Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.10.2024, Side 7

Víkurfréttir - 02.10.2024, Side 7
„Almannavarnir eru gríðarlega mikilvægar og það hefur reynt mikið á almannavarnarkerfið síðustu þrjú ár og þá sérstaklega síðustu tólf mánuði. Í erindi mínu á ársfundi sambands sveitarfélaga á Suður- nesjum lagði ég áherslu á almannavarnir og þetta samspil ríkis og sveitarfélaga í öllum vörnum, þá bæði almannavörnum og bruna- vörnum. Það reyndi mikið á slökkviliðin hér á svæðinu vegna gróður- elda sem komu í kjölfarið á eldgosum, þess vegna taldi ég nauðsyn- legt síðasta vetur að fjölga um einn starfsmann almannavarna hér á svæðinu, verkefnin hér hafa verið það umfangsmikil. Ég var líka ánægð með að fá aukið fjárframlag til málaflokksins í heild sinni eða sem nemur 145 milljónum króna, það mun koma að góðum notum hér á Suðurnesjum,“a sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra og fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis, í samtali við Víkurfréttir. Hún gerði almannavarnir að umtalsefni á aðalfundi Sambands sveitar- félaga á Suðurnesjum, sem fram fór í Fjölbrautaskóla Suðurnesja síðasta laugardag. „Við gleymum því kannski að við búum á eldfjallaeyju og náttúran er svo sannarlega búin að vera minna á sig að undanförnu, ekki bara hér á Reykjanesi heldur um allt land. Við erum með margar eldstöðvar sem gætu tekið upp á því að hugsa sér til hreyfings. Ísland hefur alltaf búið við óblíð náttúruöfl en við erum vön að takast á við það og við munum gera það áfram. Ég hef dáðst að samstöðunni og æðruleysinu hér á Suðurnesjum að undanförnu og þeirri miklu seiglu sem fólkið býr yfir. Við erum að sjá síendurtekna atburði þar sem lítur út fyrir að eldgos sé í bakgarðinum hjá okkur en við tökumst á við þetta af ró og yfirvegun, við erum búin að gera allt sem við getum til að treysta almannavarnir, lög- regluna og sveitarfélögin í þeim kerfum sem við þurfum og við vitum að þessi öryggiskerfi eru að grípa okkur.“ Þú minntist á í erindi þínu að aðstoðarmaður þinn hefði haft á orði að við sem búum utan höf- uðborgarsvæðisins, tæklum hluti öðruvísi þegar eitthvað bjátar á? „Já, þegar Grindvíkingar þurftu að rýma bæinn sinn í fyrra þá heimsótti ég fjöldahjálparstöðv- arnar og samhæfingarmiðstöðina í Reykjavík og líka í Reykjanesbæ. Í Reykjanesbæ tókum við eftir hve íbúar voru duglegir að koma með veitingar, föt, teppi og annað til að hlúa að viðbragðsaðilunum sem voru að hlúa að þeim sem þurftu að yfirgefa heimilin sín. Fólkið hér var að passa upp á að viðbragðsaðilarnir gætu örugglega sinnt sínu starfi, við sáum ekkert svona lagað í höfuðborginni. Ég var stolt af því sjá samheldnina hér í Reykjanesbæ.“ lögreglan á Suðurnesjum staðið sig vel á landamærunum Nú ertu með útlendingamálin á þinni könnu og þau snerta Suð- urnes nokkuð sterkt í tengslum við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hver er þín sýn á stöðu útlend- ingamála hér á þessu svæði? „Ég hef verið með mjög skýra sýn síðan ég kom inn í dómsmálaráðu- neytið, að aðlaga okkar löggjöf að löggjöfinni hjá nágrannaþjóðum okkar, sérstaklega á norðurlönd- unum. Við höfum verið með sérís- lenska málsmeðferðarreglu sem er öðruvísi en í löndum í kringum okkur sem gerir það að verkum að Ísland virkar aðeins eins og segull á flóttafólk og það gengur ekki að mínu mati fyrir litla þjóð eins og Ísland að vera með öðru- vísi regluverk en aðrir. Þess vegna hef ég lagt mikla áherslu á afnema þessa séríslensku