel Barrymore, hálfáttræður öldung-
urintn, hefur nýlokið við skáldsögu, þá
fyrstu, er hann skrifar, Mr. Cantonwine.
Jafnframt kunngjörði hann, að hann
ætiaði að fara að byrja á rabb-dálki um
menn og málefni í dagblöð. ,,Ekkert gleð-
ur mig eins og að ég skuli fá að létta
af hjarta minu um það, sem mér líkar
bezt,“ segir hann. ,,Ýmsir hafa litið á
mig sem viðkunnanlegan öldung. Bíði
þeir bara við þangað til þeir fara að lesa
dálkinn minn." .... Tvífari Ritu Hay-
worth heitir Mary Castle. Sagan segir,
að dag nokkurn hafi hún lagt leið sína
inn á kaffihús í fyigd með umboðsmanni
sínum. Frammistöðustúlkan kom ti!
þeirra, og spurði Mary formálalaust,
hvort hún væri ekki Rita Hayworth. ,,Ég
hef að vísu aldrei séð hana nema í kvik-
myndum, en þér eruð fj'arska líkar
henni,“ Mary neitaði þessu, en umboðs-
maðurinn greip hér inn í samtalið með
þessari athugasemd: ,,Mér finnst hún miklu
líkari Humphrey Bogart. ‘1 Afgreiðslustúlk-
an hugsaði sig um stundarkorn og sagði
síðan: ,,Jahá, hann hef ég heldur aldrei
séð.“ .... Nokkrar fregnir hafa skotið
upp kollinum um það, að Dean Martin og
Jerry Lewis hafi slitið félagsskapinn.
Þessar fregnir getum við fullyrt, að eru
ekki á rökum reistar. Þessir bráðskemmti-
legu sprelligosar eiga vafalaust eftir að
skemmta mörgum kvikmyndahúsgestinum
ennþá. Og það sem meira er, eiginkona
Jerry’s, i'atty Lewis, er farin að skemmta
í gamanþáttum þeirra og vekur mikla
hrifningu, Hún var söngkona, áður en
hún kynntist Jerry, og náði miklum vln-
sældum, sérstaklega fyrir söng sinn i
laginu ,,Littlé Man, You’ve Had a Busy
Day.“ .... Victor Mature leikur aðal-
hiutverkið, Demetrius, í KyrtiJllinn.“
Hann hefur komizt svo að orði: ,,Þetta
er fimmta hiutverkið, sem verður að
liða á mér hárið fyrir. Ég er að verða
eins og stórvaxin Shirley Temple" ....
Boland Young, sem allir muna eftlr úr
Topper-myndunum, er nýlátinn. Hann
var 65 ára að aldri .... Fregnir herma,
að Bed Skelton hafi fyrir nokkru fengið
taugaáfall, Ástæðan til þess var m.a. sú,
að hann var staðráðinn i að megra sig,
og það átti ekki að taka langan tíma. I
tvo og hálfan sólarhring bragðaði hann
ekki matarbita, en hann léttist líka um
fimm og hálft kiló .... — Og svo koma
skilnaðarmálin: Diana Lynn, 26 ára að
aldri, nýskilin eftir hálfs fimmta árs
hjónaband við byggingarfræðinginn, John
C. Lindsay .... Martlia Bye, 36 ára, eft-
ir tiu ára hjónaband við fjórða eigin-
manninn sinn, Nick Condos, 45 ára. Þau
áttu eina dóttur .... Peter Lorre, eftir
átta ára hjónaband við konu sína, Karen
Verne Lorre.
48
Stjörnur