Bautasteinn - 01.05.2018, Side 20

Bautasteinn - 01.05.2018, Side 20
fram tillögu að framtíðarskipulagi á reitnum sem síðan var samþykkt af sóknarnefnd. Hefur því skipulagi verið fylgt í aðalatriðum frá þeim tíma. Nýtt grindverk úr járni Eiðakirkjugarður er nú 2.138 m² að stærð og heildarlengd girðingar umhverfis hann er 187,6 m. Þessi girðing hefur nú verið endurnýjuð frá grunni og sáluhliðið jafnframt flutt á nýjan stað. Sáluhlið kirkjugarðsins hafði verið á norðurhlið garðsins sem lá að lóðarmörkum. Nú fékk kirkjan meira land til suðurs og þótti því upplagt að þegar að því kæmi að umgjörð garðsins yrði endurnýjuð yrði sáluhliðið flutt á suðurhliðina. „Það sýndi sig næstu vetur að gamla grindverkið umhverfis garðinn var orðið lélegt og stóðst oft ekki veðurham og snjóþyngsli enda tréstaurarnir orðnir gegnumfúnir, margir hverjir. Á árinu 2012 hófum við að kanna hvaða kostir væru fýsilegir við endurnýjun girðingarinnar. Leitaði ég til allmargra seljenda girðingar- efnis innanlands og skoðaði jafnframt vefsíður fyrirtækja erlendis sem framleiddu og seldu girðingar- og grind- verksefni. Niðurstaðan af þeirri leit varð sú að ég hafði samband við breskt fyrirtæki, Jacksons fencing, þar sem mér leist vel á eina gerð sem fyrirtækið framleiddi og gengur undir nafninu „Bow Top Fencing“. Eftir að hafa rætt málin völdum við 2,15 langar grindur en við vildum hafa sem styst bil á milli staura til að girðingin stæðist snjóþyngslin sem oft verða hér eystra. Sveitarfélagið veitti okkur myndarlegan stuðning sem dugði nokkurn veginn fyrir grindverkinu öllu, hingað komnu.“ Framkvæmdir í þrjú ár Þannig hagar til á Eiðum að að kirkjugarðurinn hallar til austurs og þó einna mest neðst í garðinum. Milli vegar og garðs var djúp hvilft og svo virtist sem að jarðsig væri í þá áttina. „Vegna hallans var ljóst að grindverkið að sunnan og norðan yrði að vera í stöllum og eftir heilmiklar mælikúnstir taldist svo til að hæfileg stöllun þyrfti að vera um 12 cm. Því þurftu þeir staurar sem stóðu í hallanum að vera lengri hinum sem því nam. Við gerðum strax ráð fyrir vélahliði á vesturhlið garðsins en létum færslu sáluhliðsins bíða,“ segir Þórhallur. Árið 2014 var grafinn um eins og hálfs metra skurður við austurmörk kirkjugarðsins, þar sem grindverkinu var ætlaður staður og var uppgreftrinum mokað í hvilftina neðan við. Lagður var jarðvegsdúkur neðst í skurðinn og hann síðan fylltur með grófri möl. Haustið 2015 var steypt 35 cm breið og 40 cm þykk stétt eða biti ofan á fyllinguna, járnbent með steypustyrktarjárni, 2x12 mm efst og 2x12 mm neðst. Notaðir voru kverklistar við allar brúnir og var steypan sementskústuð. Svæðið milli kirkjugarðs og vegar var þökulagt og sömuleiðis var austurjaðar garðsins lagfærður og þökulagður. Að því loknu var grindverkið reist og boltað niður með múr- boltum. Sumarið 2016 var verkinu haldið áfram. Grafið var fyrir og jarðvegsskipt að nokkru leyti undir undir- stöðum og þær voru síðan steyptar í stöllum allan hringinn. Frágangur á undirstöðunum var sá hinn sami og árið áður, þ.e. steypan var járnbent og sementskústuð. Að því loknu var grindverkið reist. Að innanverðu var lögð 50 cm ræma af jarðvegsdúk og trjákurl sett ofan á til að hindra að gras yxi upp að undirstöðu grindverksins. Uppgert sáluhlið og betri aðkoma „Þegar við fórum að huga að uppsetningu sáluhliðsins töldum við eftir nokkra skoðun að best væri að nota gamla sáluhliðið áfram. Verktakinn, Vilhjálmur Karl Jóhannsson, tók að sér að hreinsa, endurbæta og mála sáluhliðið og var því komið fyrir á nýjum stað. Þannig var gengið frá sunnan garðsins að akfært er upp með honum og að vesturhliðinni, þar sem vélgenga hliðið er staðsett. Er það til þæginda ef fara þarf með vélar inn í garðinn, en einnig er það hentug leið, þegar hreyfihamlaðir kirkju- gestir þurfa að komast leiðar sinnar.“ 20 Hér má sjá undirstöður grindverksins að sunnanverðu. Eftir að gamla sáluhliðið hafði verið gert upp var því komið fyrir á nýjum stað.

x

Bautasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bautasteinn
https://timarit.is/publication/2037

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.