málsmeðferðar- reglu. Ég er líka mjög ánægð með að ríkisstjórnin samþykkti heild- arsýn í málefnum útlendinga þar sem markmiðin eru að fækka umsóknum um alþjóðlega vernd, hraða málsmeðferðartímanum og líka að tryggja brottflutning þeirra sem ber að yfirgefa landið. Þessi lög voru samþykkt í júní og hafa strax skilað miklum árangri, við erum að sjá miklu færri umsóknir um alþjóðalega vernd m.v. sama tíma í fyrra. Við höfum sömu- leiðis séð stóraukningu í frávísun á landamærunum, þar hefur lög- reglan á Suðurnesjum staðið sig mjög vel. Síðast en ekki síst höfum við aðstoðað mun fleiri við að yfir- gefa landið, einstaklinga sem hafa fengið synjun um dvöl í landinu og við höfum aðstoðað það fólk við að komast til síns heima, annað hvort í sjálfviljugri eða þvingaðri brottför. Við erum að sjá árangur, kostnaður hefur lækkað, við erum að fækka búsetuúrræðum því fjöldinn minnkar hratt svo þessi mál horfa til betri vegar. Það hefur verið mikið álag á Reykjanesbæ, það mun minnka hratt á næst- unni.“ Nú hefur þú rætt um húsnæði fyrir fólk sem kemur til landsins, að það sé ekki hægt að hleypa því strax inn í samfélagið áður en bakgrunnar þess sé skoðaður. Hvar sérðu fyrir þér að þetta hús- næði verði staðsett? „Það er óhjákvæmilegt annað en þetta húsnæði sé í nálægð við alþjóðaflugvöllinn. Í dag er þessi móttökumiðstöð á Barónsstíg í Reykjavík og það er óásættan- legt að mínu mati, að þetta fólk sé komið inn í miðbæ Reykjavíkur áður en við vitum mikil deili á þeim. Þess vegna hef ég talað fyrir því að greiningarmiðstöð sé við flugvöllinn og fólkið sem kemur sé ekki með fullt ferðaleyfi á meðan verið er að kanna bakgrunn þess. Ef þetta fólk er með tilhæfulausar umsóknir sem við sjáum strax að verði ekki samþykktar, þá vil ég að við getum snúið þessu fólki hratt frá landinu og þá er nauðsynlegt að vera í nálægð við flugvöllinn. Hvort sem byggt verði nýtt húsnæði í ná- lægð við flugvöllinn eða hægt er að nýta byggingar á Ásbrúarsvæðinu, það er bara útfærsluatriði en í mínum huga er mjög mikilvægt að þetta húsnæði sé við dyrnar að Ís- landi, á Keflavíkurflugvelli,“ sagði Guðrún að lokum. Almannavarnir treystar og útlendingamál í góðum farvegi Sameiginleg almannavarnanefnd á Suðurnesjum? Almannavarnanefnd Suður- nesja, utan Grindavíkur, leggur til að hafist verði handa við gerð samstarfssamnings sveitarfélaga á Suðurnesjum um starfsemi sameiginlegrar almannavarna- nefndar á Suðurnesjum. Erindið var til umfjöllunar á síð- asta fundi bæjarráðs Grindavíkur en gestir fundarins voru sviðsstjóri félagsþjónustu- og fræðslusviðs og sviðsstjóri frístunda- og menn- ingarsviðs. Bæjarráð Grindavíkur tekur undir þessar hugmyndir og felur bæjarstjóra að vinna málið áfram. SUÐURNES Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is n Dáist að samstöðunni og æðruleysinu hér á Suðurnesjum, segir Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra. guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra og fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis „Við höfum sömuleiðis séð stóraukningu í frávísun á landamærunum, þar hefur lögreglan á Suðurnesjum staðið sig mjög vel. Síðast en ekki síst höfum við aðstoðað mun fleiri við að yfirgefa landið, einstaklinga sem hafa fengið synjun um dvöl í landinu og við höfum aðstoðað það fólk við að komast til síns heima, annað hvort í sjálfviljugri eða þvingaðri brottför. “ VÍKurFrÉttir á SuðurNeSJuM // 7

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.