Víkurfréttir - 02.10.2024, Síða 10
„ekkert í gögnum Veðurstofu Íslands bendir til þess að atburðarrásinni sé að ljúka. á meðan kvikusöfnun
heldur áfram undir Svartsengi verðum við að búast við nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi á Sundhnúks-
gígaröðinni,“ sagði bergrún Anna óladóttir, sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, á íbúafundi í Vogum
sem haldinn var í síðustu viku.
Stóra sviðsmyndin sem horft er
á hjá Veðurstofu Íslands er að á
meðan kvikusöfnun heldur áfram
undir Svartsengi þarf að búast við
nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi
á Sundhnúksgígaröðinni. Erfitt er
að fullyrða hvaða sviðsmyndir eru
líklegastar, hvort að gjósi næst
norðan megin eða sunnan megin
á gígaröðinni. Bergrún sagði að
við verðum að vera viðbúin því
að næsta gos verði kröftugra en
fyrri gos. Mikilvægt sé að íhuga
mótvægisaðgerðir í tengslum við
áhrifamestu sviðsmyndir.
gasmengun helsta ógnin
Það er einna helst gasmengun sem
þarf að hafa áhyggjur af í Sveitar-
félaginu Vogum. Sterkur upphafs-
fasi á eldgosi í samspili við óhag-
stæða vindátt getur valdið verulegri
gasmengun í Vogum. Veðurstofan
telur ekki hættu á að kvikugangur
geti náð undir byggð í Vogum og
þá þarf mikið hraunrennsli áður en
hraun ógna mannvirkjum í Vogum.
Síðasta eldgos á Sundhnúksgíga-
röðinni er stærsta gosið í þessari
goslotu. Það var jafnframt þriðja
lengsta gosið af þeim sex sem hafa
orðið á gígaröðinni og stóð í fjórtán
sólarhringa. Kvikusöfnun er hafin
að nýju á svipuðum hraða og áður.
Erfitt er að segja til um tímasetn-
ingu næsta atburðar. Gosin eru að
stækka og hraði á flæði í upphafi
gosa hefur aukist þar sem meira
hraun er að koma upp. Kraftur
upphafsfasa eldgosanna, þ.e. hraði
á útstreymi kviku fyrstu 6 klukku-
stundirnar, hefur vaxið með hverju
gosi. Heildarmagn kviku sem
kemur upp, þ.e. rúmmál hrauns,
er líka að aukast.
gossagan geymir dæmi um
gosopnanir lengra í norðaustur
Bergrún sagði á fundinum að gos-
sagan geymir dæmi um gosopnanir
lengra í norðaustur á Sundhnúks-
gígaröðinni en kvikugangurinn
sem myndaðist í síðasta gosi fór
norðar en í fyrri gosum. Eins og
staðan er metin í dag eru þrjár
sviðsmyndir í gildi varðandi mögu-
lega staðsetningu á næsta eldgosi
og allar þrjár sviðsmyndirnar eru
taldar jafn líklegar.
Fyrsta sviðsmyndin gerir ráð
fyrir eldgosi sunnan við Sundhnúk,
við Hagafell eða suður af Hagafelli.
Staðsetningin er svipuð og í eld-
gosi sem hófst 14. janúar. Þar varð
gossprungan lengst einn og hálfur
kílómetri en virknin dróst saman á
gíga við varnargarð norðan Grinda-
víkur.
Önnur sviðsmyndin sem horft
er til er eldgos milli Sundhnúks og
Stóra-Skógfells. Staðsetningin er
svipuð og í eldgosum sem hófust
18. desember 2023, 8. febrúar, 16.
mars og 29. maí 2024. Þessar gos-
sprungur voru tveir til fimm kíló-
metrar en virknin dróst svo saman
á gíga við Sundhnúk.
Þriðja sviðsmyndin sem horft er
til er eldgos norðaustan við Stóra-
Skógfell, á svipuðum stað og eld-
gosið sem hófst 22. ágúst. Þar varð
gossprungan lengst um sex kíló-
metrar en virknin dróst saman í
gíg norðaustan við Stóra-Skógfell.
Bergrún fór á íbúafundinum
yfir hættur og möguleg áhrif í og
við Voga þegar horft er til eldgoss
norðaustan við Stóra-Skógfell.
Þar var gasmengun efst á blaði,
þá gjóska og gosmóða, sprungu-
myndanir og síðast hraunrennsli.
Sterkur upphafsfasi á eldgosi
í samspili við óhagstæða vindátt
getur valdið verulegri gasmengun
í Vogum. Skyggni gæti orðið tak-
markað vegna áhrifa frá gróður-
eldum og gosmóðu. Bergrún sagði
mælda gasmengun frá fyrri at-
burðum gefa viðmið um mögulega
mengun frá gosstöðvunum en í allt
að 20 km. radíus frá upptökum
eldgoss hefur mælst gasmengun
sem er óholl fyrir viðkvæma.
Gjóska sem kemur upp úr gosi
með sterkan upphafsfasa austan
við Litla-Skógfell getur valdið
gjóskufalli sem hefur áhrif á um-
ferðaröryggi, umhverfi og mann-
virki. Ef hraunið rennur í t.a.m.
