Golf á Íslandi - 01.07.1990, Page 41

Golf á Íslandi - 01.07.1990, Page 41
NORÐURLANDAMOT 1989 í SVÍÞJÓÐ Norðurlandamótið 1989 fór fram 22.—23. júlí i Hudiksvall í Svíþjóð, en það er 300 km fyrir norðan Stokkhólm. Keppt var í sveitakeppni karla og kvenna og jafnframt var keppt um titilinn Norðurlandameistari karla og kvenna. I kvennaflokki eru 4 kepp- endur í hverri sveit en 6 kepp- endur í hverri sveit í karlaflokki. Liðsstjórar íslensku sveitanna, þau Kristín Pálsdóttir og Jóhann Benediktsson, völdu eftirtalda I kvennaflokki: Ásgerður Sverrisdóttir, Karen Sævarsdótt- ir, Ragnhildur Sigurðardóttir, Þórdís Geirsdóttir I karlaflokki: Hanns Eyvinds- son, Sigurður Sigurðsson, Sigur- jón Arnarsson, Sveinn Sigur- bergsson, Tryggvi Traustason, Úlfar Jónsson Fararstjóri var Frímann Gunnlaugsson. Keppnin fór fram á golfvelli Golfklúbbs Hudiksvall, sem átti 25 ára afmæli og vígði jafnframt brautir voru nokkuð hráar, en það sem kom mest á óvart var það að allir teigar voru trépallar og gekk okkar fólki misjafnlega að aðlagast þeim. Óskiljanlegt er að bjóða uppá trépalla í al- þjóðlegu móti. Veður var frá- bært, logn og 25 stiga hiti alla dagana. Völlurinn er skógarvöllur og er par 72 og SSS er 72. Flatirnar eru mjög góðar. íslensku liðunum gekk illa og lentu bæði í neðstu sæt- Dönsku stúlkurnar urðu Norðurlandameistarar og léku á 903 höggum en Svíar urðu meist- arar í karlaflokki á 1429 högg- um. Norðurlandameistari kvenna varð Danska stúlkan Karin Örum á 294 höggum en Norður- landameistari karla Svíinn Per Ulrik Johansson á 279 höggum. Bestum árangri íslendinganna náði Ásgerður Sverrisdóttir, 324 högg i 16. sæti og Úlfar Jóns- keppendur til mótsins. 6 nýjar brautir. Þessar 6 nýju unum. son, 288 högg í 5. sæti af 30. Karlar: Konur: 1. Per-Ulrik Johansson S .. . 67 78 68 66 279 1. Karina Örum D 75 75 71 73 294 2. Öyvind Rojahn N 72 71 70 73 286 2. Katarina Michols S 71 75 75 73 294 3. Pierre Fulke S 69 69 74 75 287 3. Annika Östberg D 72 75 72 76 295 4. Peter Olsson S 70 71 74 72 287 4. Jennifer Allmark S 78 76 75 76 305 5. Úlfar Jónsson í 72 74 70 72 288 5. Marika Soravuo F 76 76 77 78 307 6. Jan Andersen D 75 74 70 70 289 6. Pernille Carlsson D 76 76 76 79 307 7. Erkki Válimaa F 73 69 70 77 289 7. Duti Eriksson F 79 79 73 79 310 8. Sören Björn D 72 73 72 74 291 8. Lise Eliasen D 78 77 79 76 310 9. Mikael Peterson S 71 72 72 76 291 9. Margaretha Bjurö S 75 78 76 81 310 10. Jouni Vilmunen F 75 69 74 75 293 10. Cathrine Höyer N 81 76 73 81 311 22. Sveinn Sigurbergsson í .. . 74 73 81 78 306 16. Ásgerður Sverrisdóttir í .... 80 78 79 87 324 25. Sigurjón Arnarsson í ... . 74 84 76 76 309 17. Þórdís Geirsdóttir I 85 86 83 76 330 26. Sigurður Sigurðsson í.... 71 79 80 79 309 18. Ragnhildur Sigurðardóttir í. 80 87 78 85 330 29. Hannes Eyvindsson í . . . . 80 78 73 84 315 20. Karen Sævarsdóttir í 86 81 83 82 332 30. Tryggvi Traustason í . .. . 83 80 81 75 319 Svíþjóð ... 345 365 364 355 1429 Danmörk .. 229 228 218 228 903 Danmörk ... 368 365 371 362 1466 Svíþjóð . . 224 229 226 224 903 Noregur ... 371 363 368 365 1467 Finnland . . 233 235 228 236 932 Finnland ... 375 361 360 380 1476 Noregur .. 242 236 227 245 950 ísland ... 371 375 379 380 1505 ísland . . 245 245 240 243 973 UMGENGNl Á GOLFVÖLLUM Stundum er sagt að um- gengni sýni innri mann, og það hlýtur að eiga við um kyifinga jafnt sem aðra. Umgengni á golfvöllum hefur batnað und- anfarin ár, um það munu vist flestir vera sammála, en því miður vantar enn talsvert upp á að allt sé eins í þeim efnum og ætti að vera. Hefur þú lesandi góður ekki orðið vitni að því að maður sem gengur upp á teig slær þar „fulla æfingasveiflu“ og spæn- ir upp teiginn áður en hann snýr sér að erindinu upp á teig- inn, þ.e. að slá kúluna sína af „tí-inu“? Þetta gera menn án þess að hika, jafnvel þótt skilti við teiginn harðbanni slíka æfingasveifl'. Því miður verðum við líka vitni að því að menn senda á loft stærðar torfusnepil þegar þeir slá á braut, og ganga síðan sperrtir í burtu án þess að hirða um að setja torfusnepilinn í farið sitt aftur og þrýsta hon- um niður. Þessir sömu menn hoppa síðan niður í næsta „bönker“, slá kúluna sína upp úr, en hirða ekki um að raka sandinn eftir sig. Þessir menn eru oft háværast- ir allra ef þeir koma að illa rök- uðum eða órökuðum „bönker“, og þeir láta vallarstarfsmenn heyra það ef teigar eru upp- spændir eða brautir illa farnar vegna þess að torfusneplar hafa ekki verið settir á sinn stað. Þessa hluti, og aðra sem snerta umgengni okkar á golf- völlum á skilyrðislaust að inn- prenta öllum nýliðum í golfi og ganga hart eftir því að þeir fari eftir þeim reglum sem fara á eftir. Sé þetta gert, ætti það að gerast af sjálfu sér að um- gengni hinna reyndari spilara batni. Það eru nefnilega ekki einungis nýliðarnir sem ganga illa um golfvellina. Þeir hafa hinsvegar oft þá afsökun að þeim hafi ekki verið kynnt hvernig þeir eigi að ganga um, en það eiga hinir þó að vita. Kylfingar góðir. Gangið vel um golfvellina, og munið að umgengni sýnir innri mann. GOLF Á ÍSLANDI 41

x

Golf á Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Golf á Íslandi
https://timarit.is/publication/2012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.