Bautasteinn - 01.05.2018, Síða 4

Bautasteinn - 01.05.2018, Síða 4
4 Á undanförnum rúmum tveimur áratugum, sem ég hef unnið að málefnum kirkjugarða, hef ég fundið að Íslendingar, ungir sem gamlir, vilja almennt að um kirkjugarða sé vel hugsað. Almenningur vill sýna hinum látnu virðingu með því að hirða vel um kirkjugarða og að garðarnir séu samfélaginu til sóma, sannkallaðir menningarspeglar. Þetta er reynsla okkar sem lengi höfum starfað á þessum vettvangi. Fólk skynjar almennt að kirkjugarðar eru fyrir alla án tillits til trúar- eða lífsskoðana. Allar fjölskyldur þurfa á þjónustu kirkju- garða að halda og þar er ekki farið í manngreinarálit og þar ráða ekki pólitískar skoðanir því hvernig aðstand- endur og hinir látnu eru þjónustaðir. Við, sem störfum hjá kirkjugörðum, höfum undanfarin ár verið að ræða við og skrifa ráðherrum fjármála og dómsmála um nauðsyn þess að leiðrétta framlag ríkisins til kirkjugarða. Því miður höfum við fundið að þar er áhugi fyrir málaflokknum mun minni en hjá þjóðinni sem hefur stutt þá til valda og raunar stefnir skeytingarleysi þeirra rekstri kirkjugarða í voða. Spyrja má hvert þjóðfélag okkar sé komið, þegar einn eða tveir einstakl- ingar, sem kosnir eru til ábyrgðarstarfa, geta lagt skolla- eyru við málaflokki, sem þeir hafa ekki áhuga fyrir, en þjóðin í heild ber fyrir brjósti? Hér er reyndar ekki aðeins um áhugaleysi þessara ráðherra að ræða heldur einnig vanefndir þeirra við þjónustusamning sem forverar þeirra gerðu árið 2005 og er enn í gildi að því leyti að samkomulaginu hefur ekki verið sagt upp. Árið 2005 var undirritað samkomulag milli ríkisins og kirkjugarðaráðs um fjárveitingar til kirkjugarða. Sam- komulagið byggði á gjaldalíkani sem er tæki til að nálgast raunverulega þörf garðanna til lögbundins reksturs. Útbúið var einingaverð umhirðu, greftrana og til lík- brennslu. Þetta einingaverð átti samkvæmt samkomu- laginu að þróast í samræmi við verðlag og kaupgjald. Fyrstu fjögur árin (2005-2008) var unnið þokkalega í samræmi við samkomulagið en eftir efnahagshrun tók annar veruleiki við. Góður skilningur var innan mála- flokksins á sambærilegri skerðingu og aðrar stofnanir þurftu að þola en það sem forráðamenn kirkjugarðamála höfðu ekki skilning á var sú aðferðafræði fjármálaráðu- neytisins að skerða einingarverðið allar götur frá árinu 2009 til 2016. Vitanlega átti að reikna upp einingarverðið á hverju ári og skerða síðan þá upphæð sem út kom til samræmis við aðrar stofnanir. Nú er svokölluðum „hagræðingarkröfum ríkisstjórna“ hætt en kirkjugarðar sitja uppi með ónýtt gjaldalíkan sem reiknar vart meira en 50% af fjárþörf þeirra á síðustu árum. Skerðingin er því varanleg. Stjórn Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) hefur á undanförnum árum (2011-2016) látið gera og knúið á um úttekt á rekstrarskilyrðum kirkjugarða, sjá nánar á vefslóðinni: gardur.is/kgsi.php. Allar þessar úttektir voru samhljóma um það að rekstrarskilyrði kirkjugarða væru komin langt niður fyrir þau mörk sem sett voru með samkomulaginu frá 2005. Ríkisstjórnum, ráðherrum, stjórnmálamönnum og embættismönnum hefur jafn óðum verið kynntur þessi veruleiki en ekkert er gert til að leiðrétta framlagið. Nú er svo komið að ekki verður lengur hægt að bíða eftir viðbrögðum. Allar upplýsingar liggja fyrir og hafa gert undanfarin ár. Flestir af stærri kirkjugörðum landsins voru reknir með halla árið 2016 og eru Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma (KGRP) þar á meðal, þrátt fyrir mikinn niðurskurð í ráðningu sumarstarfsmanna, endurnýjun véla og tækja og viðhald húsnæðis. Meðal stórra verkefna, sem KGRP hafa annast í áratugi, en eru ekki lögbundin, eru rekstur líkhússins í Fossvogi og athafnarýma þar. Framkvæmdastjórn KGRP og forsjóri hafa á fundum sínum rætt rekstur líkhússins og athafna- rýma í tengslum við sífellt minnkandi framlag frá ríkinu. Framkvæmdastjórn KGRP ásamt forstjóra hafa lifað í Aðfaraorð „Þjóðin vill það“ Þórsteinn Ragnarsson, formaður KGSÍ og forstjóri KGRP Útgefandi: Kirkjugarðasamband Íslands  Ritstjórn: Guðmundur Rafn Sigurðsson, Sigurjón Jónasson, Albert Eymundsson, Þórsteinn Ragnarsson (ábm.) Umsjón með útgáfu: Athygli ehf. / Valþór Hlöðversson  Forsíðumynd: Úr kirkjugarðinum í Vík í Mýrdal. Ljósm. Guðmundur Rafn Sigurðsson. Prentun: Litróf  ISSN 1670-2395 UM HVERFISMERKI Prentsmiðja 141 912

x

Bautasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.