Snorrastaðatjarnir gæti sprengi-
virkni myndast. Þá geta nornahár,
sem hafa myndast í eldgosunum
borist langt frá upptökum eld-
gossins. Bergrún sagði m.a. frá
mynd sem tekin var í Vogum og
sýndi mikið magn nornahára í
þakrennu.
ekki reiknað með að kvikugangur
nái undir Voga líkt og gerðist í
grindavík
Í þeim sviðsmyndum sem horft
er til núna er ekki reiknað með að
kvikugangur nái undir Voga líkt og
gerðist í Grindavík 10. nóvember
2023 og 14. janúar 2024.
„Við þurfum að vera viðbúin því
að næsti kvikugangur geti valdið
hreyfingum á sprungum nærri
Reykjanesbraut. Slíkur gangur
gæti einnig haft áhrif á gæði vatns
í nærliggjandi vatnsbólum,“ sagði
Bergrún á fundinum. Hún sagði frá
því að þegar horft er til jarðskjálfta-
virkni síðustu tveggja ára má sjá að
upptök jarðskjálfta eru ekki undir
Vogum. Hins vegar þarf að reikna
með því að íbúar í Vogum muni
finna fyrir stærstu skjálftunum
sem verða í aðdraganda næsta goss.
Íbúar í Vogum hafa áhyggjur af
mögulegu hraunrennsli en fram
kom í máli Bergrúnar að sigdalir
í núverandi landslagi sunnan
Voga geta tekið við miklu magni
af hrauni. Þannig myndar hæð við
Reykjanesbraut náttúrulega vörn
en hæðarmunur í landslagi þar er
allt að fimmtán metrar.
Veðurstofa Íslands vinnur með
hermanir á hraunrennsli. Útbúið
var hraunflæðilíkan miðað við að
gos hæfist norðaustan við Stóra-
Skógfell. Það sýnir að hraun mun
að mestu renna undan halla í átt
að Reykjanesbraut, sem og að raf-
línum og vatnsbólum. Á fundinum
voru sýnd líkön með magni upp á
1,7 og sjöfalda stærð síðasta eldgoss
miðið við að þau kæmu upp á sama
stað og síðast. Hvorugt þessara
hrauna ná yfir Reykjanesbrautina.
Einnig var sýnt samskonar dæmi
með opnun aðeins norðaustar. Þar
kom fram að mjög mikið magn
af hrauni þarf til þess að hraun-
breiðan nái að Vogum. Þá var á
það bent að eftir hvert gos breytist
landslagið og því þarf að gera nýjar
hraunhermanir reglulega.
efnabreytingar geta orðið í vatni
Áhrif eldgoss á grunn- og yfir-
borðsvatn voru kynnt. Þar kom
fram að kvikugangur, hraunrennsli,
gjóskufall og sprungumyndanir
geta haft áhrif á efnasamsetningu
grunn- og yfirborðsvatns. Nálægð
við upptök eldsumbrota gegnir lyk-
ilhlutverki í umfagngi efnabreyt-
inga í vatni. Stöðugt eftirlit, vöktun
og greining er því nauðsynleg til að
hafa yfirsýn yfir möguleg áhrif á
viðkomandi svæðum.
Nú er unnið að nýrri fram-
setningu á hættumatskortum sem
Veðurstofa Íslands birtir reglu-
lega í tengslum við náttúruvá á
Reykjanesskaganum. Í nýrri fram-
setningu, þar sem Vogum er bætt
við, verður lagt mat á hættu innan
svæðanna reglulega. Í drögum sem
sýnd voru kom fram að gasmengun
er líklegust til að hafa áhrif á Voga.
Viðbúin því að næsta gos verði
kröftugra en fyrri gos
Stóra sviðsmyndin sem horft er
á hjá Veðurstofu Íslands er að á
meðan kvikusöfnun heldur áfram
undir Svartsengi þarf að búast við
nýju kvikuhlaupi og jafnvel eldgosi
á Sundhnúksgígaröðinni. Erfitt er
að fullyrða hvaða sviðsmyndir eru
líklegastar, hvort að gjósi næst
norðan megin eða sunnan megin
á gígaröðinni. Bergrún sagði að
við verðum að vera viðbúin því
að næsta gos verði kröftugra en
fyrri gos. Mikilvægt sé að íhuga
mótvægisaðgerðir í tengslum við
áhrifamestu sviðsmyndir.
Verðum að vera viðbúin því að næsta
gos verði kröftugra en fyrri gos
NÁTTÚRUVÁ
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
bergrún Anna óladóttir, sérfræðingur
hjá Veðurstofu Íslands.
eldgosið norðaustur af Stóra-Skógfelli sem hófst 22. ágúst og stóð í hálfan mánuð. VF/Ísak Finnbogason
Horft ofan af Vogastapa og til Voga. Vogavík fremst á myndinni. VF/Hilmar bragi bárðarson
10 // VÍKurFrÉttir á SuðurNeSJuM