Skák


Skák - 15.06.1949, Blaðsíða 6

Skák - 15.06.1949, Blaðsíða 6
LandsliSiS, eins og þaS er nú. Sitjandi, taliS frá vinstri: Eggerl Gilfer, GuSmundur Arnlaugs- son, Baldur Möller. Standandi: Asmundur Asgeirsson, GuSmundur Pálmason, GuSmundur Ágústs- son og Sturla Pétursson. Á myndina vantar Lárus Johnsen. meSan liann tefldi þar. — Eftir heimkomu sína 1945 (síðari stríðsárin, að loknu liá- skólaprófi, var Guðmundur menntaskóla- kennari í Danmörku) liefir Guðmundur kennt stærðfræði, fyrst eitt ár við Akur- eyrar-skóla, en síðan liefir hann verið stærðfræðikennari Reykjavíkur-mennta- skólans. — Guðmundur hefir tekið þátt í öllum landsliðskeppnum síðan hann kom hingað suður og átt sæti í landsliði; hefir þó lítinn tíma haft aflögu til æfinga, en getur þó ekki, frekar en aðrir „forfallnir“, stillt sig um að leika sér að eldinum við og við. — Um taflmennsku Guðmundar á þessu móti er það eitt að segja að hún ber lians fyrri einkenni, en þó verður þess vart að hann hafi „temprað“ sinn róman- tíska veikleika, að skorta leikni í að ein- blína með harðneskju á lokamarkið, sigur- inn, (Guðmundur liefir sem sagt ekki verið mjög „pliysologiskt“, „taktiskt“ teflandi, en segja má að það sé að verulegu leyti æfingaratriði). — Nokkur orð um aðra keppendur. -— Ásm. Ásgeirsson tefldi traust, en ekki með þeim þunga, sem hann yfirbugar ska'ðustu mótstöðumenn með, þegar liann er í bezta formi. Sturla, er jafn honum varð, nær með því bezta árangri sínum í landsliðinu, og tefldi oft vel, og er sem fyrr „taktiskur“ í betra lagi. Lárus Johnsen er orðinn mjög góður skákmaður en á sammerkt með næsta manni, Guðnmndi Ágústssyni, sem brást voiunn manna, í því að liafa ekki nógu 2 S K A K

x

Skák

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skák
https://timarit.is/publication/2036

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.