Víkurfréttir - 02.10.2024, Qupperneq 16
Hrafnaspark?
Mundi
Þú lest það
í Víkurfréttum
Lestur Víkurfrétta er fræðandi
um mannlíf á Suðurnesjum og
einnig oft góð skemmtun. Í síð-
asta blaði voru Grindvíkingar
fulltrúar Suðurnesjamanna á
Sjávarútvegssýningunni, þrátt
fyrir að sauðfjárbúskapur væri
þeirra helsti lífsstíll. Mikilvægt
er að koma upp vistheimili barna
í Reykjanesbæ á sama tíma og
niðurrif Garðasels er undirbúið
og langtímaveikindi starfmanna
Reykjanesbæjar kosta 200 millj-
ónir á ári. En það á ekki bara að
rífa Garðasel, heldur líka Nýja
bíó. Þar með mun ljúka áratuga
bíó sögu Keflavíkur. Þótt Fé-
lagsbíó hafi tæknilega ekki verið
rifið, þá má segja að breyta bíói
í Bónusverslun sé tæknilegt nið-
urrif. Brotthvarfi bíóhússins á
Hafnargötu fylgir uppbygging á
háhýsi með íbúðum, verslunum
og tilheyrandi þjónustu, allt í
takt við nýja tíma. Útsýni af efstu
hæð yfir faxaflóann og kjörstaða
til að fylgjast með framvindu
mála í kísilverinu góða. SAM-
blokkin verður bæjarprýði. Ég
er viss um það.
Meðan undirbúningur háhýsa-
bygginga á sér stað í Reykja-
nesbæ, funda almannavarnir í
Vogunum. Það er ekkert grín en
nýjustu eldstöðvarnar eru nær
Vogum en Grindavík. Áður en
hraunið kemst í Vogana rennur
það víst yfir Reykjanesbrautina.
Ég vil síður hugsa þá hugsun til
enda að Reykjanesbrautin verið
hraunflæði að bráð, áður en það
tekst að tvöfalda hana alla leið. En
sá möguleiki er í stöðunni. Mesta
lífið á Suðurnesjum er án nokkurs
vafa í bæjarfélaginu sem ber besta
nafnið, Suðurnesjabæ.
Í fyrri tölublöðum Víkurfrétta
má lesa hvernig bæjarfulltrúum
í þessu nýsameinaða sveitar-
félagi Garðs og Sandgerðis reynist
nær ómögulegt að staðsetja einn
knattspyrnuvöll lagðan gervigrasi.
Tekjur Sandgerðishafnar aukast, í
Sandgerði er nú að finna hágæða
bónstöð og bílageymslu og hinn
eini sanni Jón Norðfjörð mærir
sameininguna undir fyrirsögninni
Sandgerði, fallega Sandgerði en
ljóst virðist vera miðað við þetta að
íbúar Suðurnesjabæjar munu eins
og íbúar Reykjanesbæjar aldrei
taka upp hið nýja nafn, heldur nota
hin gömlu til æviloka. Svo er það
fólkið sem vill byggja upp og bæta.
Það mætir auðvitað bara mótlæti
því sums staðar er virðist aðal-
skipulagið bara vera meitlað í stein.
Það á bara alls ekki að leyfa frí-
stundabyggð á Stóra Hólmi í Leiru.
Það er skilgreint sem íþróttasvæði.
Líklega einvher besta hugmynd
sem fram hefur komið í fjöda ára
og mun ekki gera neitt nema að
styrkja rekstur golfvallarins í Leiru.
Að lokum auglýstu Víkurfréttir
eftir hlaðvarpsgerðarfólki. Ég ætla
að hoppa á vagninn - og hvet alla
sem áhuga hafa á fjölmiðlun að
láta ljós sitt skína. Hvet ykkur til
að hlusta þegar það kemur í loftið.
Þar verður ekki töluð vitleysan.
Góðar stundir!
MARGEIRS VILHJÁLMSSONAR
Hrafnar með listflug í Helguvík
Dagana 20.–27. nóvember 2024 verður boðið upp á brjósta
skimun á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Hægt er að bóka tíma á brjostaskimun@landspitali.is
eða í síma 543 9560 kl. 8:30–12:00 virka daga.
Allar konur á Suðurnesjum sem eru komnar
á tíma í skimun eru hvattar til að bóka.
Ertu með ábendingu um frétt? Sendu á vf@vf.is