Goðasteinn - 01.09.2016, Side 73

Goðasteinn - 01.09.2016, Side 73
71 Goðasteinn 2016 gerð braut fyrir umferð niðri á fljótsaurnum frá brúnni inn á móts við Hellissel í Merkurnesi. Talsvert þurfti að gera til þess að verja þessa braut fyrir fljótinu. Það var að nokkru leyti gert með því að hlaða grjóti að aurbakkanum, sem fljótið var að brjóta en að nokkru með stuttum varnargörðum. Stærsti garð- urinn í því varnakerfi liggur út frá Réttarnefinu, út aurinn með stefnu nokkru suðaustan við Stórudímon. Hann heitir Stóru-Merkurgarður. Þrír stuttir garðar voru gerðir þar fyrir innan. Áður en þær varnir voru gerðar, var fljótið búið að skola burt sneið af Stóru- Merkur engjum sem lágu inn með því, m. a. fram af Nauthúsagili. Um og fyrir 1980 var Markarfljót búið að brjóta niður og breyta í gróð- urlausan aur, mjög stórum hluta af gróðurlendi Brúna og Tjarna og var farið að nálgast túnin á Tjörnum. Þá var ljóst, að eftir nokkra áratugi gæti fljótið verið búið að brjóta niður öll túnin og þar með mynda sér nýja leið vestur í Álafarveg. Á leið fljótsins meðfram graslendi þessara jarða var víðast nokkuð þykkur jarðvegur, þar voru víða bakkar einn til tveir metrar á hæð. Jarðvegur var þar víðast þurr og sendinn og því auðveldur til niðurbrots fyrir straum- vatnið. Á kafla milli bæjanna var landið það mikið lægra að kvíslar úr fljótinu höfðu farið þar yfir vestur í Álafarveg. Á þessum lægri kafla var mýrarjarðvegur að meiri hluta og af þeim ástæð- um höfðu ekki myndast þar farvegir eftir fljótið, en rennsli þess verið ofan á gróðurlendinu og aurnum sem það hafði skilið þar eftir, annars hefði það sennilega farið þarna vestur í Álafarveg miklu meira en það gerði. Okkur sem vorum í sveitarstjórn í Vestur-Eyjafjallahreppi um 1980 var vel kunnugt um þetta ástand. Á árunum fyrir 1980, var orðið ljóst að þetta gat ekki gengið öllu lengur, þrátt fyrir að ríkið hafði keypt jarðirnar á sínum tíma. Ég var kosinn oddviti hreppsnefndarinnar í Vestur-Eyjafjallahreppi á árinu 1981. Sveitarstjórninni var það ljóst að hún yrði að láta þetta mál til sín taka, enda fórum við að halda því fram að ríkinu bæri skylda til að koma þarna upp varnargörðum, þrátt fyrir kaup þess á jörðunum á sínum tíma. Þá kom að máli við mig Grétar Haraldsson, bóndi í Miðey í Landeyjum, til þess að ræða um hið mikla landbrot sem Markarfljót hafði valdið á landi Tjarna og mundi halda áfram að gera yrði ekkert að gert. Grétar var frá Tjörn- um, var þar fæddur og að nokkru leyti alinn upp. Mér datt í hug að nauðsynlegt væri að kynna þetta mál fyrir þingmönnum kjördæmisins. Þá hittist þannig á að þingmenn Sjálfstæðisflokksins boðuðu til almenns fundar að Heimalandi, félagsheimilis Vestur-Eyjafjallahrepps. Þar tók ég til máls og ræddi um varnir við Markarfljót, og þá sérstaklega varnir Brúna og Tjarna og lagði þunga áherslu á skyldu ríkisins á því máli, þar sem þessu
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1974

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.